Tölvumál - 01.10.1997, Síða 17
TÖLVUMÁL
Amazon lang stærstir
Hægt er að líta á Amazon í
Bandaríkjunum sem frumkvöðla í
netverslun með bækur þótt margir
hafi opnað á undan þeim, þar á
meðal Bóksala stúdenta. Amazon
hefur hins vegar tekist að markaðs-
setja sig gríðarlega vel og vart er
hægt að finna þann bókaáhuga-
mann, sem jafnframt fylgist með
upplýsingabyltingunni, að hann
hafi ekki skoðað sig um á vefnum
þeiiTa. Amazon býður upp á lang
mest úrval bóka, eða um 2.5 millj-
ónir titla að eigin sögn en stærstu
samkeppnisaðilarnir segjast vera
með í kringum 1.2 milljónir titla.
Þeir flokka þó bækurnar þannig að
notandanum ætti alltaf að vera
ljóst hversu langan tíma það taki
að finna til bækurnar og senda þær
af stað. Notandinn getur svo valið
sendingai'máta þar sem meginregl-
an er: Þeim mun fljótari, þeim mun
dýrari.
Mikil velta en tap
næstu árin
Þegar Amazonbooks var komið
á fót, hafði einungis einn af stofn-
endunum reynslu af verslun með
bækur. Hann kom reyndar frá
Barnes and Noble, stærstu bóksöl-
um í heimi. Amazon hefur verið
starfrækt frá árinu 1995. Veltan
jókst þrjátíufalt á milli áranna
1995 og 96, úr 511 þúsund í tæpar
16 milljónir dollara og ljóst er að
veltan hefur aukist umtalsvert á
þessu ári. Sem dæmi um það var
síðasti fjórðungur síðasta árs sá
lang söluhæsti hjá fyrirtækinu það
árið. í mars fór Amazon á almenn-
an hlutabréfamarkað í Banda-
ríkjunum og bauð 2.87 milljón
hluta á verðinu 13 dollara. Út úr
þessu hlutafjárútboði hugðust þeir
fá um 34 milljónir dollara sem ættu
að nægja til að reka verslunina
næstu árin og bæta við þjónustuna.
Mikil samkeppni var um bréfin og
virðast þeir hafa náð markmiðum
sínum. Þrátt fyrir allt þetta er
Amazon rekið með miklu
rekstrartapi og gerir ráð fyrir að
tapa fé næstu sjö árin. I fyrra nam
tapið tæpum sex milljónum
dollara. Amazon hyggst nota hið
aukna hlutafé til þess að halda
áfram að leggja mikið fé til
kynningar- og markaðsstarfs auk
þróunar á vefsvæði sínu með tilliti
til tækni og þjónustu.
í framtíðinni hyggst Amazon
ekki einskorða sig við bækur held-
ur stefna að því að verða seljandi
hvers kyns upplýsinga yfir netið.
Margir möguleikar til
að finrsa bækur við
hæfi
Amazon hefur nýlega endur-
bætt vefsvæði sitt umtalsvert.
Boðið er upp á fjölmarga nýja
möguleika sem meðal annars auð-
velda fólki að finna bækur við sitt
hæfi og fylgjast með umræðu. Eins
geta menn skráð helstu áhugasvið
sín og fengið upplýsingar um allar
nýjar bækur sem út koma á þeim
sviðum.
Amazon hefur ennfremur stofn-
að til samstarfs við Yahoo leitar-
vélarnar sem gefur notendum
sínum kost á því að leita í gagna-
grunni Amazon að bókum sem
tengjast leitarorðum í Yahoo.
Þannig geta notendur komist beint
í gagnagrunn Amazon frá síðu
leitarvélarinnar. Búast má við að
samstarf með þessum hætti eigi
eftir að aukast mikið á vefnum á
næstu misserum.
Mikil samkeppni í
aðsigi
Bames and Noble höggva mik-
ið til í sama knérunn og Amazon
og búast má við harðri samkeppni
þar á milli. Þeir eru stærstu bók-
salar í heimi og hafa um 1.2 mill-
jónir titla á skrá. Þeir leggja mikið
upp úr því að bjóða upp á umræðu
um bækur, viðtöl við höfunda og
dóma um nýjar bækur, auk þess
sem sem metsölulistar era aðgengi-
legir. The Bookplace ætlar sér
einnig stóra hluti auk þess sem því
hefur verið fleygt að Intemet book-
shop hyggist bæta töluvert við sinn
vef.
Auk þessa eru fjölmörg tímarit
um bækur aðgengileg á vefnum.
Publishers Weekly á gott svæði
(www.bookwire.com/pw), New
York Review of Books (www.
nybooks.com/nyrev) býður upp á
nokkrar greinar í mánuði og
Barnes and Noble eru í samstarfi
við The New York Times Book
Review. I samvinnu við The
Bookplace er ennfremur starfrækt
vefritið Bookends (www.book-
ends.co.uk).
Þannig má kannski í heild segja
að hér sé að verða til nýr verslunar-
máti til hliðar við hefðbundna sölu
bóka í bókabúðum þar sem einnig
fer fram lífleg bókmenntaumræða.
Kristján Guy Burgess er verk-
efnisstjórí hjá Vöku-Helgafelli
og kennir upplýsingatœkni við
Fjölbrautaskólann við Ar-
múla.
Ný heimasíða
Skýrslutæknifélags íslands
http://www.sky.is
OKTÓBER 1997 - 17