Tölvumál - 01.10.1997, Side 20
TOLVUMAL
áhrif á hversu lengi þær endast.
Þar að auki hefur eftirspurn al-
mennings orðið til þess að fram-
leiddar hafa verið hvers kyns
skyndilausnir (t.d. polaroid), sem
venjulega hafa stuttan líftíma á
safnamælikvarða. Þá endast lit-
myndir og filmur að jafnaði mun
skemur en svart-hvítar.
Þrátt fyrir þetta þá ættu flest
fjölskyldualbúmin að eiga að
minnsta kosti aldarlíf fyrir hönd-
um, séu þau ekki geymd við þeim
mun verri aðstæður, og á þeirri öld
er líklegt að fundnar verði aðferðir
til þess að lengja líf þeirra enn
frekar. Nú þegar hafa verið þróað-
ar mjög sannfærandi aðferðir til
þess að varðveita myndir á staf-
rænu formi á geisladiskum og það
er vissulega ein geymsluaðferð
sem vert er að íhuga. Þar komum
við reyndar að tölvunum aftur!
Mikilvægara er þó að vitundin
um varðveislu mynda er farin að
vakna og er jafnvel farin að ná til
almennings. Nú er til dæmis hægt
að fara út í búð og kaupa sér albúm
úr sýrufríum pappír eða plastvasa
fyrir filmur og myndir, sem inni-
halda engin skaðleg mýkingarefni.
Það væri jú draumur sérhvers
sagnfræðings að varðveisla heim-
ildanna hæfist frá fyrstu hendi.
Líf sagnfræðinga framtíðar-
innar á vafalítið eftir að verða
flóknara en starfsbræðra þeirra í
dag og með breyttum heimildum
koma breyttar vinnuaðferðir. Lík-
lega á starf þeirra þó eftir að þróast
eðlilega með breytingum samfél-
agsins, það hefur gert það hingað
til. Og þó að tæknin virðist stund-
um yfirþyrmandi, þá hefur hún oft-
ast fleiri kosti en galla og gallana
er yfirleitt hægt að færa til betri
vegar. Þess vegna er heilladrýgst
að trúa því að þó að tæknin fari
gjarnan svolítið fram úr sjálfri sér
þá finni hún leiðir til þess að
varðveita sjálfa sig.
Brynhildur Ingvarsdóttir er
sagnfrœðingur við framhalds-
nám í Boston.
Klemens
Tryggvason
látinn
Klemens Tryggvason, fyrr-
verandi hagstofustjóri og heið-
ursfélagi í Skýrslutæknifélagi
Islands lést 5. júlí síðastliðinn.
Klemens var fæddur 10.
september árið 1911. Hann varð
stúdent frá menntaskólanum í
Reykjavík 1933 og lauk hag-
fræðiprófi frá Hafnarháskóla
árið 1940. Klemens var for-
stöðumaður hagfræðideildar
Landsbanka f slands 1942-'51, er
hann tók við starfi hagstofu-
stjóra sem hann gegndi í 33 ár
eða til ársins 1984.
Þegar Klemens Tryggvason
settist í húsbóndasætið í Hag-
stofu íslands árið 1951 hafði
skýrsluvélasamstæða þegar
verið sett þar upp og vinnsla
hafin, verslunarskýrslur og úr-
vinnsla manntals. Ákvörðun
mun einnig hafa legið fyrir um
að stofna þjóðskrá sem Hag-
stofan skyldi halda og nota til
þess téðar skýrsluvélar. Á fyrstu
árum sínum sem hagstofustjóri
mótaði Klemens þessa mikil-
vægustu skrá landsins, þjóð-
skrána og stjórnaði véltöku
hennar. Ef hægt er tala um höf-
und skráar, þá er Klemens
höfundur þjóðskrár. Hann lét sér
ávallt annt um hana, var m.a.
mjög gætinn hvað varðaði
aðgang að skránni. Klemens
stjómaði einnig vélvæðingu ým-
issa hagskýrslna, en þess má
geta hér að verslunarskýrslur
Hagstofunnar voru fyrsta verk-
efnið sem unnið var í gagna-
vinnsluvélum hér á landi árið
1949. Klemens stjórnaði þróun
upplýsingakerfanna sem auð-
vitað voru ekki fullmótuð frá
fyrsta degi. Meðal annars komst
á samstarf með Hagstofunni og
stofnunum Reykjavíkurborgar
um að stofna fyrirtæki, Skýrslu-
vélar ríkisins og Reykjavíkur-
borgar, er tók til starfa með
endurnýjuðum vélakosti árið
1952. Klemens var stjórnarfor-
maður þess fyrirtækis frá stofn-
un 1952 til 1971 og gegndi þess
vegna mikilvægu hlutverki
þegar tölvutæknin hóf innreið
sína hér á landi um miðjan
sjöunda áratuginn.
Klemens Tryggvason var
einn þeirra sem undirbjuggu
stofnun Skýrslutæknifélags
íslands árið 1968. Frumkvöðl-
um vélrænnar gagnavinnslu
þótti sem faglegan vettvang
vantaði til að fjalla um sam-
eiginleg áhuga- og framfaramál.
Fundargerðabækur félagsins
bera vitni um að hann var mjög
virkur í félaginu um langt skeið,
stjórnaði meðal annars öllum
aðalfundum í 18 ár.
I viðurkenningarskyni fyrir
frumherjastörf sín var Klemens
Tryggvason kjörinn heiðurs-
félagi í Skýrslutæknifélagi
íslands á 20 ára afmælishátíð
félagsins árið 1988. Félagið
minnist þessa heiðursfélaga síns
og vottar eftirlifandi eiginkonu
og öðrum aðstandendum inni-
lega samúð.
20 - OKTÓBER 1997