Tölvumál - 01.10.1997, Side 22
TÖLVUMÁL
1. Framþróun verður minni en
ella þar sem kostnaður við dýra
þróunarvinnu fæst ekki til baka
á tilsettum tíma. Fjárfesting í
greininni verður minni fyrir
bragðið.
2. Störfum fjölgar minna en ella
með tilsvarandi áhrifum á
atvinnuleysi. Price Waterhouse
gerði könnun 1995 um áhrif
fomtastulds á hagkerfi Evrópu
til aldamóta. Niðurstaðan var
sú að ef ólögmætishlutfallið
lækkaði úr 58,6% að meðaltali
í 34%, eins og gerist í Banda-
ríkjunum, myndi störfum í
Vestur-Evrópu fjölga um
88.000 og skatttekjur aukast
um 2.3 milljarða dollara,
fyrir árslok 2000.
3. Forritastuldur leiðir af sér að
skatttekjur til hins opinbera
tapast í stórum mæli.
4. Neikvæðar menningarlegar
afleiðingar. A litlum markaðs-
svæðum s.s. íslandi sem að
auki eru með mikla ólöglega
notkun, eru erlendir framleið-
endur tregari til að þýða forrit
yfir á tungumál markaðarins
vegna þess hversu litlar tekjur
hann gefur.
BSA hefur unnið með fjöl-
mörgum ríkisstjórnum og stofn-
unum að því að lögtekin verði
raunhæf vernd fyrir rétthafa til
þess að gæta sinna hagsmuna. Má
t.d. nefna Bandaríkin þar sem náið
samstarf við ríkistjórn hefur leitt
af sér víðtæka og árangursríka
lagasetningu í þágu rétthafa.
Ahrifa BS A hefur ekki síst gætt við
samningu ýmiskonar alþjóðlegra
samninga sem lúta að hugbúnaðar-
vernd og hafa sambærileg hug-
verkaréttindi notið góðs af.
Sérstaklega má nefna viðauka-
samning við GATT samninginn
sem varðar hugverkaverndun í
viðskiptum, á ensku skammstaf-
aður TRIPS. Sá samningur er
tímamótaverk að því leyti að hann
endurspeglar það grundvallarvið-
horf að veita verði rétthöfum raun-
hæfar leiðir að lögum til þess að
vemda sín réttindi. Eru aðildarlönd
að samningnum því m.a. skuld-
bundin til að lögtaka reglur sem
miða að því að „grípa til álirifa-
ríkra aðgerða gegn athœfi sem er
brot á hugverkarétti...þar með
talin skjót úrrœði til að koma íveg
fyrir brot og hamla frekari brot-
um. “(41 gr. 1. tl.) Þá eru aðildar-
löndin skuldbundin til að lögtaka
reglur sem veita dómstólum, að
beiðni rétthafa, „vald til að fyrir-
skipa tafarlausar og áhrifaríkar
aðgerðir til bráðabirgða til þess
að koma í veg fyrir brot og að
varðveita sönnunargögn. “ Er
dómstólum ætlað að veita rétthaf-
anum heimild til þess að gera
bráðabirgðaráðstafanir „án þess
að hafa samband við mótaðilann “
sem skal þó fá aðvörun „ í síðasta
lagi um leið og ráðstöfunum er
hrundið íframkvœmd“. ( 50. gr.)
Það er augljóst að vegna eðlis
brota gegn forritavernd, þ.e.a.s.
hversu auðvelt er að brjóta gegn
réttindum og sama skapi auðvelt
Punktar...
Ný sinfónía með
aðstoð töivu
David Cope, sem er pró-
fessor við Kaliforníuháskóla
segist hafa sett saman 42.
sinfóníu Mozarts og það gerði
hann með því að nýta ýmsa
kafla úr hinum sinfóníum tón-
skáldsins og lét tölvu raða bút-
unum saman í nýtt verk. Cope
montaði sig af því nýverið í
tímaritinu New Scientist að
það væri ekki nokkur leið fyrir
þá sem ekki vissu betur en að
halda að þessi tónsmíð væri
eftir Mozait. Cope viðurkennir
að afmá sönnunargögn verður
réttarverndin ekki raunhæf nema
því aðeins að framkvæmd laganna
sé það einnig. Á næstunni mun
BSA beita sér m.a. fyrir því að þær
skuldbindingar sem ísland hefur
undirgengist með aðild sinni að
GATT samningnum verði teknar
með beinum hætti upp í íslenska
löggjöf.
Islenskir forritaframleiðendur
munu án efa njóta góðs af því starfi
sem BSA hefur hafið á íslandi.
Áhrifa af starfsemi BSA á fslandi
er strax farið að gæta. Ef stjóm-
völd sinna sínu hlutverki af festu,
í samræmi við erlenda framkvæmd
sem lýtur hliðstæðri löggjöf og
íslendingar, má búast við að vem-
lega dragi úr forritastuldi hérlendis
á næstunni. Það er jákvætt fyrir
alla sem sýsla með hugbúnað í
viðskiptum, hvort heldur hann er
innfluttur eða framleiddur hér-
lendis.
Hróbjartur Jónatansson hrl.
að þó gervigreindarhugbúnað-
urinn geti ekki búið til meist-
araverk þá standi tölvan sig
betur en aðrir sem hafa hennt
eftir upphaflega höfundinum.
Tölvan hans Cope er þessa
dagana að búa til 10. sinfóníu
Mahlers þar sem Cope segist
orðin svo þreyttur á hinum níu
og langi til að heyra eitthvað
nýtt. Tónlistargagnrýnendur
segja tölvuna vanta tónlistar-
innsæi en píanóleikari nokkur
sem nýlega spilaði plat-maz-
úrka í anda Chopin, sem Cope
hafði búið til, sagðist dolfall-
inn yfir því hve raunveruleg
tónlistin var. Áhugasamir geta
kíkt á síðuna http://aits.ucsc.
edu/faculty/copc/home.
22 - OKTÓBER 1997