Tölvumál - 01.10.2000, Qupperneq 8
Schengen samkomulagið
Schengen samkomulagið
Vigfús Erlendsson
Schengen samstarfið
gengur þannig fyrst
og fremst út á frjálsa
för fólks um innri
landamæri allra að-
ildarríkja þess, sem
þýðir að hefðbundnu
landamæraeftirliti á
innri landamærum
Schengen svæðisins
er hætt
Þann 14. júní 1985 undirrituðu fimm
ríki samkomulag um frjálsa för
fólks, vöru og þjónustu, yfir innri
landamæri ríkjanna, í smábænum
Schengen í Luxembourg rétt við landa-
mæri Þýskalands.
Þessi ríki voru Belgía, Þýskaland,
Frakkland, Lúxemburg og Holland. Þessi
ftmm stofnríki undirrituðu síðan samning
til staðfestingar á Schengen samkomulag-
inu þann 19. júní 1990, en síðar bættust
fleiri í hópinn þ.e. Ítalía síðar á árinu
1990, Spánn og Portúgal 1991, Grikkland
1992, Austurríki 1995 ogDanmörk, Sví-
þjóð og Finnland 19. desember 1996. Öll
þessi lönd eru aðilar að ESB. Island og
Noregur gerðu samstarfssamning við að-
ildarlöndin 19. desember 1996 en þessi
tvö lönd eru ekki aðilar að ESB. Sam-
kvæmt ákvæðum Amsterdam-sáttmálans
frá júní 1997 var Schengen samstarfið
flutt inn í stofnanakerfi ESB í maí 1999
með sérsamningum um aðild Islands og
Noregs. Með Schengen samningnum er
landamæraeftirliti á milli Schengenland-
anna hætt og komið á sameiginlegum
vegabréfs áritunum.
Schengen samstarfið gengur þannig
fyrst og fremst út á frjálsa för fólks um
innri landamæri allra aðildarríkja þess,
sem þýðir að hefðbundnu landamæraeftir-
liti á innri landamærum Schengen svæðis-
ins er hætt, en þess í stað er slíku eftirliti
betur sinnt á ytri landamærum svæðisins.
Aðrir þættir samningsins fjalla einkum
um vegabréfsáritanir, gagnkvæma réttar-
aðstoð, lögreglusamvinnu ásamt baráttu
gegn fíkniefnasmygli og skipulögðum
glæpum.
Stefnt er að því að Schengen samning-
urinn taki gildi gagnvart öllum Norður-
löndunum samtímis í mars 2001. Við gild-
istökuna kemur samningurinn í stað nor-
ræna vegabréfasambandsins, sem í 40 ár
hefur gert Norðurlandabúum kleift að
ferðast vegabréfslaust innan Norðurland-
anna.
Dómsmálaráðuneytið hefur upplýsinga-
síðu um Schengen samstarfið. Tengil á
hana er að finna neðarlega á eftirfarandi
vefsíðu: http://brunnur.stjr.is/inter-
pro/dkm/dkm.nsf/pages/annad-efni
5 Norðurlönd verða virk í desember 200
Norrænt samstarf, Nordic Co-operation, NoCop Núverandi 10 þáttökulönd í Schengen
Núverandi þátttökulönd í Schengen samstarfinu og væntanleg innganga fimm Norðurlanda.
8
lölvumál