Tölvumál - 01.10.2000, Page 12
Schengen samkomulagicS
SIRENE VISION
Ríkislögreglu- Útlendinga-
stjóri stofa
isis
Islenski hugbúnaðai-
hlutinn
Aðrir
notendur
Vegabréfaeftirlit
lögreglustjóra
Mynd 3: Upplýsingaflæði í og úr ISIS kerfinu
SIRENE
SIRENE, sem er eins og áður segir
stytting úr enska heitinu Supplementary
Information REquest at the National
Entries, er í raun samandregin lýsing á
verklagi sem viðhaft er við sendingu við-
bótargagna til notenda sem hafa leitað
upplýsinga í SIS og fengið jákvæða svör-
un. Hvert land hefur sína SIRENE skrif-
stofu. Þessi skrifstofa er tengiliður lög-
reglu-, tolla- og dómsyfirvalda við aðrar
SIRENE skrifstofur í hinum Schengen
þátttökulöndunum. SIRENE skrifstofan
hefur umsjón með skráningu í kerfið fyrir
hvert land og heldur utan um gögn tengd
hverri skráningu. SIRENE skrifstofan er
starfrækt allan sólarhringinn allt árið um
kring. Á íslandi verður SIRENE skrifstof-
an á ábyrgð Ríkislögreglustjórans og er
staðsett hjá alþjóðaskrifstofu hans.
SIRENE skrifstofan mun hafa yfirum-
sjón með aðgangi að ÍSIS/N.SIS gagna-
grunnunum, verða sjálf notandi ISIS og
eini skráningaraðilinn í SIS kerfið hér-
lendis.
Á SIRENE skrifstofunni verður rekið
upplýsinga- og skjalastjórnunarkerfi til að
halda utan um samskipti við SIRENE
skrifstofur í öðrum löndum með X.400
tölvupósti og upplýsingar er tengjast
færslum í SIS. Kerfi fyrir samskipti
SIRENE skrifstofunnar er hannað og
smíðað sérstaklega af VKS hf.
VISION
Hvert land hefur sína VISION skrif-
stofu (Visa Inquiry Open border Network)
og er hún tengiliður yfirvalda sem sjá um
vegabréfsáritanir og dvalarleyfi við aðrar
VISION skrifstofur.
VISION skrifstofan hefur takmarkaðan
leitaraðgang í SIS og mun sjá um skrán-
ingar mála vegna 96. greinar Schengen
samkomulagsins. Allir staðir sem gefa út
vegabréfsáritanir á vegum hvers lands
þurfa að hafa aðgang að vissum upplýs-
ingum í SIS. VISION skrifstofan verður
staðsett í Utlendingaeftirlitinu og á ábyrgð
Gögn, sem berast
á pappír ^
Samskipti viðaðtla
innanlands og uta 1
Samskipti við ser
ráð og aðra aðila
Samskipti við aðtar
VISION skrifstofUr
.... Upplýsingakcrfi VISION skrifstofu
Skanni
Faxgátt
Tölvupóstur
Internet (SMTP)
Tölvupóstur
Útiendinga
og
áritanaskrá
Skjalageymsla
pappír
Aðgangur að
ÍSIS
7
(biðlari)
Uppflettingar og skráning
Mynd 4: VISION kerfi fyrir útlendingayfirvöld. SIRENE kerfi hefur svipaða grundvallaruppbyggingu.
12
Tölvumál