Tölvumál - 01.10.2000, Side 14

Tölvumál - 01.10.2000, Side 14
Schengen samkomulagið Grein skýring og gildistími skráninga 95 Eftirlýstir einstaklingar þar sem óskað er eftir handtöku og framsali 3 ár 96 Óæskilegir einstaklingar sem ekki fá Schengen vegabréfsáritun 3 ár 97 Eftirlýstir einstaklingar eða einstaklingar sem þarf að hafa í haldi tímabundið vegna eigin öryggis eða ógnunar. 3 ár 98 Grunaðir einstaklingar eða vitni þar sem óskað er eftir upplýsingum um dvalarstað. Einnig einstaklingar sem mæta eiga fyrir dómi í sakamáli eða til afplánunar á dómi samkvæmt beiðni þar til bærra yfirvalda 3 ár 99 Einstaklingar eða ökutæki sem óskað er eftir að haft verði eftirlit með í kyrrþey eða teknir til markvissrar skoðunar. 1 ár 100 Eftirlýstir munir, sem óskað er eftir að lagt verði hald á eða eru vísbending í sakamáli. Hlutirnir eru : Stolin, ólöglega keypt eða týnd ökutæki og tengivagnar 3 ár Stolin, ólöglega keypt eða týnd skotvopn 10 ár Stolin, ólöglega keypt eða týnd óútgefin skilríki 10 ár Stolin, ólöglega keypt eða týnd útgefin skilríki 5 ár Peningaseðlar með þekktum númerum 5 ár fylla þau skilyrði. í lögum um Schengen- upplýsingakerfið á Islandi nr. 16/ 2000 er ákvæði í 18. gr. um að Tölvunefnd skuli hafa eftirlit með því að skráning og með- ferð persónuupplýsinga í upplýsingakerf- inu sé í samræmi við lögin og reglur sem gilda um persónuvernd og friðhelgi einka- lífs. Tölvunefnd skal einnig hafa eftirlit með því að öryggi upplýsingakerfisins sé tryggt þannig að óviðkomandi fái ekki að- gang að því eða geti haft áhrif á skráningu í það. Tölvunefnd hefur einnig aðgang að skráðum upplýsingum og öðrum nauðsyn- legum gögnum til að sinna eftirliti með upplýsingakerfinu. Ef Tölvunefnd gerir at- hugasemdir við starfrækslu upplýsinga- kerfisins skal hún koma þeim og tillögum um úrbætur á framfæri við ríkislögreglu- stjóra og dómsmálaráðuneytið. Einnig er kveðið á um að ráðherra setji nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laganna, þ.m.t. um: a. öryggisþœtti upplýsingakerfisins og innra eftirlit með því b. hœfis- og öryggiskröfur sem starfsmenn lögreglu eða Utlendingaeftirlits verða að fullncegja til að starfa við upplýs- ingakerfið c. eftirlit tölvunefndar með upplýsinga- kerfinu í lögum um persónuvemd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 er kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði að þrátt fyrir 1. mgr. 46. gr. um að lögin taki gildi 1. janúar 2001, skuli Persónuvernd þegar er stjórn hennar hefur verið skipuð taka að sér eftirlit með því að meðferð persónu- upplýsinga í Schengen-upplýsingakerfinu á Islandi sé í samræmi við lög nr. 16/2000, um Schengen-upplýsingakerfið á Islandi. JSA Sjálfstæð stofnun, Joint Supervisory Aut- hority (JSA), sem hefur aðsetur í Brussel, sér um persónuvemdarmál í tengslum við Schengen og eftirlit með öryggis-, að- gangs- og persónuverndarþáttum í rekstri C.SIS í Strasbourg. Stofnun þessi hefur samstarf við persónuverndarstofnanir í þátttökulöndum samstarfsins og hefur gef- ið út bækling á öllum tungumálum ESB um persónuvernd og réttindi einstaklinga varðandi skráningar í SIS. Úttekt og fullgilding Islands í Schengen samstarfinu Áður en Norðurlöndin geta fengið full- gildingu í Schengen samstarfinu og tekið við landamæravörslu á ytri landamærum þess þurfa þau að standast úttektir ýmissa úttektarnefnda á vegum samstarfsins. Út- tektamefnd vegna persónuvemdar (data protection) heimsótti ísland í apríl sl. og fór m.a. fram skoðun og úttekt á húsnæði, aðgangs- og öryggismálum í tengslum við SIS, SIRENE og VISION kerfin og fund- 14 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.