Tölvumál - 01.10.2000, Qupperneq 24
Rafrænir viðskiptahættir
Þau fyrirtæki sem
stunda eða rafræna
viðskiptahætti lækka
rekstrar- og sölu-
kostnað
af. Þau þurfa stöðugt að þróa og laga sína
stefnu að breytilegum heimsmarkaði. Op-
inber fyrirtæki verða líka að fylgjast með
til þess að tryggja innviði opinbera kerfis-
ins, sem getur stutt samkeppnisfært at-
vinnulíf og skilvirkt þjóðfélag. í opinbera
geiranum geta ráðuneyti, stjórnsýslustofn-
anir, sveitarfélög og aðrar stofnanir náð
ávinningi og sparnaði með markvissum og
skipulögðum innkaupum, geta boðið skil-
virkari þjónustu og gagnsæi í málsmeð-
ferð gagnvart borgurum og öðrum stofn-
unum.
Stjórnendur geta
brugðist miklu skjótar
við breyttum markaðs-
aostæðum og þörfum
viðskiptavina
Helstu kostir rafrænna viðskiptahátta:
1. Lægri kostnaður: Þau fyrirtæki sem
stunda „e-business“ eða rafræna við-
skiptahætti lækka rekstrar- og sölu-
kostnað og hækka þjónustustigið með
því að koma á sjálfsafgreiðslu í stað
flókinna afgreiðsluferla. Þá gefst tími
til að huga meira að stefnumótun og ná
skarpari sýn á viðskiptavininn til þess
að meta stöðugt óskir hans, þarfir og
smekk. Með markvissum innkaupum
geta einkafyrirtæki og opinberar stofn-
anir tryggt skilvirka aðdrætti á lægra
verði og með minni fjárbindingu í
birgðum.
2. Aukin velta og meiri tryggð: Fyrir-
tæki sem stunda rafræna viðskiptahætti
auka veltu sína og tryggð viðskiptavina
með því að skilja þarfir þeirra og veita
þeim sérsniðna þjónustu. Samhæfð
kerfi, sem safna upplýsingum um við-
skiptamenn og gera þær samstundis að-
gengilegar öllum deildum, veita stjórn-
endum alhliða innsýn í þarfir viðskipta-
vinanna. Fyrirtæki og neytendur hald-
ast lengur í viðskiptum við þau fyrir-
tæki sem stunda rafræna viðskiptahætti
en við hefðbundin fyrirtæki því þeir
taka virkan þátt í ferlunum sem skapa
vörur og þjónustu sem þeir hafa þörf
fyrir.
3. Hraðari viðskiptaferli: Fyrirtæki sem
stunda rafræna viðskiptahætti ganga frá
kaupum á styttri tíma með því að auka
hraða, sveigjanleika og samvinnu í að-
fangakeðjunni. Framleiðendur, birgjar
og aðrir samstarfsaðilar skiptast á upp-
lýsingum gegnum intemetkerfi og aliir
í aðfangakeðjunni geta hámarkað skil-
virknina. Fyrirtækið getur þá kannað
stöðu mála hjá þessum aðilum hvar í
heiminum sem þeir eru niður komnir.
Segja má að stýring aðfangakeðjunnar
verði hnattrænt viðfangsefni.
4. Betri grundvöllur fyrir stefnumót-
andi og rekstrarlegar ákvaðanir: Hjá
fyrirtæki sem nýtir rafræna viðskipta-
hætti er ákvarðanaferlið gert skilvirkara
með því að styðjast við samþættaðar og
heildstæðar upplýsingar sem koma frá
hinum ýmsu deildum fyrirtækisins.
Stjórnendur fá þannig heildstæða sýn
yfir fyrirtækið eða stofnunina. Þeir sjá
eina heild ferla sem tengjast einstökum
viðskiptavinum beint og líka fram-
leiðslu- og aðfangakeðjunni. Upplýs-
ingar um fjárhag, birgðir, sölutölur,
viðskiptamenn, flutningaleiðir og
fjölda annarra atriða eru uppfærðar í
rauntíma í heildstæðu samhengi í öllu
fyrirtækinu. Stjórnendur geta brugðist
miklu skjótar við breyttum markaðsað-
stæðum og þörfum viðskiptavina.
5. Notkun hnattrænna kerfa: Fyrirtæki
sem beitir rafrænum viskiptaháttum
notar hnattræn kerfi til að draga úr
kostnaði og bæta þjónustuna. Veraldar-
vefurinn gerir fyrirtækjum kleift að
stunda viðskipti hvar og hvenær sem er,
nýta nýja möguleika og færa út kvíarn-
ar. Þegar hægt er að sníða hugbúnað og
ferli sem eru aðgengileg alls staðar
gegnum netið þá þarf ekki að halda við
fjölda staðbundinna kerfa á mörgum
stöðum. Veraldarvefurinn er miklu hag-
kvæmari kostur fyrir stór og fjölbreytt
fyrirtæki en staðbundin kerfi. Við-
skiptavinirnir eru með beina og skil-
virka boðleið inn í fyrirtækið og fá
fljóta, sérsniðna og markvissa þjónustu.
Þróunin frá hefðbundu fyrirtæki yfir í
fyrirtæki sem stundar rafræna við-
skiptahætti
Dæmigerð þróun hefðbundinna fyrirtækja
eða stofnanna yfir í fyrirtæki eða stofnanir
sem stunda rafræna viðskiptahætti gengur
í gegnum eftirfarandi fjögur stig:
1. Miðlun þekkingar um vörur og þjón-
ustu: Fyrsta skrefíð er stofnun heima-
síðu þar sem fram koma upplýsingar
um fyrirtækið, vörur þess og þjónustu.
Þetta stig samsvarar nokkurn veginn
„rafrænum" auglýsingum í hefðbundn-
24
Tölvumál