Tölvumál - 01.10.2000, Blaðsíða 26

Tölvumál - 01.10.2000, Blaðsíða 26
doc.is dous Jón Pétur Einarsson Tölvukerfið er hannað í kringum rafrænan lyfseðil fePref) og ætlað læknum við gerð lyfjaávísana. I framtíðinni verður jbað ekki einungis tengt við ákveðin lyf heldur líka við sjúk- dómsgreininguna sem læknirinn hefur gert doc.is er hugbúnaðar fyrirtæki sem var stofnað í júli 1999. Fyrirtækið var stofnað í kringum hugmynd um smíði og hönnun tölvukerfís varðandi lyfjaávísanir lækna. í dag starfa hjá fyrir- tækinu framkvæmdastjóri, tveir lyfjafræð- ingar og sjö forritarar sem flestir eru tölv- unarfræðingar frá Háskóla Islands. doc.is leggur megin áherslu á hugbún- aðargerð fyrir heilbrigðisgeirann og eru markmið fyrirtækisins að vinna að lausn- um tengdum faglegum þáttum heilbrigðis- mála. Stærsta verkefni doc.is er hönnun og smíði tölvukerfis fyrir lækna og stjórn heilbrigðismála. Tölvukerfið er hannað í kringum rafrænan lyfseðil (ePref) og ætl- að læknum við gerð lyfjaávísana. I ePref getur læknir nálgast faglegar og hagnýtar upplýsingar um lyfin sem hann er að ávísa. Ymis öryggisforrit eru samkeyrð lyfjaávísunum og gera þau læknum við- vart ef þær eru frábrugðnar meðmæltri meðferð. Ur kerfinu er lyfseðlar sendir rafrænt til apóteka. ePref stuðlar að markvissari og öruggari lyfjameðferðum fyrir sjúklinga og sparar læknum tíma og býður þeim upp á ein- falda og fljótlega leið við upplýsingaleit. Forritunarmál Öll tölvukerfi doc.is eru skrifuð í forritun- armálinu Java, sem veitir mikinn sveigjan- leika þegar kemur að tengingu við önnur kerfi, sem og uppsetningu á mismunandi stýrikerfum (s.s. Windows, Macintosh, Linux). Samskipti yfir net fara fram með Corba-staðlinum, sem einnig veitir þenn- an sveigjanleika. Samskipti Java forrita við gagnagrunna eru einnig mjög sveigj- anleg og því hægt, með litlum tilfæring- um, að skipta um gagnagrunna þannig forrita. Java er hlutbundið forritunarmál sem veitir hugbúnaðarsmið mikla möguleika að styðjast við hlutbundnar þarfagreining- ar- og hönnunaraðferðir. Því verður hug- búnaðarsmíðin vandaðri og uppfyllir allar helstu gæðakröfur. ePREF ePref er lyfjaávísanakerfi fyrir lækna. Tökum sem dæmi lækni sem hefur sjúkl- ing hjá sér. Eftir að læknirinn hefur rætt við og skoðað sjúklinginn eru allar viðeig- andi upplýsingar settar í sjúklingaskrár- kerfið. Þegar læknirinn er búinn að greina sjúklinginn þarf oft að ávísa honum lyfj- um. Það gerir læknirinn (með ePref) með því að styðja á hnapp í sínu sjúklinga- skrárkerfi, óháð því kerfi sem hann vinnur í. Þá getur læknirinn ávísað eins mikið og hann vill og sér kerfið um að flokka niður á „lyfseðla“. Einnig hefur læknirinn að- gang að ítarlegum upplýsingum um öll þau lyf sem hann er að vinna með og eru þær alltaf við höndina, það þarf ekki að sækja þær sérstaklega. ePref er líka örygg- istæki sem „fylgist með“ lyfjaávísunum læknanna. Læknir fær viðvaranir þegar hann er að ávísa stærri skömmtum en meðmæltir eru. í framtíðinni verður það ekki einungis tengt við ákveðin lyf heldur líka við sjúkdómsgreininguna sem læknir- inn hefur gert. Það verður kóðað í svoköll- uðu ICD-10 sjúkdómsgreiningarkerfi. Nauðsynlegt er að tengja þetta við sjúk- dómana því að algengt er að sama lyf sé notað í mjög misstórum skömmtum eftir því hvað er verið að meðhöndla. Einnig verður í ePref öryggiskerfi sem lætur lækni vita af milliverkunum. Það lætur vita um milliverkanir sem eru á milli lyfja sem er verið að ávísa og það athugar líka önnur lyf sem sjúklingurinn notar. Þetta kerfi les líka upplýsingar um ýmis próf sem sjúklingurinn hefur farið í og eru skráðar í sjúklingaskrárkerfi læknisins. Ef t.d. hefur komið í ljós að sjúklingurinn er með lifrarbilun lætur kerfið vita þurfi að minnka skammta vegna hennar. Lyfseðl- amir verða síðan sendir rafrænt og ef eitt- hvað vantar eða eitthvað er rangt á þeim lætur kerfið vita. Ekki er hægt að senda 26 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.