Tölvumál - 01.10.2000, Síða 28

Tölvumál - 01.10.2000, Síða 28
Minning Minning: Ottó A. Michelsen OttóA. Michelsen, fyrrumforstjóri IBM á Islandi og Skrifstofuvéla hflést þ. 11. júní sl., réttra 80 ára að aldri. Hann var kjörinn heiðursfélagi í Skýrslutæknifélagi íslands árið 1988, á 20 ára afmæli félagsins, fyrir brautryðjandastörf í þágu félagsins, og upplýsingatækni á Islandi. I lögum fé- lagsins var lengi vel ákvæði sem meinaði seljendum tölvubúnaðar kjörgengi til trún- aðarstarfa á vegum félagsins, og má lík- lega kenna því um að Ottó sat þar aldrei í stjórn. Hann rækti hins vegar hlutverk óbreytts félagsmanns af kostgæfni, tók til máls á fundunt og studdi starfsemi félags- ins á margan hátt. Starfsmenn fyrirtækja hans voru löngum fjölmennir í félaginu og hann var ekki nískur á tíma þeirra til starfa í vinnuhópum á vegum félagsins, til dæm- is um stöðlun lyklaborða og stafataflna. Hann sat reyndar sjálfur í vinnuhópi um stöðlun lyklaborða. Og svo vill til að síð- asta verkefnið sem hann sinnti opinber- lega vegna upplýsingatækninnar var að sitja í undirbúningsnefnd sýningar á gagnavinnsluvélum sem sett var upp í Geysishúsinu í Reykjavík árið 1993 í til- efni af 25 ára afmæli félagsins. Asamt nokkrum fyrrverandi samherjum gróf hann upp eintök af öllum helstu vélum sem við sögu höfðu komið á unt 40 ára ferli vélrænnar gagnavinnslu hér á landi og kom þeim smekklega fyrir á sýningar- svæðinu ásamt skýringum á veggspjöld- um. Brautryðjendastörf Ottós í þágu skrif- stofutækni og tölvuvæðingar hér á landi eru mörgum kunn. Hann öðlaðist snemma óbilandi trú á því að vélræn gagnavinnsla ætti erindi inn í íslenskt atvinnulíf. Ævi- starf hans var allt mótað af þeirri hugsjón og aldrei varð honum kjarks vant eða hug- myndaflugs til að koma henni í fram- kvæmd. Hann var að öllum öðrum ólöst- uðum frumherji upplýsingabyltingarinnar á Islandi, löngu áður en það hugtak fékk merkingu í málinu. Hann átti frumkvæði að því að fá hingað til kynningar fyrstu / Ottó A. Michelsen. tölvuna, IBM 1620, árið 1963. Tölvan var framleidd í Kanada og hafði verið seld til Finnlands. Ottó tókst að semja við hlutað- eigendur um að vélin fengi að staldra við hér á landi í nokkra daga, svo íslenskum vísindamönnum gæfist færi á að kynnast afköstum slíkra tækja af eigin raun. Feng- inn var sérfræðingur frá Noregi til að setja hana upp og leiðbeina notendum. Vakti þessi heimsókn mikla athygli og ári síðar var sams konar vél komin í notkun í Há- skóla íslands. Rekja mætti fleiri dæmi um þá aðferð Ottós að láta kaupendur reyna sjálfa gæði vörunnar, áður en gengið var frá viðskipt- um, enda fór það svo að í tíð hans sem for- stjóra IBM á Islandi, voru IBM vélar næsta einráðar á íslenska markaðinum. Ottó fannst ekki nóg að selja mönnum vél- ar, hann lagði kapp á að viðskiptamenn IBM á Islandi hefðu alla bestu möguleika á að kynnast því sem hæst bar á sviði tölvutækninnar á þeim tíma, jafnt hérlend- is sem erlendis, svo menn gætu nýtt hana sem best í þágu síns fyrirtækis eða stofn- unar. 28 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.