Tölvumál - 01.12.2000, Page 17

Tölvumál - 01.12.2000, Page 17
Þráðlaus staÖarnet Raunin er sú að mest öll vinna varðandi þráðlaus staðarnet á tíðnisviðinu 5 GHz Iþað eru fleiri - sjá síðar) stefnir á hraða sem er meira en 50 Mb/s ekki lengur til og vinnan hélt áfram undir merkjum BRAN - Broadband Radio Access Network. En hvaða vinna var það? Var staðallinn ekki tilbúinn? Vissulega! En vegna mark- aðskrafta fyrir svokölluð margmiðlunar- viðföng, svo sem video og Nettengingar í farsímum, sagðist ETSI vera að bregðast við með því að teygja anga vinnunnar við HIPERLAN til að taka tillit til þráðlauss ATM. Munið þið eftir ATM? Það var mjög í tísku á þeim tíma! Þá var á dagskrá að þróa HIPERLAN fjölskyldu og fyrirséðar voru fjórar kvíslir. Upprunalega HIPERLAN fékk nafnið HIPERLAN gerð 1 og HIPERLAN gerðir 2 til 4 áttu að vera mismunandi afbrigði þráðlauss ATM fyrir bandbreið farfjar- skiptaviðföng. HIPERLAN gerð 2 er skammdrægt af- brigði ætlað sem stuðnings-aðgangstækni fyrir UMTS kerfi ásamt því að vera til einkanota fyrir þráðlaus staðarnet. Það býður upp á mikinn hraða (dæmigerður notendahraði er 25 Mb/s) við fjölda neta- tegunda þeirra á meðal kjamanet UMTS, ATM net og net byggð á IP. HIPERLAN gerð 3 fékk síðar nafnið HiperACCESS. Þetta er langdrægt af- brigði og ætlað fyrir einn-til-margra dreif- ingu, fyrir háan hraða (dæmigerður not- endahraði er 25 Mb/s) til heimila og til smærri fyrirtækja við fjölda netategunda þeirra á meðal kjamanet UMTS, ATM net og net byggð á IP. HIPERLAN gerð 4 fékk síðar heitið HiperLINK. Þetta afbrigði er fyrir mjög hraðar, skammdrægar samtengingar HIPERLAN og HiperACCESS á hraða allt að 155 Mb/s upp að 150 metra vega- lengd. Ringlaður? Kannski að tafla 1 skýri málið betur. Það er nokkur vinna í gangi við Hiper- ACCESS en mjög lítil við HiperLINK en í febrúar á árinu 2000 samþykkti ETSI BRAN kjarnatæknilýsingu staðalsins HIPERLAN gerð 2. Fylgjendur þessa staðals halda því fram að hann muni veita notendum þráðlausan aðgang að Netinu og aðgang að margmiðlun framtíðarinnar svo og fyrir rauntíma myndflutning á hraðanum 25 Mb/s með þeim möguleika að fara upp í 54 Mb/s. Raunin er sú að mest öll vinna varðandi þráðlaus staðamet á tíðnisviðinu 5 GHz (það eru fleiri - sjá síðar) stefnir á hraða sem er meira en 50 Mb/s. Dr. Andy Nix og teymi hans við háskólann í Bristol hafa smíðað tilraunabúnað á bitastraumslagi fyrir bæði HIPERLAN 1 og 2. Hann komst að þeirri niðurstöðu að með því að HIPERLAN fjölskyldan HIPERLAN gerð 1 HIPERLAN gerð2 HiperACCESS (áðurgerð 3) HiperLINK (áðurgerð 4) Lýsing Þráðlauststaðarnet Þráðlaust IP og skamm- drægt ATM Þráðlaust IP og fjar- tenging við ATM “ Samtenging á þráðlausu breiðbandi Tíðni 5 GHi 5 GH2 (til athugunar 17 GH2 Bitahraði 24 Mb/s 25 Mb/s Möguleiki á 54 Mb/s 25 Mb/s 155 Mb/s Drægni 50 til 100 metra 50 til 100 metra 5.000 metra 50 til 500 metra Tölvumá! 17

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.