Vísir - 18.12.1962, Blaðsíða 1
52 árg. — Þriðjudagur 18.
Loksins
komu
rjúpurnar
Akureyri í morgun.
Um síðustu helgi urðu Akureyr
ingar i fyrsta skipti í haust varir
við rjúpu að nokkru ráði og ýmsir
sem höfðu allt að 20 rjúpur f ferð.
Þó ekki sé belnlínis unnt að
segja að þarna sé um verulegt
rjúpnamagn að ræða, er það samt
mikil breyting frá því sem verið
hefur til þessa, því undanfarið
getur ekki heitið að rjúpur hafi
sézt. Þær skyttur sem farið hafa
í rjúpnaleit hafa flestar komið tóm
hentar til baka eða því sem næst.
Um síðustu helgi, bæði á laug-
ardag og sunnudag, fóru allmargir
Akureyringar á rjúpnaveiðar og
reyttu talsvert upp. Mest fengu
þeir sem fóru á vestanverða Öxna
dalsheiði.
Rjúpur hafa naumast sézt í verzl
unum á Akureyri, því það litla sem
skotið hefur verið, gengur manna
á meðal og eru rjúprnar þá jafn-
aðarlega seldar á 50 krónur stykk-
ið.
desember 1962. — 285. tbl.
Jólaskemmtanir byrjaðar
í dag og á morgun eru jóla-
skemmtanir skólabarna í fullum
gangi. Skólarnir hafa verið
skreyttir af nemendum í samráði
við kennara. Listamannsefnin
spreyta sig sérstaklega á erfið-
ustu viðfangsefnunum t. d. töflu
teikningunni, sem er oft framúr
skarandi. í morgun fórum við í
Vnnraclr/ilo nn hai* wnni ínlo.
skemmtanir að byrja. Átta ára
böm skemmtu sér við upplestur,
kvikmyndasýningu og söng og
dans f kringum jólatré. Stuttu
eftir að dansinn hófst, komu
borgarstjórinn í Reykjavík Geir
Hallgrímsson og frú hans ásamt
fræðslustjóra og fleirum í heim-
sókn. Jólaheimsóknir borgar-
stjóra hafa verið árlegur við-
burður í skólunum.
í Vogaskóla í morgun voru
samankomin hátt á annað hundr
að átta ára bekkja-börn, ásamt
kennurum sínum og skólastjóra,
Helga Þorlákssyni, og Ragnari
Júliussyni yfirkennara. (Ljósm.
Vísis B.G.)
VÍSIR
Hafnahreppur og Njarðvíkur■
hreppur deila um landsútsvar
Hreppamörkin um flugvallarhótelið
Þrír aðilar, það er olíufélögin,
Olíufélagið hf., Skeljungur og 01-
íuverzlun íslands hf. greiða lands-
útsvar í ár, samtals tæpar 12
milljónir, og er niðurjöfnun þess
nýlokið. Aðrir aðilar, sem koma til
með að greiða landsútsvar, svo
sem Áburðarverksmiðjan, Sements
verksmiðjan, Síldarverksmiðjur rík
isins, Landssmiðjan og fleiri, hafa
undanþágu frá að greiða þetta út-
svar í ár, en munu greiða það á
niæsta ári.
Skipting Iandsútsvars.
Fjórða hluta landsútsvars er
skipt milli samtals 144 sveitarfél-
aga, þar sem benzín og olíutank-
ar eru, í hlutfalli við sölu á hverj-
um stað, og það er þessi hluti sem
skattstofan hefir nú skipt milli
hreppsfélaganna. Af þessum fjórð
ungi landsútsvarsins kemur eðli-
lega mest í hlut Reykjavíkur, eða
1,1 millj. kr., en næst kemur Njarð
víkurhreppur með 458 þúsund.
Minnst kemur í hlut Engihlíðar-
hrepps i Húnavatnssýslu, eða 18
krónur.
Deila milii Njarðvíkur og Hafna.
Um hlut Njarðvíkurhrepps má
segja að ekki sé sopið kálið þótt
í ausuna sé komið. Flugvallarvið-
skiptin eru öll reiknuð Njarðvíkur
hreppi, en nú hefir Hafnarhreppur
gert kröfu í hluta Njarðvíkur-
hrepps af landútsvarinu á þeim
grundvelli, að þvi er bezt er vitað,
að ný afgreiðslustöð á flugvéla-
eldsneyti á Vellinum sé innan
marka Hafnahrepps. Talið er að
hreppamörkin séu um Flugvallar-
hótelið en þau munu ekki vera
sem gleggs.t suður á Miðnesheiði
enda mörgu og jafnvel flestu um-
bylt þar vegna flugvallarins og
mannvirkja þar. En hvað sem því
líður gera Hafnir sína kröfu sam
kvæmt upplýsingum frá Skattstof
unni.
Hér að framan hefir eingöngu
verið talað um fjórðung Landsút-
svarsins, sem skiptist lögum sam-
kvæmt milli sveitarfélaga eftir
veltu eða sölu í hverju sveitarfé-
lagi. Þrír hlutar landsútsvarsins
renna hins vegar í svonefndan
jöfnunarsjóð, og skiptir Félags-
málaráðuneytið honum milli
sveitafélaganna, eftir tölu íbúa í
í hverju sveitarfélagi. Þeirri skipt-
ingu er ólokið.
Heildargreiðsla Olíufélaganna:
Olíufélögin greiða í ár landsút-
svar í heild, sem hér segir: Oliu-
félagið h.f. 5.7 milljónir, 01 uverzl
un íslands h.f. 3.3 milljónir og
Olíufélagið Skeljungur h.f. 2.8
milljónir króna.
Hætt við
að kafa
Vísir skýrði frá því í gær að
sjómanns af m.s. Seley væri saknað
og ýmsar líkur sem bentu til þess
að hann hafi dottið í Reykjavikur-
höfn og drukknað.
f gær var tilraun gerð til þess að
kafa við Ægisgarð, en hætt við
það fljótlega aftur vegna sjóróts
og vegna þess hve sjórinn var
gruggugur.
Reynt verður aftur strax og að-
stæður batna. Tilgangslaust er tal
ið að slæða botninn úr því sem
komið er.
Jí/likil jólainnkaup í bænum
Við lauslega athugun virðist
svo sem sízt sé minni verzlun
í bænum fyrir jól en verið hef-
ir undanfarin ár og hefir Visir
það eftir forstöðumönnum og
deildarstjórum nokkurra meiri
háttar verzlana.
Þórarinn Andrésson, hjá
Klæðavérzlun Andrésar Andrés
sonar, kvað meiri sölu vera í
karlmannafötum núna en fyrir
jólin í fyrra og mest seljast af
enskum efnum. Einnig mikið af
innlendum efnum. Þórarinn
kvað verzlunina hafa fengið
dökk fataefni í seinna lagi að
þessu sinni.
En það hefði jafnað sig upp,
og meira en það, sökum þess að
verzlunin hefði fengið ný snið
á fötum, sem féllu mjög vel í
geð kaupenda og taldi að nýju
sniðin ættu ekki minnstan þátt
í mikilli fatasölu að þessu sinni.
Næst hringdi Vísir í Silla
og Valda og varð Sigurliði sjálf
ur fyrir svörum. „Viðskiptin
eru ágæt“, sagði hann, „meiri
en f fyrra, enda er vöruúrvalið
mikið og gott. Nóg af ávöxt-
um og yfirleitt allt eins og bezt
verður á kosið."
Og þá var það loks deildar-
stjórinn í Melabúðinni. Hann
taldi að viðskiptin væru mjög
svipuð því sem verið hefði fyr-
ir jólin undanfarin ár. Það kæmi
varla fyrir að hörgull væri á
neinni vöru og nefndi eins og
Sigurliði að nóg væri t. d. af
ávöxtum. Deildarstjórinn sagði,
að mjög hefði verið keypt af
bökunarvörum í síðustu viku,
enda myndu húsmæður hafa
hugsað sér að baka yfir helg-
ina. Menn væru enn eigi farn-
ir að kaupa jólahangikjötið og
aðrar kjötvörur að ráði, það
geymdu menn þar til í þessari
viku.
ra—L~g:—.’Mnr' i—tma1