Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 3

Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 3
Tímarit Skýrslutæknifélags íslands ð • z © Bb • w • Öryggi tölvupósts L Snorri Ingimarsson Tilraunasamfélög fyrir rafræn viðskipti Guðbjörg Björnsdóttir Rúnar Már Sverrisson Er fjarvinna að komast í tísku? SlGRÚN GUNNARSDÓTTIR Sæmundur E. Þorsteinsson 13 FS-net: háhraðanet framhaldsskóla og símenntunarstöðva Arnór Guðmundsson 18 Tungutækni: Hagkvæm lausn Þórarinn Stefánsson 21 OLED bylting i smáskjám ÁSGEIR H. ÁSGEIRSSON 24 Gegnir SlGRÚN HAUKSDÓTTIR 25 Leiðir til að auka upplýsingaöryggi - BS 7799-staðallinn Magnús Einarsson 30 Um lýðnet og veraldarvef Stefán Briem 33 Um mat á tilboðum Guðmundur Hannesson 35 „Ókeypis skór" Kjallaragrein 38 Ráðstefnur og sýningar 40 ISSN-NÚMER: 1021-724X Það er nokkuð um liðið síðan prentuð útgáfa af Tölvumálum kom síð- ast út en eftir útgáfuna í júlí á síðasta ári var hafist handa við að brey- ta vef félagsins og færa í nútímalegra horf. Jafnframt átti að auka hlut- verk Tölvumála á þeim vettvangi enda fjölmiðlun breytt og auðveldara núna en nokkru sinni að nálgast efni um upplýsingatækni. Því var tek- in sú stefna að gefa greinar út á vefnum frekar en í lotum á pappír en með því móti líður sem skemmstur tími frá því grein er tilbúin þar til hún birtist á vefnum. Nú þegar er komið nokkurt safn efnis og vefurinn mun síðan taka breytingum til að aðgengi verði sem best. Þó þetta skref hafi verið stigið verður blaðið gefið út árlega eins og það birtist hér og þá með eldra efni og nýju. Utgáfan byggir sem fyrr á þeirri fórnfúsu vinnu sem höfundar og aðrir aðstandendur eru reiðubúnir að leggja á sig fyrir félagið og markar útgáfunni þá sér- stöðu að vera vettvangur fyrir málefni upplýsingatækni á Islandi. A hverjum degi eru birtir á vef Ský úrdrættir úr helstu fréttum utan úr heimi og tekið fyrir efni sem ekki er líklegt að aðrir fjölmiðlar hér- lendis segi frá. Sumt snertir okkur hér, annað ekki eins og gengur en allt leggst á vogaskálarnar í þeim hröðu breytingum sem eiga sér stað. Ekki þarf að tíunda neitt sérstaklega hvað hefur verið heitast und- anfarið, eða þær endalausu plágur sem hafa herjað á Netinu. Breyting frá því sem áður var er að dálkahöfundar eru orðnir ugg- andi og nánast örvæntingafullir um ástandið, og allir hafa skoðun á því hvað verði að gera, og hverjum þetta sé að kenna. Skeyti nokk- urt frá netstjóra sem barst undirrituðum var eins og verið væri að lýsa yfirvofandi árás óvinaliðs, sem væri að umkringja kastalann og reyna að komast yfir múrana. Sjálfur hef ég sloppið við ormana, eins og reyndar mjög margir, en áhrifin eru Ijós þegar Netið hægir á sér í snigilhraða, sambönd rofna og tölvupóstur er annaðhvort mjög lengi á leiðinni eða lýnist alveg, semsagt, að þjónustan verður ónothæf. Er hægt að laga málið? Það er ekki gott að segja. Það þarf margt að breytast til að svo verði. Ein tækni hefur verið nokkuð í sviðsljósinu undanfarið en hún er skammstöfuð RFID. Hún gengur út á að agnarsmáir þráðlausir sendar eru settir á varning svo hægt sé að fylgjast með ferðum hans. Smátt er málið því sá minnsti er hálfur fermillimeter. Sendarnir vakna til lífs- ins þegar skanni nálgast og senda frá sér upplýsingar. Þannig getur verslun ekki bara látið RFID koma í stað strikamerkja heldur líka fylgst með staðsetningu og fjölda stykkja. Síðan kemur það að fræðilega er hægt að fylgjast endalaust með öllum ferðum þess sem er búið RFID, ef það fer framhjá skanna. Peningaseðlar eru eitt dæmi. Ymsir álíta að nú sé komin tækni sem geri í raun og veru mögulegt að fylgjast með manni hvar sem er ef öll föt og skór væru morandi í RFID-sendum. Þessi álitamál verða leyst en kannski leysir RFID líka vanda heima við þar sem ómögulegt er að muna hvar sumir hlutir eru niðurkomnir. Bara biðja tölvuna um lista yfir það sem hún sér. Einar H. Reynis Tölvumál 3

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.