Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 13

Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 13
Er fjarvinna aS komast í tísku? Er f jarvinna að komast í tísku? Sigrún Gunnarsdóttir og Sæmundur E. Þorsteinsson Á Islandi er skilgreind fjarvinna lítið þekkt í öðru formi en því að margir lengja vinnu- daginn eftir að heim er komið. S Iþróuðu ríkjunum beggja megin Atl- antshafs hefur undanfarin ár verið lögð rík áhersla á að innleiða fjar- vinnu, bæði til að leysa úr ýmsum þjóðfé- lagslegum efnum og einnig efnum sem snúa að fyrirtækjarekstrinum. Sterkar vís- bendingar eru um að fjarvinna auki sveigj- anleika starfsmanna og þar með lífgæði þeirra. Einnig hafa rannsóknir sýnt að fjar- vinna stuðlar að auknum afköstum starfs- manna, starfsánægja og tryggð aukast. Skv. yfirliti um fjarvinnu frá Evrópu- sambandinu fyrir árið 2002' hefur fólki í fjarvinnu fjölgað verulega í öllum löndum sambandsins. Fjölgunin er þó mismikil og virðist að fólk sem býr í stórum borgum (t.d. London) noti sér fjarvinnu í minni mæli en þeir sem búsettir eru í fámennari borgum. A Islandi er skilgreind fjarvinna lítið þekkt í öðru formi en því að margir lengja vinnudaginn eftir að heim er kom- ið. Fjarvinna stuðlar tvímælalaust að auknum sveigjanleika manna og eykur þægindi. Með markvissri fjarvinnu mætti ná fram enn fleiri kostum fyrir starfsmenn, vinnuveitendur og þjóðfélagið. Það er eins og íslenskt þjóðfélag hafi ekki enn vaknað til vitundar um kosti fjarvinnunn- ar, hún er ekki enn komin í tísku á íslandi. Hvað er fjarvinna ? I nágrannalöndunum er markvisst unnið að því að innleiða fjarvinnu. Öflugt rann- sóknarstarf er í gangi á þessu sviði enda léttir fjarvinna nokkuð á ýmsum þeim vandamálum sem þróuð þjóðfélög standar frammi fyrir. Sem dæmi má nefna að fjar- vinna dregur úr umferð og minnkar þar með mengun, þörf fyrir umferðarmann- virki og umferðaröngþveitið minnkar. Fjarvinna hefur nokkur birtingarform en það algengasta nú er fjarvinna heima, mynd 1. Gert er ráð fyrir að þetta form sé víkjandi vegna þess að fólk hefur ekki nægilega góðar aðstæður heima hjá sér til vinnu og vinnan rekst á ýmsa þætti sem eiga að hafa forgang á heimili. Einnig koma til lagalegir þættir eins og skattar og tryggingar þeirra sem vinna heima. Ein hugmyndin er sú að setja upp fjarvinnu- setur í úthverfum og í dreifbýli. Þangað getur fólk komið og nýtt fullkomnustu upplýsinga- og fjarskiptatækni við vinnu sína. Undanfarið hafa menn farið að nota hugtakið „e-Work“ í stað „Telework". Þetta er væntanlega til að undirstrika að fjarvinnan er hluti hins nýja rafvædda upplýsingasamfélags. Hér verður þó áfram notast við hugtakið „fjarvinna“. Fjarvinna krefst nýs hugsunarháttar á ýmsum sviðum, t.d. við • Mótun atvinnuhátta - aukin fjölbreytni og sveigjanleiki í vinnuaðferðum • Nýtingu tæknibúnaðar - ekki þarf að vera á ákveðnum vinnustað til að leysa verkefni og jafnvel ekki á ákveðnum vinnutíma Við mótun atvinnuhátta þurfa menn að vera opnir fyrir nýju formi á vinnusamn- ingum þar sem sveigjanleiki er hafður að leiðarljósi, varðandi vinnutíma, vinnustað og vinnufyrirkomulag. Þróun tækninnar er enn afar hröð. Menn þurfa að vera í stakk búnir að nýta sér þessa þróun sem best. Tækniþátturinn hefur ljóslega áhrif á mótun atvinnuhátta. Þess vegna þarf sú mótun að vera í stöðugri endurskoðun. Reynir þar mjög á starfsmannadeildir fyrirtækjanna. Nokkur form fjarvinnu • Fjarvinna heima (e. telecommuting) þegar maður vinnur heima hjá sér í stað þess að fara á vinnustað sem vinnuveit- andi leggur honum í té, eða á vinnustað hjá viðskiptavini • Fjarvinnu einyrkjar (SOHO, small office home office): Verktaki eða ein- yrki sem vinnur á svokallaðri smáskrif- stofu sem er heima hjá viðkomandi • Fjarvinnusetur (telecottages, tel- ecentres) sett upp t.d. í litlum bæjurn Tolvumál 13

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.