Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 7

Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 7
Öryggi tölvupósts Myndir þú senda leyndarmál á milli staða á þennan hátt í opnu póstkorti? hættir að reyna að afsaka sig með því að eitthvað sem þeir áttu að vera búnir að senda í tölvupósti “hljóti bara að hafa týnst á internet- inu”, það trúir þeim varla nokkur lengur. Tölvupóstur er mjög örugg- ur hvað þetta varðar, pósturinn kemst til skila nema þegar sjald- gæfar bilanir koma upp í póstþjón- um. Hvort hann er lesinn er önnur saga og ég ráðlegg öllum sem senda mikilvægan póst að biðja um stutt svar þegar erindið er móttekið. Get ég fengið einhverja pöddu inn á tölv- una mína með tölvupósti? Heldur betur, án sérstakra vírusa- varna eru notendur illa settir, því að tölvupósturinn hefur engar varnir gegn slíku. Hvert er rekstaröryggi tölvupóstsins hjá mér? Þarna fer ástandið stöðugt batnandi og er nú yfirleitt mjög gott. Fyrir 5 árurn kipptu sér fáir upp við það þótt tölvupósturinn virkaði ekki í nokkra daga. Á undraskömmum tíma erum við orðin svo háð tölvu- póstinum okkar að ef hann virkar ekki í urn klukkustund er það farið að trufla vinnu okkar svo að um munar. Nú gerum við skýlausa kröfu um hnökralausan tölvupóst. Getur einhver lesið póstinn minn? Svarið er já, gerðu einfaldlega ráð fyrir að óviðkomandi geti lesið tölvupóstinn. Fylgist „stóri bróðir“ með mér? Ég get ekki sagt til um það en ég mun útskýra hér á eftir hvernig það er auðvelt í tæknilegu tilliti. Tvö síðastnefndu atriðin ætla ég að kryfja betur, þtjú þau fyrstu verða að bíða betri tíma. Samanburður við póstkort Til að skilja öryggisvandann við tölvupóst betur skulum við ímynda okkur að við séum í sumarfríi í fjarlægu landi að skrifa póstkort. Við skrifum kveðjur á kortið og ! E«e £dí View Iniert Farmst E?SP Iooli fictioni Ueþ | OVBeply j ÖtVReply to A? j (,pForHard j & b í T j £& X í ♦ ♦ • a : ® i v - From: Snorrl Inglmeríion Sent: fim. ■4.9.200323:36 To: Snorrl Inglmeriion Sublect: Prufe 3 Hér er prufuslceyti er ollir geta lesiö. d Opið skeyli. stingum því í næsta póstkassa. Póstkortið er tekið, flokkað í póststöð og sett með óteljandi fjölda annarra póstkorta í stóran sekk. Sekkurinn er fluttur á milli landa og á áfangastað er hann tæmdur og innihaldið flokkað. Síðan labbar póstburðarmaður með kortið ásamt mörgum öðrum kortum og setur kortið þitt í póstkassann á áfanga- stað. Hingað til hefur þetta gengið hratt fyrir sig, kortið hefur verið á fleygiferð fyrir framan önnum kafið starfsfólk innan um þúsundir annara korta. Framanaf skildi meira að segja enginn nálægur tungumálið sem var skrifað á kortið. Nú liggur kortið hins vegar í póstkassa móttakandans og bíður þess að eigandinn komi heim og vitji þess. Nú er ntöguleiki fyrir nágrann- ann að laumast í póstkassann og lesa kort- ið án þess að móttakandinn hafi hugmynd um það. Myndir þú senda leyndarmál á milli staða á þennan hátt í opnu póstkorti? Ég efa það. Tölvupóstur er ósköp svipaður þessu á ýmsan hátt. Þegar ýtt er á „send“ tekur SMTP þjónustuveitan við skeytinu, sem hoppar tölvu af tölvu (eða réttara sagt beini af beini) þangað til það endar að lok- um í pósthólfi móttakandans. Þar liggur skeytið þangað til póstforrit móttakand- ans sækir það urn POP3 samskiptamátann. Til að „tryggja" að einungis eigandi pósth- ólfsins geti sótt póstinn þarf að gefa upp notendaheiti og aðgangsorð. Flest póst- fonit gera þetta sjálfvirkt fyrir notandann. Tölvumál 7

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.