Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 20
FS-net Uppsetningu netsins er að mestu lokið þó á enn eftir að tcngja útibú símenntunar- miðstöðva á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi en stefnt er að því að ljúka því verki á næstu vikum. A næstunni verður stofnað notendafélag FS-nets þar sem kerfisstjórar og tækni- menn frá framhaldsskólum og símenntun- armiðstöðvum munu hafa vettvang til að fjalla um framþróun og nýtingu netsins. Stjóm FS-netsins verður skipuð þremur fulltrúum menntamálaráðuneytis, þar af einum fulltrúa skólameistara framhalds- skóla, fulltrúa símenntunarmiðstöðva og einum frá notendafélagi. Stjórnin verður samræmingar- og ákvörðunaraðili hvað varðar alla þætti, fjárhagslega og rekstrar- lega, er snúa að FS-neti. Hún mun setja reglur um notkun og tengingar og hefur eftirlit með að þeim sé framfylgt. Þá er stjórn FS-nets samnings- og ákvörðunaraðili gagnvart þeim aðilum er áhuga hafa á að bjóða þjónustu á netinu og vilja taka þátt í þróun á netinu. Þróunarmöguleikar FS-nets eru margir og mun á næstu mánuðum vera skapaður rammi um þá þjónustu og rekstur sem þar fer fram. Netið opnar ýmsa möguleika fyr- ir virðisaukandi þjónustu fyrir mennta- stofnanir og verður lögð áhersla á að gera ólíkum aðilum kleift að bjóða þjónustu fyrir menntastofnanir á netinu. FS-netið mun vera samtengt Rannsókna- og há- skólaneti sem gerir menntastofnunum kleift að hafa fjölbreytt samskipti sín á milli og miðla texta, hljóði og mynd. Með netinu hefur náðst mikilvægur áfangi í að allar menntastofnanir sitji við sama borð í fjarskiptum og skapaður vettvangur fyrir framþróun í nýtingu upplýsingatækni í menntun. Höfundur er þróunarstjóri hjá menntamálaráðuneytinu TIL FELAGSMANNA SKYRSLUTÆKNIFELAGS ISLANDS Við bjóðum ykkur 60% afslátt af áskrift að Tölvuheimi til áramóta, alls 4 tölublöð á 1.166 krónur! Skráning í tölvupósti á heimur@heimur.is eða í síma 512 7575 rusiu græjurnar á árinu þ Alll liá td|abúnail lil n«1(|ðnHilu GAGNLEGUSTu ■ | . vefu tiir sRodáðir . Útunogn* og tonliWor ^ *r'*E^&UD i ' AurölVAN Redi VŒf v "i|icT:' %•» nmm **»«l! ssnsstss.'i’ •' w 1' nrrrj . . t'1 igtngtri auglýsingAr. Ársáskriftin er 7.290 kr • Tölvuheimur kemur út 10 sinnum á ári. heimur Heimur hf. • Borgartúni 23-105 Reykjavík • Sími: 512 7575 • Fax: 561 8646 20 lölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.