Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 18
FS-net
FS-net: háhroðanet framhaldsskóla
og símenntunarmiðstöðva
Arnór Guðmundsson
Markmiðið með
FS-netinu er að skapa
greiðar og hagkvæm-
ar fjarskiptalausnir
fyrir framhaldsskóla
og símenntunarmið-
stöðvar og tengja
þær við háskóla.
Skólar eru í fararbroddi í notkun upp-
lýsingatækni. Fartölvur, þráðlaus
net, miðlæg upplýsingakerfi, fjar-
kennsla, myndfundir, vefbundið nám,
kennslu- og námskerfi, námsefni á neti,
allt er þetta orðið hluti af umhverfi nútíma
menntastofnana. Nemendur, kennarar og
skólastjórnendur hafa líka tekið við sér og
nýta sér upplýsingalindir Internetsins í
starfi, nárni og kennslu. Kennsluhættir
hafa breyst þannig að meira er byggt á
uppgötvunamámi og sjálfstæðari vinnu-
brögðum nemenda og kennarar leggja
meiri áherslu á umræður en vísa á Netið
um staðreyndir og fyrirlestraefni. Fá-
mennir skólar eru farnir að bjóða fjöl-
breyttara námsframboð með því miðla í
fjarkennslu námskeiðum frá öðrum skól-
um. Símenntunarmiðstöðvar miðla mynd-
fundum frá háskólum og ýmsum aðilum
sem bjóða símenntun en veita nemendum
jafnframt aðgang að tölvum, neti og
annarri stoðþjónustu.
Vissulega eru skólar mislangt á veg
komnir, fara ólíkar leiðir og beita ekki
sömu aðferðum en þróun í notkun upplýs-
ingatækni hefur verið hröð á undanförnum
árum og margt bendir til þess að hún verði
enn hraðari í framtíðinni. Fjarkennsla hef-
ur vaxið hröðum skrefum og haustið 2002
stunduðu 3500 nemendur fjarnám hér á
landi. Hafði fjöldi nemenda í fjarnámi þá
nærri sexfaldast frá haustinu 1997. Þessu
umhverfi er FS-neti ætlað að þjóna.
Stefnumörkun
Uppbygging FS-netsins er þáttur í fram-
kvæmd stefnu menntamálaráðuneytisins
um rafræna menntun, Forskot til framtíð-
ar, sem sett var fram árið 2001. Þar er
kynnt það markmið að allir framhalds-
skólar, háskólar og símenntunarstöðvar
verði tengd saman með háhraðaneti.
Símenntunarmiðstöðvar sem staðsettar
eru víða um land gegna æ meira hlutverki
í þjónustu vegna fjarnáms. Þær hafa kom-
ið upp myndfundabúnaði og aðstöðu fyrir
fjamám í samvinnu við sveitarfélög víða
um land. Hefur kostnaður vegna mynd-
funda og fjarskipta hamlað eðlilegri fram-
þróun fjarnáms og bæði háskólar og sí-
menntunarmiðstöðvar þurft að takmarka
fjarkennslu vegna kostnaðar. Markmiðið
með FS-netinu er að skapa greiðar og hag-
kvæmar fjarskiptalausnir fyrir framhalds-
skóla og símenntunarmiðstöðvar og tengja
þær við háskóla. Þannig eru opnaðar nýjar
leiðir fyrir þróun fjarnáms og nýtingu
upplýsingatækni í námi og kennslu.
í maí 2001 kom út skýrsla nefndar á
vegum menntamálaráðuneytisins um fjar-
skiptaþjónustu vegna fjarkennslu. Niður-
stöður nefndarinnar voru þær að stefnt
skyldi að því að bjóða út 100 Mbps. há-
hraðanet samkvæmt IP-staðli sem tengja
ætti alla framhaldsskóla og símenntunar-
miðstöðvar. Voru tillögur nefndarinnar
byggðar á greinargerð Gísla Hjálmtýsson-
ar nú prófessors við Háskólann í Reykja-
vík. Ári síðar ákvað núverandi mennta-
málaráðherra, Tómas Ingi Olrich, að
stofna vinnuhóp til þess að undirbúa útboð
á háhraðanetinu.
Þarfir framhaldsskóla og símenntunar-
miðstöðva vegna fjarskipta voru kannaðar
og unnin kröfulýsing. Jafnframt var unnin
kostnaðaráætlun fyrir uppbyggingu nets-
ins og þjónustu.
Tæknileg útfærsla
61 staður tengist á netinu þar af 28 fram-
haldsskólar, 8 höfuðstöðvar og 25 útibú sí-
menntunarmiðstöðva sem staðsett eru víða
um land. Allir framhaldsskólar og mið-
stöðvar símenntunar tengjast netinu gegn-
um ljósleiðaratengingar með 100 Mbps
tengihraða. Útibú símenntunarstöðva
tengjast með 2 Mbps tengihraða.
Eftirfarandi mynd sýnir þessa staði og
eru 100 Mbps tengistaðir merktir með
stórum húsum en útibú símenntunarmið-
stöðva með litlum.
18
Tölvumál