Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 24
OLED: bylting í smáskjám
OLED: bylting í smáskjám
Ásgeir H. Ásgeirsson starfar hjá Hans Petersen
Nútímamaðurinn treystir á stöðugt
upplýsingaflæði, við erum mötuð
á upplýsingum allan daginn. Hér
á árum áður meðtókum við þessar upplýs-
ingar af pappír og sem hljóð en í dag erum
við stöðugt að rýna í litla og stóra skjái til
að fá upplýsingar. Hvort sem það er lófa-
tölva, úr, vasareiknir, GSM-sími, stafræn
myndavél eða tölvuskjáir þá treystum við
á að upplýsingarnar séu skýrt framsettar,
réttar og alltaf aðgengilegar.
Myndavélaframleiðendur voru fljótir að
koma auga á möguleika kristalskjáa
(LCD) í stafrænum myndavélum, notand-
inn gæti valið um að skoða myndefni í
skoðara eða á skjá fyrir myndatöku, og
eins skoðað á staðnum þær myndir sem
búið væri að taka og velja þannig og hafna
myndum til geymslu og prentunar. Hins-
vegar ráku menn sig fljótt á að skjáirnir
væru dýrir í framleiðslu, orkufrekir og
misskýrir. Hjá Kodak var sett af stað þró-
unarvinna til að bæta þessa tækni og hefur
afrakstur þeirrar vinnu litið dagsins ljós.
Organic light-emitting diode (OLED) er
heitið á nýjustu afurð Kodak og hefur
þessi tækni heldur betur slegið í gegn.
Ólikt hefðbundunni LCD-díóðu er OLED-
díóðan sjálflýsandi og þarf þar af leiðandi
enga baklýsingu. Þetta eyðir þörfmni á
fyrirferðamiklum kvikasilfurslömpum
sem eru hættulegir umhverfmu. Með því
að sleppa baklýsingunni má framleiða
skjái sem eru mun þynnri en hefbundnir
LCD-skjáir.
Hreyfimyndir eru mun skýrari með
OLED þar sem hægt er að kveikja og
slökkva á hverjum myndpunkti (pixel)
fyrir sig.
Orkuþörfin á ■
OLED er2- 10
volt sem leysir
þau vandamál
sem sköpuðust
vegna hita og rafmagnstruflana í LCD-
skjánum. Annar stór kostur við OLED er
víðara sjónarhom (160 gráður), jafnvel í
mikilli birtu. Sjónvarpið með OLED
skjánum er hægra megin.
Hvað býr að baki?
Grunnsamsetning OLED-flögunar sam-
anstendur af örþunnum lífrænum lögum
sem er staflað upp á milli gegnsæs já-
kvæðs skauts (Anode) og neikvæðs raf-
skauts úr járni (Metallic cathode). Lífrænu
lögin skiptast í: hole transport layer, em-
issive layer og electronic transport layer.
Þegar hæfilegum straumstyrk er hleypt á
flöguna endurraðast neikvæður og já-
kvæður straumur í „emissive layer“ og
myndar þannig ljós. Samsetning lífrænu
lagana og gerð straumsins eru hönnuð
með það í huga að hámarka samrunann í
„emissive layer“ og þannig hámarka þá
birtu sem út kemur.
Það eru 2 gerðir af
OLED og hægt er að
lesa frekar um þær
hér:
Active matrix:
http://www.kodak.com/US/en/corp/dis-
play/activeDisplays.jhtml
Passive matrix:
http://www.kodak.com/US/en/corp/dis-
play/passiveDi splay s .jhtml
Nú þegar má sjá OLED skjái frá Kodak
í Kodak LS 633 Easyshare myndavélinni
og bíltækjum frá Pioneer og farsímum frá
bæði Motorola og Sanyo.
24
Tölvumál