Tölvumál - 01.09.2003, Blaðsíða 28
Gegnir
Yfirfærsla gagna úr
núverandi kerfum er
stórátak sem hófst á
vordögum 2001 og
mun standa yfir til árs-
ins 2005.
Kerfið var formlega
tekið í notkun 19.
maí 2003 en þá var
yfirfærsla gagna úr
Gamla-Gegni lokið.
urinn felur í sér að ANZA tekur fulla
ábyrgð á rekstri vélbúnaðar og uppitíma
kerfisins.
Tæknileg högun
Tvær uppsetningar eru af kerfmu. Annars-
vegar keyrsluumhverfi og hinsvegar próf-
unarumhverfi. Gegnir keyrir í keyrsluum-
hverfmu en prófunarumhverfið líkir eftir
raunumhverfinu en með mun minni
vinnslugetu. Báðar uppsetningarnar nota
tvo þjóna af IBM gerð. Gagnagrunnurinn
og viðfangsforrit eru hýst á stærri þjónin-
um en vefþjónustur á þeim minni. Vélam-
ar eru af IBM pSeries gerð og keyra á
Unix stýrikerfi eða AIX5L. Gagnagmnns-
og viðfangsþjónninn fyrir keyrsluum-
hverfið er 6 örgjörva 750 Mhz RS64IV
með 6 GB innra minni. Öll gögn eru á ytri
gagnageymslu sem tengist í gegnum SAN
geymslukerfi. Aðrar vélar eru af minni
gerð. Vélamar em hýstar hjá ANZA hf. á
Akureyri og eru tengdar um Internetið
með 100 Mbps tengingu Landssímans og
til vara er 10 Mbps varaleið hjá Línu.net.
Sjá netyfirlitsmynd Gegnis.
Innleiðing
A Islandi hafa síðastliðinn áratug verið
rekin tvö stór bókasafnskerfi/samskrár,
Gamli-Gegnir og Fengur. Auk þessara
kerfa eru nokkur minni kerfi í notkun í
landinu.
Eftirtalin kerfi eru/voru í notkun hér-
lendis. Yfirfærsla gagna og innleiðing
bókasafnanna byggir á núverandi kerfum:
1. Gamli-Gegnir byggist á Libertas hug-
búnaði frá SLS í Englandi. Auk Lands-
bókasafns notuðu 10 önnurlfáskóla-,
rannsóknar- og stofnanasöfn kerfið.
Gamli-Gegnir samanstóð af þremur
kerfum;
a. Gegnir var bókasafnskerfi 11 bóka-
safna, þjóðbókaskrá og hýsti ýmsar
samskrár eins og t.d. samskrá um er-
lend tímarit.
b. Greinir var kerfi þar sem skráðar
vora tímaritsgreinar úr völdum ís-
lenskum tímaritum og greinar um Is-
land og íslendinga í erlendum tíma-
ritum.
c. Gelmir var handritaskrá Landsbóka-
safns íslands - Háskólabókasafns.
2. Fengur - Skýrr hf. rekur bókasafns-
kerfið Feng fyrir Borgarbókasafn
Reykjavíkur og um 70 önnur almenn-
ings-, skóla- og rannsóknarbókasöfn.
Fengur notar Dobis/Libis hugbúnað frá
Elias í Belgíu.
3. Mikromarc er norskt bókasafnskerfi
sem notað er í u.þ.b. 30 söfnum.
4. Bókver er notað í 3 stærri almennings-
bókasöfnum landsins. Þetta kerfi er
hannað og þróað hérlendis.
5. Metrabók er íslenskt bókasafnskerfi
sem notað er í mörgum smærri söfnum
og munu vera um áttatíu uppsetningar í
notkun.Hönnun og umsjón með kerfinu
hefur Prím ehf.
6. Embla er ástralskt kerfi (Alice) sem
notað er í nokkrum smærri söfnum.
Yfirfærsla gagna úr núverandi kerfum
er stórátak sem hófst á vordögum 2001 og
mun standa yfir til ársins 2005. Eins og
fyrr sagði byggir Aleph500 kerfið á ríkj-
andi stöðlum. Mikilvægasti staðall bóka-
safna er MARC (Machine Readable Cata-
loging). MARC-staðallinn tryggir staðl-
aða skráningu bókfræðiupplýsinga sem
stuðlar að samræmdum heimtum úr leitum
og gerir jafnframt kleift að sækja færslur í
önnur bókasafnskerfi. Eitt stærsta verkefni
þessarar innleiðingar er að flytja upplýs-
ingar úr 7 ólíkum kerfum sem nota 7 ólfk
MARC-snið í nýjan og ríkjandi MARC
staðal sem nefnist MARC21 eða US-
MARC.
Gögn bókasafnanna verða yfirfærð eftir
stærð núverandi kerfa. Stærð kerfanna er
mæld í fjölda titla. Byrjað var á stærsta
kerfmu, Gamla-Gegni, og síðan verða
kerfin tekin inn eftir stærð eða í þeirri röð
sem er lýst hér að ofan. Kerfið var form-
lega tekið í notkun 19. maí 2003 en þá var
yfirfærsla gagna úr Gamla-Gegni lokið.
Núna er unnið að yfirfærslu Fengssafna
og lýkur henni um nk. áramót. Að því
loknu verða kerfin tekin í röð með þeirri
undantekningu að eftir yfirfærslu Fengs
munu koma inn söfn sem eru án kerfis eða
söfn sem kjósa að byrja upp á nýtt.. Yfir-
færslu úr einu kerfi verður að vera að fullu
lokið áður en vinna við næsta kerfi hefst.
Aætlað er að innleiðingu kerfisins ljúki
árið 2005.
28
Tölvumál