Tölvumál - 01.09.2003, Page 23
Tungutækni: Hagkvæm lausn
Einungis hugaraflið tak-
markar notagildi tungu-
tækni. Fyrirtækjum gefst
með þessari tækni kær-
komið tækifæri til að
breikka þjónustusvið sitt,
koma efni og upplýsing-
um á framfæri á nýjan
hátt sem hefði ekki verið
mögulegur áður
Algeng keyrsluumhverfi eru því með
talgreini frá einum framleiðanda, talgervil
frá öðrum og talþjón frá þeim þriðja.
Lausnimar (e. Applications) koma síðan
frá mörgum mismunandi aðilum, enda
þurfa þeir að hafa þekkingu á tungumálinu
sem nota á, geta unnið með þeim sem sér-
þekkingu hafa á vandamálinu sem leysa
skal osfrv.
Get ég eignast svona talviðmót?
Kostnaður við gerð talviðmóta er skiljan-
lega mismunandi eftir umfangi þeirra og
tengingum við önnur kerfi. Samkvæmt
upplýsingum Speech Technology Mag-
azine (september/október tölublað 2003),
þá má reikna með eftirfarandi kostnaði og
umfangi (Sjá töflu 1).
Eitt af markmiðum með gerð Hex
Agent Server var að rninnka þetta umfang
verulega. Samanburðarprófanir hafa sýnt
fram á að það markmið náðist og má gera
ráð fyrir að kostnaður við innleiðslu tal-
viðmóta minnki verulega, eða um 75-80%
hið minnsta (sjá töflu 2).
Það á því að vera á færi fyrirtækja af
öllum stærðum að koma sér upp talvið-
móti og má í langflestum tilfellum gera
ráð fyrir að fjárfestingin borgi sig á um
það bil einu ári.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hex - hugbúnaðar. Netfang: tofi@hex.is
Taflal - Umfang talviðmóta í tíma og fjármunum erlendis.
Sérsmíðuð lausn Almenn lausn
Meðalkostnaður innleiðslu $500 þúsund til $1 milljón $100-300 þúsund
Meðaltími innleiðslu 6-12 mánuðir 2-4 mánuðir
Meðalviðhaldskostnaður 3 ára $500 þúsund $100 þúsund
Tafla 2 - Umfang talviðmóta tíma og fjármunum hjá Hex Hugbúnaði
Sérsmíðuð lausn Almenn lausn
Meðalkostnaður innleiðslu Kr. 1.5-6 milljónir Kr. 100-500 þúsund
Meðaltími innleiðslu 6-12 vikur 2-4 vikur
Meðalviðhaldskostnaður 3 ára Kr. 750 þúsund Kr. 200 þúsund
Tölvumál
23