Tölvumál - 01.10.2004, Síða 24
HagfræcSi upplýsingaöryggis
Hagfræði upplýsingaöryggis
Hvað borgar sig að gera í öryggismálum?
Þorvarður Kári Ólafsson
Grein þessi byggir í meginatriðum á
M.S. ritgerð höfundarins[l] um
stjórnun upplýsingaöryggis í
skipulagsheildum. Hægt er að líta á við-
fangsefnið stjómun upplýsingaöryggis
(ISM, Information Security Management)
á ensku) sem skörun þriggja fagsviða. I
fyrsta lagi fræðanna um stjómun í skipu-
lagsheildum, í öðru lagi fræða um upplýs-
ingar, gögn og þekkingu og í þriðja lagi
fræða um öryggi, áhættu og óvissu.
Myndin sýnir þessa skörun og dregur jafn-
framt fram hliðarsviðin þrjú þar sem tvö
fagsviðanna þriggja skarast. Upplýsingar
og öryggi skarast í þeim fræðum sem
fjalla um aðgengi, réttleika og leynd (CIA,
Confidentiality Integrity Availabity) á
ensku), stjórnun og upplýsingar skarast í
fræðunum um stjórnun upplýsinga og
þekkingar, en stjórnun og öryggi skarast í
fræðunum um öryggisvernd, áhættu og
óvissustjómun. Hér er ekki rúm til að kafa
djúpt í hugmyndir manna á hverju
fagsviði, en látið nægja að skýra helstu
fræðileg atriði sem tengjast niðurstöðun-
um, áður en við snúum okkur að raunhluta
rannsóknarinnar.
Stjórnun ó Hmum upplýsingatækni og
óvissu
Gmndvallarhugmyndir manna um við-
skiptalífið og upplýsingakerfi hafa tekið
miklum stakkaskiptum síðustu áratugina.
Hin hraða þróun tækninnar, enn hraðari
breytingar í viðskiptaumhverfmu og tak-
markanir á rökhugsun mannsins gera
ókleift að laga upplýsingatæknina að við-
skiptastefnu fyrirtækis og hagnýta hana
með rökrænum hætti. Hugmyndir um for-
skrifaðan tilgang viðskipta og upplýsinga-
kerfa em því á undanhaldi. Skilningur er
að aukast á æðri þroskastigum stjórnunar
á tímum upplýsingatækni, og dugar þá
ekki að tala um samþætta innri hagræð-
ingu eða markaðsdrifna árangursstjómun.
Venkatraman2 kallar æðstu þroskastigin
endurhögun viðskiptaneta og enduraf-
mörkun viðskipta. Normann3 segir að end-
urskipan verði á verðmætasköpun, þegar
framleiðslu- og þjónustueiningarnar fara
að starfa sjálfstætt og verðmætasköpunin
felst í því að raða þeim rétt saman hverju
sinni, í stað þess að binda þær saman í
ósveigjanlegt kerfi eins og gert var í iðn-
fyrirtækjum. Þannig fæst ný vara, og fyrir-
tæki sem kann að nýta sér þessa aðferð
þarf ekki endilega að hafa allar einingarn-
ar eða heildarlausnirnar innan sinna vé-
banda. Nóg er að geta stýrt þeim í réttan
farveg og gera sér mat úr þeirri verðmæta-
sköpun sem þá verður. Ný tækni gerir
mönnum þannig kleift að skapa meiri
verðmæti og á fleiri vegu, með nýjum við-
skiptamynstrum, sem byggja á þvf að
virkja viðskiptavininn og viðskiptasamfé-
lög og setja saman það sem Normann kall-
ar verðmætaglæsihóp (value con-
stellation). Sýna má myndrænt hvernig
verðmætaglæsihópar brjóta niður hefð-
bundnar hugmyndir manna um samkeppni
og gera kleift að þjóna viðskiptavinum á
sveigjanlegri hátt.
Þótt atvinnugreinar séu komnar mis-
langt á þeiiri þróunarbraut sem lýst er hér
24
Tölvumál