Tölvumál - 01.10.2004, Side 41
Orðanefnd
Frá Orðanefnd
fjórða útgáfa Tölvuorðasafns væntanlegt á næsta ári
Sigrún Helgadóttir
Eins og lesendur Tölvumála vita hef-
ur starfað orðanefnd á vegum fé-
lagsins frá stofnun þess. Orða-
nefndin hefur unnið að þremur útgáfum
Tölvuorðasafns, þriðja og síðasta útgáfan
var tíunda ritið í Ritröð íslenskrar mál-
nefndar árið 1998. Tölvuorðasafnið er
einnig aðgengilegt í orðabanka íslenskrar
málstöðvar sem nálgast má í gegnum
vefsetur málstöðvarinnar
(http://www.ismal.hi.is). En orðanefndin
hefur ekki setið auðum höndum síðan
þriðja útgáfan kom út. Síðan í byrjun árs
2003 hefur Stefán Briem unnið sem rit-
stjóri með nefndinni að því að endurskoða
Tölvuorðasafnið. Orðanefndin hefur notið
styrkja frá Norrænu málráði, menntamála-
ráðuneytinu, Skýrslutæknifélaginu, Esso,
Menningarsjóði Islandsbanka, VKS og
Anza til þess að greiða kostnað við vinnu
Stefáns.
Afrakstur af vinnu nefndarinnar og
Stefáns er handrit að fjórðu útgáfu Tölvu-
orðasafns. í því eru um 7.500 íslensk heiti
og um 8.400 ensk heiti á um 6.500 hug-
tökum. Hugtökum hefur fjölgað um 1.500
frá þriðju útgáfu. Nefndarmenn lesa nú
handritið og nefndin mun fara yfir athuga-
semdir ásamt ritstjóra í október og nóvem-
ber. Ráðgert er að fjórða útgáfan komi út í
orðabanka íslenskrar málstöðvar þegar
lokið hefur verið við að endurskoða hug-
búnað bankans. Orðanefndin hefur líka
mikinn áhuga á að fjórða útgáfa komi út
sem bók. Nú er verið að kanna hvort unnt
sé að ftnna útgefanda að slíku verki. Ef
það tekst mun bókin sennilega verða gefin
út í byrjun ársins 2005.
Orðanefndin og stjórn Skýrslutæknifé-
lagsins reyna nú að finna leiðir til þess að
afla fjár til þess að greiða fyrir frágang
handrits og útgáfu þess. Lesendur sem
gætu veitt liðsinni eru hvattir til þess að
hafa samband við skrifstofu Skýrslutækni-
félagsins eða formann orðanefndar. Orða-
nefndin hvetur einnig lesendur Tölvumála
til þess að kynna sér vinnuskjal nefndar-
innar og koma athugasemdum á framfæri.
Vinnuskjalið er aðgengilegt á vefsetrinu
http://www.ismal.hi.is/to/.
Hafa má samband við formann orða-
nefndar um tölvupóst (sigrun.h@sim-
net.is) eða í síma (hs: 567 7575, gsm: 864
7575). Á vefsetri nefndarinnar má finna
upplýsingar um starfsemi nefndarinnar og
þar eru einnig aðgengilegir þeir pistlar
sem ritstjórinn hefur skrifað á undanförn-
um árum, þar á meðal „Orð vikunnar“
sem birtist vikulega á vefsetri Skýrslu-
tæknifélagsins um skeið.
Tölvutækni ó órinu 2004
ÍC
Tölvumál
41