Vísir - 14.01.1963, Blaðsíða 16
Mánudagur 14. janúar 1963.
Mynd þessa tók I. M. ljósmyndari Vísis af Simon Gabor og fjölskyldu
við komuna til Reykjavíkur. Litla stúlkan sem stendur fyrir framan er
Ragnheiður dóttir Reynis Sigurðssonar formanns Í.R.. Hún afhenti
þeim blóm við komuna.
„EG CR ENCINN
FLÓTTAMADUR"
Sagði Símon Gabor, — en íékk
leyffi til að fara úr Ungverjalandi
með alla fjölskylduna
Á laugardaginn kom
hinn kunni ungverski í-
þróttaþjálfari Simon
Gabor til íslands með
Flugfélagsvél frá Kaup-
mannahöfn og var fjöl-
skylda hans með hon-
um. Allmargir blaða-
menn voru þar saman
komnir til að tala við
hann þar sem eitt
Rey kj a víkurblaðanna
hafði skýrt frá því að
honum hefði tekizt að
flýja land og myndi nú
leita hælis með fjöl-
skyldu sinni á íslandi.
IV2 árs leyfi.
Þegar Vísir átti tal við Sim-
on, bar hann þessa frétt hins
végar algerlega til baka og
sagði að hún væri óheppileg í
mesta máta. — Ég hef fengið
leyfi hjá ungverskum stjómar-
völdum til að fara til Islands f
l]/2 ár og þetta leyfi var gefið
aðallega þar sem tilmæli höfðu
komið um það frá fsl. Frjáls-
íþróttaráðinu að ég annaðist
þjálfun íslenzkra íþróttamanna
fyrir Olympíuleikana í Tokyo.
— Hvernig getur þá staðið
á þessum misskilningi?
— Ég get ekki sagt um það,
en mig grunar að stjórn IR hafi
fengið þessa hugmynd af því
hve skyndilega ég kom til Kaup
mannahafnar. Og þar sem ég
var vegálaus þar kom ég skeyti
til þeirra um að þeir hjálpuðu
Frh. á bls 5.
FRÆÐIKENNINGINRONG
sogði Áki Jokobsson, um kommúnismann
Kommúnisminn í dag
er sama og útþenslu-
stefna Sovétríkjanna,
sagði Áki Jakobsson
fyrrv. ráðherra á Varð-
bergsfundi á laugardag-
inn. Áki rakti síðan í
glöggu máli ofbeldisað-
gerðir Sovétríkjanna á
alþjóðavettvangi og
benti á hættuna sem staf
ar af yfirgangi kommún
ista í hinum nýju ríkjum
Afríku og Asíu.
Hann fluttl fyrirlestur sinn á
hádegisverðarfundi Varðbergs
og greindi þar einnig frá eigin
reynslu af vinnubrögðum komm
únista hér & landi, en hann var
ráðherra kommúnista eftir styrj
öldina sem kunnugt er og kann
þvf manna bezt skil á vinnu-
brögðum flokksins. Áki benti á
hvemig rússneskir kommúnistar
hefðu brotizt tii valda eftir
styrjöldina f Austur Evrópuríkj
unum með tilstyrk Rauða hers
ins og héldu völdum þar einung
is í skjóli hans. ísienzkir komm
únistar væru nákvæmlega sama
manntegundin og flokksbræður
þeirra austan tjalds. Þeir myndu
fara nákvæmlega eins að og þeir
ef tækifæri fengist.
Áki benti á að verkefni lýð-
ræðisþjóðanna væri að hjálpa
hinum nýju ríkjum. Þar væri
nokkra gróðrarstíu að finna fyr-
ir kommúnismann og koma yrði
í veg fyrir að hann festi þar
rætur. Höfuðatriði væri að unnt
væri að byggja þar upp lýðræð-
islegt stjórnarfar, án kommún-
iskrar íhlutunar.
Eftir ræðu Áka svaraði hann
nokkrum fyrirspurnum. Var
hann m. a. að því spurður hvort
hin kommúniska fræðikenning
væri röng eða það væri aðeins
framkvæmd stefnunnar sem
hefði mistekist. Því svaraði Áki
að kenningin væri röng.
Þá var hann að því spurður
Framh. á bls. 5.
Nýr sýslumaður
SkuMellingu
Á Iaugardag skipaði dómsmála-
ráðherra Einar Oddsson, borgar-
dómarafulltrúa, til að vera sýslu-
maður f Skaftafeiissýslu frá 1.
febrúar n.k. að telja.
Einar er fæddur 22. apríl 1931
Héraðsvötn og Laxá
flæða yfír þjóðvegi
Nokkur brögð eru orðin að því I
vegna frostanna að vötn norðan
lands hafi stíflazt af klaka eða j
bólgnað upp vegna frostanna og I
hlaupið úr farvegum, jafnvel yfir I
þjóðvegi. Héraðsvötn í Skagafirði !
hafa flætt yfir þjóðveginn á þó j
nokkrum kafla suðvestur af Ökr- j
um í Blönduhlið, hjá Höskulds-
stöðum og fleiri bæjum í Akra-
torfunni. Var horfið að því ráði í
gær að merkja akbraut yfir tún á
tveimur bæjum, en þar er einnig
nokkurt vatn og taldi vegamála-
stjórnin aðeins fært þarna um
jeppum og stórum bílum.
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu
hefur einnig flætt yfir þjóðveg-
inn hjá Knútsstöðum í Aðaldal
og lokað honum svo, að nokkrir
bæir eru ekki í akvegasambandi
eins og er, Sandabæir og fleiri. 1
geer var verið að reyna að sprengja
rás í klakastíflu í ánni, en ekki
var vitað hvort sú aðgerð myndi
nægja til að veita vatninu aftur
i af veginum hjá Knútsstöðum.
44 brýr byggðar 1962
>•
Árið 1962 voru fullgerðar 44
brýr hér á landi samtals um
900 metrar að lengd og munu
þær hafa kostað 28—29 mill-
jónir króna. Brýr þessar eru frá
4 metrum upp í 138 metra að
lengd, Iengst er brúin á Fjallsá
í Öræfum, 138 pietrar.
Dýrasta brúin mun vera yfir
Gljúfurá í Borgarfirði, en þar
er tvöföld akbraut og brúin 63
metra löng. Þessi brú er 7
metra breið, eins og breiðustu
akvegir, og er aðeins ein stór-
brú á landinu jafnbreið, það er
brúin á Ytri-Rangá.
í Flatartungu í Skagafirði, sonur
Odds bónda Einarssonar og Sig-
ríðar Gunnarsdóttur.
Einar varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1953,
cand. juris. árið 1959, héraðsdóms-
lögmaður í febrúar s.l.
Að loknu embættisprófi starf-
aði Einar fyrst hjá Útflutnings-
sjóði, en gerðist fulltrúi borgar-
dómarans í Reykjavík, síðar yfir-
borgardómara, árið 1960, og hefur
starfað þar síðan. Eiginkona Ein-
ars er Halla Þorbjörnsdóttir.
Mislingar í rénum
Mislingar eru í rénum í bænum,
að því er Bjöm L. Jónsson, aðstoö-
arlæknir borgarlæknis, tjáði Vísi
Vart varð allmargra tilfella af
mislingum í desember, en þeim fer
fækkandi aftur, að því er skýrslur
lækna sýna. Skarlatssótt hefir eitt-
hvað verið að stinga sér niður, en
ekki hefir verið neinn farsóttar-
bragur á henni. Annars ber mest á
kvefi og hálsbólgu í bænum um
þessar mundir, eins og allan ársins
hring,
Bjargað úr höfninni
í fyrrinótt féll norskur sjómað-
ur í höfnina, en var bjargað- í
tæka tíð.
Þetta var skipverji af norska
flutningaskipinu Annie ,sem hér
er statt. Menn á m.b. Sigfúsi
Bergmann, sem lá þar skammt
frá, sáu þegar óhappið skeði og
gátu komið manninum til hjálpar
og náðu honum upp.
Siðdegis í gær fannst maður
liggjandi á götu á Laugarnesvegi
og var sá ósjálfbjarga. Lögregl-
unni var gert aðvart um hann
og var hann fluttur í slysavarð-
stofuna til rannsóknar og hjúkr-
unar.