Vísir - 22.02.1963, Side 5
V f SIR . Föstudagur 22. febrúar 1963.
5
íslandsvinafélagið í Hamborg
O. Dreyer-Eimbcke í heimsókn
Undanfarna daga hefur formað-
ur íslandsvinafélagsins í Hamborg,
Oswald Dreyer-Eimbcke, dvalizt
hér á landi. Dreyer-Eimbcke hefur
unnið mikið starf innan féiagsins
að kynningu á íslandi og málefn-
um íslands í Þýzkalandi, og blaða-
maður Vísis spurði hann frétta frá
Hamborg, er hann hitti hann í gær.
Hér á landi hefur Dreyer-Eimbc-
ke verið í nokkra daga til við-
ræðna við stjórn og forstjóra Eim-
skips, en faðir hans er umboðs-
maður Eimskips í Hamborg og ís-
lenzkur konsúll þar í borg. Reka
þe;r feðgar mikið skipamiðlunar-
firrna í Hamborg og sigla skip
þeirra um flest heimshöfin, en þö
aðallega til Suður-Ameríku.
Fjölmargir íslendingar hafa haft
viðskipti við Dreyer-Eimbcke firm-
að í Hamborg og notið þar góðrar
fyrirgreiðslu.
Islandsvinafélagið í Hamborg er
fjölmennt og starfsemi þess er fjöl-
þætt. Meðlimimir eru nær ein-
göngu Þjóðverjar. Félagið gefur út
mánaðarlegt fréttabréf ,sem Os-
wald Dreyer-Eimbcke ritstýrir og
er þar getið helztu atburða, sem
gerzt hafa hér heima. Er bréfið
sent öllum féiagsmönnum og all
mörgum öðrum og er hin bezta
fréttaþjónusta um íslenzk efni. —
Fyrr f vetur efndi félagið til sýn-
O. Dreyer-Eimbcke.
ingar á íslenzkri myndlist. Var hún
haldin í samkomuhúsi BP í Ham-
borg. Var aðsókn góð og ýmislegt
um sýninguna ritað í þýzkum
Aukaaðild —
Framh af 1. síðu.
og þess vegna þyrftu ís-
lendingar ekki að óttast
slíkan samning.
★ Því mun foringjum
framsóknarflokksins
reynast erfitt að neita
því að þeir hafi talið
aukaaðild að bandalag-
inu fyllilega koma til
greina. Það gerði ríkis-
stjórnin einnig. En sá er
munurinn, að nú reyna
þessir framsóknarleið-
togar að sverja það af
sér að þeir hafi nokkru
sinni hugleitt hana. En
slík brögð duga hér ekki
til. Þeirra eigin orð
sanna að þeir voru ekki
síður meðmæltir auka-
aðild að EBE en fulltrú-
ar stjórnarflokkanna.
Norðurlandaróð —-
Framhald af bls. 16.
að ræða, og í rauninni einnig um
það að ræða, að leiðtogar þjóð-
anna geri sér liósa grein fyrir nauð
syninni á að efla ástöði. hins frjálsa
frjáls manns f heiminum.
Ráðherrann lagði meginá-
herzlu á, sem að ofan getur,
samstarfið við Norðurlönd, en
Vestur-Evrópa væri stærsta
markaðssvæðið fyrir ísl. afurð-
ir, en vegr.a einhliða atvinnu-
Iífs íslands gæti full aðild ís-
Iands að '7.fnah.agsbandalagi Ev-
rópu ekki komið til greina.
Að loknum ítarlegum umræðum
var samþykkt tillaga efnahagsmála
nefndar um það samstarf Norður-
landa um aukin viðskipti, sem í upp
hafi þessarar fréttar var frá greint,
að því er varðar ekki aðeins iði-
aðarvörur, heldur og landbúnaðar-
og sjávarafurðir. Þá beinir Norður-
Iandaráð þeim tilmælum til ríkis-
stjórna allra Norðurlanda, að þegar
efnahagsmál séu til umræðu og
ákvörðunar, hafi hver þeirra hags-
muni þeirra allra í huga.
Við umræðumar lagði Gunder-
sen viðskiptamálaráðherra Noregs
sérstaka áherzlu á, að Norðmönn-
um væri nauðsyn að ræða við
Breta og aðrar EFTAþjóðir um
markað fyrir norskar sjávarafurðir,
en sjávarútgerðin væri höfuðat-
vinnuvegur Noregs.
Svala syngur —
Framhald af bls. 16.
ið þar eins lengi og hana langaði
til. Hvemig er það Svala, langar
þig ekki út aftur?
Tja, ég veit ekki hvað skal segja.
Að vissu leyti langar mig auðvitað
út, en núverandi söngkennari minn,
María Markan, er svo framúrskar-
andi góð, að ég held þess gerist
engin þörf strax. Hvernig lög finnst
þér skemmtilegast að syngja? Þetta
er nokkuð strembin spurning. Mér
finnst mjög gaman að syngja ó-
perulög, og svo einnig negra-
söngva, það er dásamlegt að syngja
þá. Er annars nokkuð, sem þú vild-
ir segja að Iokum? Eiginlega ekki,
og þó, ég hlakka voða mikið til að
syngja, þó ég kvíði jafnframt ör-
lítið fyrir. Ég vona bara að fólk-
inu líki við mig. Við kveðjum nú
Svölu og hugsum gott til að fá að
heyra í henni á „ballinu“.
Leikbún'ngar —
Framhald -.1 bls. 1.
verðskuldar athygli Þarna koma
fram 14 leikendur, allt ungt fólk,
flest leiklistarnemendur, sem ekki
hafa sézt á leiksviði áður og engir '
vanir leikarar í hópnum. Sýndir
verða kaflar úr þremur leikritum
Shakespeare, sem aldrei hafa verið
sett á svið hér á landi. úr Romeo
og Júlíu og Hinriki fjórða. þýð-
ingar Helga Hálfdánarsonar, og
Macbeth f býðingu Matthíasar
Jochumssonar.
Vísir hefur fregnað, að Bandalag
blöðurn Þá mun félagið á næst-
unni gangast fyrir sýningu íslands
kvikmynda fyrir þýzka ferðaskrif-
stofumenn og aðra þá, sem áhuga
hafa á ferðalögum til íslands.
Þannig reynir félagið að kynna
land og þjóð á sem víðtækastan
hátt í Þýzkalandi. Segir Dreyer-
Eimbcke að í Hamborg sé lifandi
áhugi á málefnum Islands, enda
hefur borgin lengi átt mikil við-
skipti við ísland og þangað kem-
ur á hverju ári fjöldi Islendinga
ýmissa erinda.
Dreyer-Eimbcke fór af landi burt
í morgun.
íslenzkra leikfélaga hafi oft átt í
erfiðleikum með að fá lánaða leik-
búninga hjá Þjóðleikhúsinu handa
leikfélögum úti á landi, en sam-
kvæmt lögum ber Þjóðleikhúsinu
að styðja leiklistarstarfsemi í land-
inu. Upphaflega áttu leikfélögin
að greiða 50 krónur í leigu fyrir
búning á kvöldi, en það reyndist
vera svo hátt gjald, að full inn-
heimta þess kom aldrei til greina.
í fyrravetur tók alveg fyrir lán
á leikbúningum frá Þjóðleikhúsinu
til bandalagsins, utan hvað lánaðir
munu hafa verið búningar upp á
Akranes, þegar íslandsklukkan var
sýnd þar. í vetur náðist aftur sam-
komulag við Þjóðleikhúsið um lán
á búningum til leikfélaga, og er
200 króna leiga á hverjum búningi,
hvort sem sýningar eru fleiri eða
færri, en flest leikfélaganna hafa
aðeins fáar sýningar.
Þess má að lokum geta í sam-
bandi við þessa frétt, að leikfélög
úti á landi, sem fá lánaðan leikara
frá Þjóðleikhúsinu til þess að setja
á svið leikrit hjá sér, þurfa að
greiða Þjóðleikhúsinu sérstakt
gjald fyrir mannslánið og greiða
hinum sama manni fullt kaup að
auki.
íþróttir
.VV.VAVAW.V.V.V.W.V.V.VW.V.V.V.V.V.V.VV.V.V
Tónlist
Steinhjartað slær
Framhald af bls. 2.
„taktíska“ þjálfun en Iandsliðið
og öll lið á íslandi og það fyrst
og fremst lyftir liðinu í það sæti
sem það hefur nú í handknatt-
Ieik hjá okkur.
Handknattleikslið okkar bæði
í kvenna- og karlaflokkum horfa
nú í átt til stórra verkefna.
Norðurlandamót kvenna verður
haldið hér á iandi næsta sumar,
en kvennaflokkarnir aldrei lé-
legri en einmitt nú. Eitthvað
verður að gera til að vega upp
á móti þessu.
— jbp —
Schneiderhan —
Framhald af bls. 16.
fóníuhljómsveit Islands, fiðlu-
konsert Mozarts í kvöld og fiðlu
konsert Beethovens á morgun.
— Er þetta eftirlætisverk yð-
ar?
— Ég á engin eftirlætisverk. !
góði minn segir Schneiderhan
— Nei, honum bvkir bara dá-
samlega "aman að spila, sama
hvaða gott verk það er, bætir
eiginkona hans, söngkonan Irm-
gard Seefried við, en hún var
komin á flugvöllinn til að taka
á móti manni sínum.
— Eigið þér annað konsert-
ferðalag fyrir höndum? spyr
fréttamaður, en Schneiderhan
lýkur ferðalagi sínu um Norð-
urlöm-' með heirrr 'kninni hine
að.
— Já, ég er alltaf að ferðast.
Um allan heim. Það er mikið
Ríkisútvarpið og Sinfóníu-
hljómsveit íslands hóuðu sam-
an þúsund Reykvíkingum í Sam
komuhús Háskólans á miðviku-
dagskvöldið var. Tilefnið var
að hingað voru komin Irmgard
Seefried söngkona og Erik
Werba píanóleikari frá Austur-
ríki, sem hugsuðu sér að
skemmta fólki með söng og
hljóðfæraslætti ef veður og
vindar leyfðu. Áheyrendur létu
ekki á sér standa, enda um
heimsfrægar manneskjur að
ræða, og lífsþróttur almennings
allur að aukast með hækkandi
sól. Og ekki held ég að neinn
hafi orðið fyrir teljandi von-
brigðum, ef marka má af lófa-
taki og öðrum fagnaðarlátum
samkomunnar. Var hér framinn
einhver hugþekkasti ljóðlaga-
söngur, sem okkur útnesja-
mönnum hefur gefizt kostur að
að hlýða um árabil. Á efnis-
skránni voru eingöngu verk eft-
ir þýzk og austurísk 19. aldar-
tónskáld, m. a. ljúflingana
Schubert og Schumann, þær
skrautfjaðrir rómantíkunnar,
sem aldrei fellur á blettur né
hrukka. Að öðrum ólöstuðum,
er Schubert þó sá ljóðlagasmið-
ur, sem er undirrituðum ávallt
efst í huga. Tilgerðarlausari og
náttúrulegri tónsmíð getur ekki
um í gjörvallri músíksögu þjóða
norðan Alpafjalla, og eigum við
íslendingar ekkert til saman-
burðar nema dýrustu perluna,
sjálfan Jónas Hallgrímsson.
Sönglög hans fjögur stóðu í
upphafi hljómleikanna, og voru
flutt í þeim anda sem bezt hæf-
ir: án belgings og leikaraskap-
ar af nokkru tagi. En minnis-
stæðastur held ég mörgum verði
flutningur þeirra Seefried og
Werba á lagaflokknum Frauen-
liebe und Leben eftir Schu-
mann. Sá tregablandni ástríðu-
hiti, sem geislar af þessu ynd-
islega verki, hlýtur að fá jafn-
vel harðsoðnustu steinhjörtu til
að slá hraðar, sé hann borinn
fram af jafnöruggri tilfinningu
og smekkvísi, sem raun bar
vitni að þessu sinni. Lög Brahms
og þó frekar R. Strauss, sem
sungin voru að Ioknu hléi, geta
engan veginn staðizt samanburð
við verk fyrrtaldra meistara. En
ekki eru þau sosum nein hráka-
smíði, og í meðförum slíkra
listamanna ætti enginn að þurfa
að kvarta yfir þeim. Hafi allt
og allir þökk fyrir ánægjulegt
kvöld. L. Þ.
.V.^VAVV/.V.V.V.VAV.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V
að gera. Ekkert einkalíf.
— Þið hjónin eigið tvær dæt-
ur í Vín?
— Já, þær eru í skóla. —
Mér þykir skrýtið að"þér 7skul-
ið Ireldur vilja tala erisku en
dönskú. Ég h'élt að'þið 'kynnuð
dönsku bezt? segir Schneider-
han við fréttamanninn. — Ann-
ars get ég líka talað sænsku,
bætir hann við.
— Hvað talið þér mörg tungu
mál?
— Eitthvað I þeim öllum. Mað
ur lærir eitthvað smávegis í
hverri heimsókn. Ég heimsæki
sömu löndin aftur og aftur. Ég
verð að skipuleggja ferðir mín-
ar tvö ár fram í tímann.
— Islenzkan er fáu lík, segir
frúin. Ég held hún hljómi ein-
- hvers staðar á milli norsku og
finnsku.
Schneiderhan var eins og
kunnugt er undrabarn, sem var
eftirsóttur fiðluleikari um allan
heim, ekki siður en nú. Hann
kom hingað á vegum Hljóðfæra
húss Reykjavíkur og hélt hljóm-
leika í Gamla bíói, klæddur
flauelsfötum með blúndulegg-
ingum. Á árum seinni heims-
styrjaldarinnar var hann konc-
ertmeistari í Vínarborg.
SKÓÚTSALAN
Framnesveg 2
Stendur í aðeins
2
daga ennþá
50%afsláttur50%
Kvenskór — Karlmannaskór
Telpnaskór — Drengjaskór
Kvenbomsur o. m. fl.
10°Jo afsláttur af öllum
KULDASKÓM
Skóverzlunin Framnesvegi 2