Vísir - 23.02.1963, Blaðsíða 9
VÍSIR . Laugardagur 23. febrúar 1963.
Fyrstu fomgripirnir sem safnið eignaðist voru munir sem fundust
í fommannsdys í Baldursheimi við Mývatn. Númer 1 er skráð hnef-
taflið sem er 24 kúptar beintöflur, teningur og útskorið mann-
likan úr beini, að líkindum hnefinn sem styrinn stóð ufn milii
fylkinganna tveggja. Hneftaflið var fom íþrótt en ekki er Ijóst
hvemig það var leikið.
hlaut að verða að fá sína eigin
byggingu og hana enga smá-
smíð.i
tfwf
j^úverandi Þjóðminjasafnshús
er eins konar morgungjöf.
sem íslenzka þjóðin gaf sjálfri
sér á morgni lýðveldis síns.
Daginn fyrir lýðveldisstofnun-
ina, þann 16. júní 1944 sam-
þykkti Alþingi í einu hljóði
þingsályktunartillögu um að
fela ríkisstjórninni að leggja
fyrir af ríkisfé þrjár milljónir
króna til þess að reisa hús fyrir jj
Þjóðminjasafnið og hefjast
þegar handa um undirbúning
byggingarinnar.
En sögu Þjóðminjasafnsins
má einnig skipa í þætti eftir
forstöðumönnum.
ár en var flutt á Alþingishús-
loftið 1881. Hafði Alþingishúsið
þá nýlega verið byggt og var
frá upphafi ætlað að það hýsti
bæði Alþingi og þau söfn sem
hér voru, bókasafn, skjalasafn
og forngripasafn.
En um aldamótin var svo
komið að ekki var lengur rúm
þar til Þjóðminjasafnið fékk
sína eigin byggingu á Melunum
1950.
ífch*
Tjjóðminjasafnið hefur því
lengst af sögu sinnar verið
jpyrsti forstöðumaður þess á-
samt Jóni Arnasyni var
Sigurður Guðmundsson málari.
Á hans árum einkenndist safnið
af féleysi, en það eignaðist þó
meðan Sigurður lifði um eitt
þúsund gripi, þar af voru að-
eins hundrað gripir keyptir
Það vó upp á móti féleysinu
að ýmsir fornmunir lágu nú
lausari fyrir en síðar varð, á-
SAFNIÐ 100 ARA
fyrir forngripasafnið í Alþing-
ishúsinu. Þá var Landsbanka-
húsið við Austurstræti nýreist
og fékk safnið nú inni f því
1899. Þar var það þó ekki
lengi, því að bráðlega var tekið
að reisa hið myndarlega Lands-
bókasafn við Hverfisgötuna.
Þar skyldi Forngripasafnið fá
inni í risinu og þangað fluttist
það 1908. Þar átti fyrir því að
liggja að dveljast í 42 ár, eða
á hrakhólum, sem leigjandi í
byggingum sem reistar voru
fyrir aðrar stofnanir. Kom þá
jafnan að því, að sú stofnun
sem átti hvert hús þurfti á hús-
rýminu að halda og Þjóð-
minjasafnið varð að flytjast
f nýja og nýja staði. Að síðustu
var þó svo komið að safngripir
voru orðnir svo gífurlega marg-
ir, að það var ekki hægt lengur
að hola safninu niður. Það
Dýrmætasti safnauki Þjóðminjasafnsins var Vídalínssafnið, er það
fékk 1908, en Jón konsúll Vfdalín hafði um langt skeið safnað
fjölda verðmætustu gripa fslenzkra fornminja. Það er athyglisvert að
margt muna hans kemur úr fslenzkum kirkjum og var undarlegt
hve þær voru fúsar að selja hina merkustu gripi. Nú er Vídalíns-
safn f sérstöku herbergi, þar eru bakstursöskjur frá Bessastöðum,
Grundarkaleikur, skápur Bólu Hjálmars og ótal margt fleira.
samt með hinum logandi áhuga
Sigurðar Guðmundssonar.
fkst
Átií 1878 var Sigurður Vig-
fússon gullsmiður gerður
safnvörður, og gegndi þvf þar
til hann lézt 1892. Hann var
geysilegur atorkumaður, gerði
fyrstur manna fornleifarann-
sóknir hér á landi og ferðaðist
vfða um land til að rannsaka
sögustaði. Þessar ferðir notaði
hann jafnframt til að safna
ýmis konar munum og hvetja
fólk til að gefa gripi til safns-
ins. Fjárráð safnsins voru þá
orðin meiri en áður og keypti
hann marga gripi. Hann var
auk þess frumkvöðull að stofn-
un Fornleifafélagsins, sem hef-
ur orðið safninu mikill styrkur.
Þá má geta þess, að á þeim ár-
um hóf Brynjúlfur Jónsson frá
Minna Núpi hinar víðtæku
fornleifarannsóknir sínar.
Starf Sigurðar setur enn svip
sinn á Þjóðminjasafnið. Þegar
hann skildi við það voru mun-
umir orðnir nærri 4 þúsund og
er safnið þá orðið svo stórt, að
nú fer ekki að verða hægt að
vinna að safnvörzlu f hjáverk-
um og launin sem greidd voru
fyrir það f engu samræmi við
fyrirhöfnina.
Af þessu einkennast störf
næstu tveggja safnvarða,
Pálma Pálssonar og Jóns Ja-
kobssonar. Pálmi stjórnaði þvf
1892 - 96 en Jón 1896—1808.
Þeir voru báðir góðir safnmenn
sem unnu m. a. að því með
vandvirkni að skrá muni þess.
Á þeim árum eignaðist safnið
dýrmætustu gjöfina sem því
hefur borizt, gjöf Vfdalín-hjón-
anna.
tht
j ársbyrjun 1908 kom ungur
og áhugasamur maður að
Rétt áður en Alþingishátíðin 1930 hófst fannst í Gaulverjabæ í Flóa
eini verulegi sjóður fornra silfurpeninga, sem fundizt hefur hér á
landi. Var þá verið að færa út kirkjugarðinn og voru menn að
flytja mold í því skyni úr ávalri bungu rétt fyrir sunnan garðinn.
Vildi þá svo til að undan skóflu valt hrúga af silfurpeningum.
í peningasjóð þessum kenndi margra grasa, sumir eru þýzkir, aðrir
engilsaxneskir, írskir og sænskir. Og þar eru líka 5 arabískir pen-
ingar. Sjóðurinn er vitni um hin miklu viðskiptasambönd norrænna
manna á víkingaöld.
ið safninu og fornleifafræðinni
eins mikið og lengi ogMatthfas.
^ Eins sérstaks atburðar verður
að geta frá safndögum hans,
að árið 1930 endurheimta Is-
lendingar suma mestu dýrgripi
sína frá Kaupmannahöfn.
jfar
/Ag loks er komið að núver-
^ andi þjóðminjaverði Krist-
jáni Eldjárn sem tók við emb-
ættinu 1947 og annaðist- flutn-
ing safnsins í hin glæsilegu og
rúmgóðu nýju húsakynni. Þar
hefur hann stjómað uppsetn-
ingu safnsins af sérlegri smekk
vfsi, en þrátt fyrir stór húsa-
kynni em munir safnsins nú
orðnir svo margir, jafnframt
því sem nýjar deildir hafa ver-
ið stofnaðar, svo að nú þyrfti
safnið ef vel á að vera að fá
það húsnæði, sem málverka-
safn ríkisins hefur til umráða.
safninu með ágæta undirbún-
ingsmenntun og náin kynni af
söfnum á Norðurlöndum, Matt-
hfas Þórðarson. Hann var fyrsti
maðurinn sem fékk fulllaunuð
störf sem þjóðminjavörður og
gegndi hann því embætti í
nærri 40 ár. Fyrsta verk hans
var að koma safninu fyrir í
nýju og rúmbetra húsnæði en
það hafði áður haft í húsi
Landsbókasafnsins og kom
hann þvf fyrir á vísindalegan
og miklu fullkomnari hátt en
áður. Enginn maður hefur unn-
Sérstök deild í Þjóðminjasafninu er Ásbúðarsafn, sem Andrés J.
Johnson í Ásbúð í Hhfnarfirði hefur safnað og afhent Þjóðminja-
safninu með sérstökum samningi. Andrés er mesti núlifandi safnari
íslands og jafnvel sá mesti sem uppi hefur verið á landinu. Hann
hefur frá unga aldri safnað allskonar minjum og hvorki sparað
kostnað né fyrirhöfn. Hann hefur safnað merkjum, peningum, pen-
ingaseðlum, frímerkjum og óteljandi öðrum smámunum sem til falla
frá degi til dags. Munir sem virðast ekki mikils virði meðan verið
er að nota þá en verða vandfengnir og ófáanlegir þegar tímar líða.
*