Vísir - 23.02.1963, Page 10
70
VISIR . Laugardagur 23. reDruar irrxta.
Kvennasíða —
Framhald af bls. 4
„en ég kom nú samt! Gat ekki
hugsað mér annað“. Hún sagð-
ist alltaf fara beint úr fjósinu
á morgnana inn að snyrta sig
eftir öllum listarinnar reglum!
Þetta kalla ég virkilegan á-
huga“.
TÓK PRÓF HJÁ
MAX FACTOR
„Og hvar lærðir þú andlits-
snyrtingu, Hildigunnur?"
„Á snyrtistofu í London, nán
ar tiltekið Max Factor Salon
í Old Bond Street. Pabbi minn
Friðrik Dungal, hefur umboð
fyrir Max Factor snyrtivörur
hér á landi, og ég hef afgreitt
í verzluninni hans, Remedíu.
Svo fór mig að langa til að
læra meðferð varanna, og ég
fór tii London og var tvo mán-
uði við nám, lærði að snyrta
og mála aðra og var snyrt
sjálf. Á endanum tók ég nokk-
urs konar próf í þessu og fór
heim aftur. Ég ætlaði að taka
að mér leiðbeiningar í sam-
bandi við verzlunina fyrir fjór
um árum, en þá hafði kven-
fólkið bara engan áhuga á
þessu, og það gekk ekki“.
„Tízkuskólinn breytti því al-
deilis", segir Erla. „Hann hefur
lagt grundvöllinn að þessu
starfi hérlendis, byggt þetta allt
upp og gert ótrúlega mikið“.
„Og hvernig stóð á, að þið
tvær skylduð setja upp Snyrti
skólann? Þekktuzt þið áður?“
„Já, við unnum saman á skrif
stofu. Og okkur langaði báðar
að vinna við eitthvert lífrænna
starf, meira skapandi, ef hægt
er að segja það“.
Nú kemur næsti hópur, og
Hildigunnur verður að fara.
„Viltu ekki koma inn og vera
viðstödd?" býður hún. „Þá
sérðu, hvernig þetta fer fram“.
Þetta er lokatími, svo að nem
endurnir eru engir viðvaningar
lengur. Þær bera á sig hreins-
unarkrem með hröðum og ör-
uggum handtökum, þurrka það
af, klappa húðina með bómull
vættri í andlitsvatni.
„í dag höfum við sjálfvalið
make-up“, útskýrir Hildigunn-
ur „Þá er að sýna hvað þær
hafa lært! í fyrsta tímanum
kennum við eingöngu undir-
stöðuatriði, hreinsun og um-
hirðu húðarinnar, hvernig á að
bera krem á sig og taka það af,
leggja andlitsmaska og plokka
augnabrúnirnar. Og loks eina
tegund make-ups: fljótandi, í
öðrum tfmanum kennum við að
nota aðra tegund make-ups:
pancake, sem er borið á með
rökum svampi. Svo að mála
augnlínur með biýanti — en
það er dökkt strik dregið eftir
augnlokunum meðfram augn-
hárunum ... það stækkar aug-
un ótrúlega. Svo eru augna-
brúnirnar málaðar með gráum
eða brúnum blýöntum. Og sein-
ast varirnar. í þriðja tímanum
kemur svo þriðja tegund make-
ups: panstik. Það inniheldur
bæði lanolin og rakastilli og
fer vel með hörundið. Svo kem
ur fljótandi augnlína, dregin
með pensli. Varirnar líka mál-
aðar með pensli. Og loks er
fjórði tíminn eins og í dag:
sjálfvalið allt“.
VANDAVERK.
Þær einblína í speglana og
mála hinar ýmsu línur og strik
með kostgæfni. Hildigunnur
fylgist með öllu, gefur vinsam-
legar bendingar, gagnrýnir með
brosi á vör og hjálpar til með
erfiðustu línurnar, kinnalit og
fieira.
Stundum þarf að lagfæra
hlykkjótta augnlínu, þurrka aft
ur af, byrja enn á ný. Það er
einbeitnissvipur á andlitunum.
Þetta er augsýnilega vandaverk
hið mesta. Ef miður tekst, þá
er reynt aftur og aftur.
„Er þetta vitlaust?" heyrist
Fylgist með tímanum!
Longines úr
á hvers manns hendi.
Vönduð, sterkbyggð,
nákvæm, gangviss,
f jölbreytt, heimsfræg.
Öryggi fylgir öllum
viðgerðum.
GUÐNIA. JÓNSSON
ÚRSMIÐUR
REYKJAVÍK
SÍMAR 14115
öðru hverju í kvíðnum rómi.
„Passa að setja ekki of mik-
ið“, brýnir Hildigunnur fyrir
nemendum sínum. „Muna að
setja alltaf nógu lítið, það er
hægara að bæta við en taka
af — nei, þetta verður alltof
þykkt þarna í horninu!“
„Já, dóttir mín kom hingað
til ykkar", segir ein frúin. „Ég
hélt að hún myndi læra að
mála sig voðalega mikið og á-
berandi, en það varð þá þver
öfugt. Núna málar hún sig
miklu minna en áður og auð-
vitað mörgum sinnum betur. Ég
varð svo hrifin, þegar ég sá
árangurinn hjá henni, að ég lét
það verða mitt fyrsta verk að
sækja um skólavist fyrir sjálfa
mig!“
EINKUNNIN
LÆKKAR
Hildigunnur er uppörvandi
við kennsluna, en nákvæm, hef
ur augun alls staðar, brosir í
hvatningarskyni.
„Nei, þetta er alltof blátt um
augun“, stynur ein. „Það er
eins og mér hafi verið gefið
glóðarauga!"
„Þú átt eftir að púðra yfir.
Mér finnst þessi litur fara svo
vei við kjólinn þinn“.
„En ekki er ég nú alltaf í
honum!“
„Nei, en þú málar þig líka
eftir því sem við á í það og
það skiptið“.
„Æ, ég hef svo þykkar varir"
segir ein frúin f mæðutón. „Og
allar skakkar þar að auki!“
Hildigunnur bregður skjótt
við. „Ekki mála útlínurnar al-
veg — draga svolítið inn,
hérna og hérna — svona, nú er
það gott“.
Hún lítur upp og tekur strax
eftir, hvernig frúin við glugg-
ann púðrar á sér nefið.
„Hér lækkar„ ainkunþjn —
aldrei að strjúka.kvaStáhUm. ...
bara klappa honum Þú ferð
víst niður f 9,5“.
Þær hlæja allar. Það er mikið
fjör í tímanum. Og von bráðar
er síðasta línan dregin, sein-
asta púðurkornið burstað af.
Þær standa upp, fallega snyrtar,
útlærðar. Og hraða sér fram í
snyrtivörudeildina. — SSB
Sk/ðamóf
Reykjavíkur i
Skíðamót Reykjavíkur hefst eins |
og kunnugt er í dag og er bú- i
izt við mikilli keppni, enda þátt- |
taka góð og greinilegt að ÍRingar, j
sem hafa stjórn mótsins á hendi, |
hafa fullan hug á að gera mótið!
annað og meira en verið hefur und-1
anfarin ár.
Dagskrá mótsins er annars þessi:
Laugardagur 23. febr.:
KI. 11.00 Mótið sett i skálanum.
— 11.30 Nafnakall fyrir stórsvig.
— 14.00 Stórsvig, allir flokkar.
— 16.00 10 km. ganga.
Sunnudagur 24. febr.:
Kl. 10.00 Guðsþjónusta í skálanum
— 12.00 Svig A og B-flokkar.
— 15.00 Stökk.
Laugardagur 2. marz:
Kl. 13.00 Svig: C fl., kvennafl.,
drengjafl. og stúlknafl.
— 16.00 Boðganga 4x5 km.
Sunnudagur 3. marz:
KI. 10.00 Brun, drengjaflokkur og
kver.naflokkur.
— 14.00 Brun, A, B og C flokkur
Réttur til breytinga á dagskránm .
er áskilinn, ef veður eða snjóalög |
gefa tilefni til.
Bloðamannofél. —
Frh. af 7. síðu:
aflafréttir. Ber þess og að minn-'
ast með þakklæti, að Félag ís-
lenzkra bornvörpuskipaeigenda
og Eimskipafélag Islands styrkja
FB til þessa.
5. Ýmsum fyrirspurnum er
svarað bréflega og símleiðis.
6. Ýmsar tilkynningar eru
sendar daglega til blaða, stund-
um til annara, samkvæmt óskum
þeirra, sem tilkynningarnar eru
frá. Flestar tilkynningarnar hafa
verið frá sendiherra Dana. Tilk.
þessar eru ýmsar Danmerkur-
fréttir, einkanlega er snerta bæði
ísland og Danmörku. FB fær til-
kynningar þessar ókeypis og ber
þess að minnast með þakklæti.
7. Þá hefur FB sent blöðunum
ýmislegt, sem gerist meðal Is-
lendinga í Vesturheimi, og væri
gert meira að þvi, ef eigi væri
takmarkað rúm í blöðunum. Þess
arar starfsemi hefur verið minnst
þakksamlega í vestur-íslenzku
blöðunum.
8. Forstöðumaður FB sendir
iðulega fréttaklausur eða greinir
til fréttastofu í London, sem hef-
ir sambönd út um allan heim.
Hefir fréttastofa þessi látið í
ljós ánægju sína yfir að fá þess-
ar fréttir, sem sumar hafa verið
langar og ítarlegar. Má t. d.
nefna: Mannskaðana í Vetur og
Ieitina að togurunum, Loftis-
málið, skíðaför L. H. Múller
og félaga hans, Þjóðleikhúsið,
Landspítalann, skýrslur um út-
fluttar afurðir o. m. fl. Einnig
hefur FB beðið fréttastofu þessa
að geta um í tilkynningu til allra
blaða, er fá fréttir frá henni, um
bæklinga þá um ísland sem ferða
mannaland, sem út eru gefnir.
Eru þá send allmörg eintök af
bæklingunum til úthlutunar.
Fleira mætti til tína, en læt
þetta nægja. Þess þarf væntan-
lega ekki að geta, að FB svarar
fúslega þeim fyrirspurnum, er
hún fær, og reynir að vekja eftir-
tekt á íslandi erlendis.
Ber ég það traust til manna,
að Fréttastofan verði ekki dæmd
á ósanngjarnan hátt. Mun henni
vafalaust vaxa fiskur um hrygg
smám sarnan."
I niðurlagi greinargerðarinnar
drap ég á, að fréttastofur er-
lendis hefðu aukið starfsemi
sína, þar sem útvarpið var komið
til sögunnar, og vafalaust mundi
það sama verða uppi á teningn-
um hér, en um þetta voru ýmsir
á allt öðru máli á þessum árum,
og þjóðkunnur ritstjóri lét í ljós
við mig þá skoðun sína, að
framtið blaðanna væri mjög ó-
viss vegna tilkomu útvarps, —
útvarpið myndi blátt áfram taka
við því hlutverki blaðanna, að
afla frétta og dreifa þeim. Verð-
ur nánara að þessu vikið og starf
semi FB í framhaldsgrein.
fbúðir
Únnumst kaup og söli á
hvers konar fasteignum.
Þið. sem ætlið að kc.upa
eða selja fyrir vprið. hafið
samband við okkur sem
fyrst.
Fasteignasalan
Tjamargötu 14.
Sími 23987.
ISfKB «g ®#KKB
KÉKK'R 7rRií)KjiC3jöKK^oX
HRAFNÍ5TU 344.5ÍMI 38443
LESTUR-STÍLAR-TALÆFÍNGAR
Brendan Behan
írska skáldið Brendan Be-
han er sem kunnugt er allra
manna veikastur fyrir viskíi,
en nú segist hann vera búinn
að finna ráð til að standast
freistinguna — og slái það
jafnvel antabus út.
Hann hefur sezt að í ilm-
vatnsbænum Grasse við Cann
es í Frakklandi — og hann
segir:
„í Grasse angar allt af ilm
vatni og ilmvatnsbragð er af
öllu. Og viskí með ilmvatns-
bragði — foj bara“
*
Maurice Chervalier
Á 75 ára afmæli sínu sagði
Maurice Chervalier: „Ýg hef
alla æfi etið mikið, drykkið
mikið og yfirleitt gert mikið
af öllu. En þegar maður er
orðinn 75 ára og ætlar að
halda áfram að koma fram
eins og áður verður maður að
rninnka við sig mat, drykk og
allt það sem maður hefur áð
ur gert“. Hann er hress þótt
hálf áttræður sé.
*
Kanadísk þingmannanefnd
var nýlega í kynnisferð í París
— og nú eftir heimkomuna
óttast nefndarmenn mjög ár-
ásir hinna þingmannanna. Og
það sem þeir eru áfelldir fyr-
ir, er að hafa eytt nóttunum
á skemmtistöðum umhverfis
Place Pigalle og dögunum í
rúminu.
122 umferðamálasérfræðing
ar komu nýlega saman á mjög
mikilvægan fund í London.
En áður en fundinum lauk
höfðu 56 beirra fengið ^ekt
ir fyrir að leggja bílum sín
um ran<desa. svo að ekki eru
þeir barnanna beztir.