Vísir - 30.04.1963, Qupperneq 2
2
VlSIR . Þriðjudagur 30. apríl 1963.
" V' ' ''iít i
Skírður eftir Eyjólfi
Hinum ínargbreytilega smá-
bátaflota Ástraliumanna, sem
dýrka útifþróttir, sund og sigl-
ingar manna mest, hefur bætzt
viö bátur, sem ber íslenzkt
nafn, en þaö er gæiunafnið
EYJI, en svo hefur Eyjólfur
Jónsson sundkappi Iöngum verið
nefndur af vinum sínum.
Ástæða þessa er sú, að vinur
Eyjólfs , frá styrjaldarárunum,
Joseph Walsh, vel efnaður kaup
maður í Adeiaide, skírði annan
bát sinna eftir hinum gamla vini
sinum frá íslandi, en Walsh var
hér i bandaríska flotanum, en
hann er Iærður siglingafræð-
ingur.
Walsh og Eyjóifur hafa alltaf
haidið sambandinu sfn á milli og
skrifazt á. Walsh Iærði íslenzku
allvel meðan hann dvaldi hér,
las íslendingasögurnar og hefur
kveikt þann áhuga hjá 18 ára
dóttur sinni, Valerie, sem vill
fara alla leið til íslands og nema
norrænu við Háskóla íslands.
Myndin sýnir syni Walsh við
nýja bátinn, EYJA, en drengirn-
ir heita Steve, Damion, Peter og
einn vina þeirra.
/T
JV
'////<2ML2Z///4m7Z7////A
w//////ó/m////A
E
HRAÐI 0G FJÖR í LFIK
VALS 0G ÞRÓTTAR
Það voru þreyttir leik-
menn Vals og Þróttar, sem
yfirgáfu völlinn í gær-
kvöldi eftir hraðan og
skemmtilegan leik, 2:2. -
Valsmenn áttu frumkvæði
leiksins og voru öllu nær
sigri, en Þróttarar duttu
niður á löngum köflum, en
léku vei á milli. í hálfleik
var staðan 1:1.
Valsmenn voru alls ráðandi
fyrstu mínútur leiksins og áttu
talsvert mörg faeri, en fá mjög góð.
Steingrímur átti þó tvö allgóð færi
á 26. og 32, mín, en misnotaði.
Þróttarar sköpuðu sér hættu á 37.
mín„ þegar Axel óð upp vinstri
væng.
★
Valur skoraði fyrra mark sitt
4 11. mín,, en hann fékk fallega
sendingu Steingríms frá hægri
en skot Bergsteins var mjög
gott,
★
Þróttarar skoruðu 1:1 á 38.
mín. Það var Axel Axelsson v.
útherji, mjög góður Ieikmaður,
sem brunaði enn í gegn hjá
Árna Njálssyni og skoraði fram
hjá markverði með fallegu skoti,
★
Á 53. mín. fær Valur foryst-
una aftur. Nýliðinn Bergsveinn
Alfonsson skorar laglega með
skalla, en engu minni heiður
átti Bergsteinn þó fyrir fallega
fyrirgjöf utan af kanti.
★
Síðasta markið kom svo á 77.
mín„ en það kom eftir sókn
upp vinstri kant, sem endar með
fyrirgjöf Axels og góðum skalla
Jens Karlssonar innherja Þrótt-
ar f stöng, en Jens var fylginn
og skoraði úr þvögunni, sem
myndaðist.
Þróttarar voru nú mjög fylgnir
og Haukur Þörvaldsson, sem nú
var óvenju lítið með í leiknum,
átti gott færi en lyfti yfir stöng
ágætri sendingu Axels, en þá voru
5 mínútur eftir af leik.
Valsliðið átti allgóðan leik. Her-
mann markvörður er mikill styrk-
ur, en Árni og Þorsteinn góðir bak-
verðir, enda þótt Árni yrði oft að
sjá á eftir hinum leikna útherja
Þróttar. Framvarðalína Vals er
sterk, Ormar stöðvar vel og Elías
var allgóður. í framlínunni var
Bergsteinn beztur, en Bergsveinn
er mjög efnilegur unglingur.
Þróttarliðið sýndi nú að það var
ekki eintóm heppni að þeir unnu
Islandsmeistarana á dögunum, því
í liðinu eru mörg mjög góð efni
og með meiri festu og öryggi í leik
ætti liðið að setjast a. m. k. í sama
sess og önnur Reykjavíkurfélög.
Axel Axelsson var áberandi góður
oft á tíðum, en datt niður annað
slagið. Markvörðurinn, Guttormur
Ólafsson var og góður, hefur hið
fullkomna auga fyrir úthlaupum og
staðsetningum. Miðvörður liðsins,
Jón Björgvinsson er og skemmti-
legur og traustur leikmaður. Dug-
mesti maður liðsins í þessum leik
Vals og Þróttar í leðjunni á íþrótta
vellinum var þó Jens Karlsson inn-
herji, sem var mjög drífandi og
ákveðinn, en Ijóður á hans ráði er,
að halda boltanum of lengi í einu
í stað þess að láta hann ganga til
næsta manns.
Dómari var Carl Bergmann og
dnmdi allsæmilega. Margir áhorf-
endur voru á vellinum þrátt fyrir
kulda og nepju og fengu góðan
leik fyrir aura sína. — jbp —
Suðrænn skophiti i
ítulskri knattspyrnu
ítalska lögreglan handtók 44
menn eftir uppþot í Napolí og
Salemo í fyrradag. Fjöldi áhorf
enda meiddist í átökunum, sem
urðu á knattspyrnuvöllum borg
anna.
í Napoli vildu áhorfendur ná
f dómarann en að auki „tala
við“ gestaliðið Modena. Þrír
leikmanna liðsins voru fluttir á
sjúkrahús ilia meiddir af æstum
lýðnum, en lögreglan skakkaði
leikinn með táragassprengjum.
Fjöldi lögregluþjóna var fluttur
í sjúkrahús.
í Salerno var ástandið enn
alvarlegra, en þar var einn á-
horfandi drepinn og fjöldi
manna slasaðist, Búizt var við
að knattspyrnusambandið loki
báðum knattspyrnuvöllunum
fyrst um sinn vegna atburða
þessara. Er það mikið tjón fyrir
heimaliðin, þar eð nú Ieika þau
aðeins útileiki, en enga heima-
leikl.
Kjartan Sæmundsson
Kveðja
Fyrirvaralaust hvarf úr hópi okk
ar hér háttprúður samborgari, sem
gekk að daglegum störfum sínum
með slíkri fágaðri framkomu og
vingjarnlegu viðmóti, að hann vakti
jafnt eftirtekt ókunnugra sem og
virðingu þeirra, er hann þekktu og
hann átti skipti við.
Fátækur fæddlst hann í þennan
heim og við lítil veraldarefni ólst
hann upn, Snemma fór hann að
vinna sjálfur fyrir sér og vinnan
skapaði manninn og mótaði allt
dagfar hans. Or foreldrahúsum
fékk hann eljusemi og trúmennsku
í fararnesti. Þessar dyggðir dugðu
honum til þroska á uppvaxtar- og
manndómsárum. Allt líf hans mót-
aðist af þessu fararnesti og þeim
þroska, sem vinnan veltti honum.
Fyrr en varði voru honum falin
trúnaðarstörf á verkssviði hans og
með hverju starfi og hverri nýrri
ábyrgð óx maðurinn, en verkin
döfnuðu undir handleiðslu hans,
Sjálfum sér hlífði hann aldrei og
alla Jífsgrku Sína lagði hann í verk
þau, sem hann tók að sér. En öllu
má ofbjóða, jafnt lífsorkunni sem
getu jarðnesks líkama til þess að
standast meiri andlega og líkam-
Iega vinnu heldur en þetta flókna
völundarhús fær þolað. Og húsið
gafst upp síðastliðinn miðvikudag
í þrepunum fyrir framan vinnu-
stofuna.
Ég hef hér lýst lífsbaráttu Kjart
ans Sæmundssonar kaupfélags-
stjóra í Reykjavík. Hann fæddist í
Ólafsfirði 6. aprfl 1911 og andað-
ist í Reykjavík 24. apríl síðastlið-
inn og hafði þá rétta tvo um
fimmtugt. Ætt hans var öll úr
Ólafsfirði og nærsveitum, allt
mannkostafólk. Kjartan eignaðist
marga trygga vini á annríkum ævi
degi, einkum meðal starfsfélaga, en
að eðlisfari var hann dulur og hlé-
drægur, Hann kunni þó þá list að
leika á als oddi, en ekki var það
gert nema á sérstökum tímamótum
og ef þannig var til stofnað.
Marglr syrgja Kjartan Sæmunds
son, en sárastur harmur er með
eiginkonu og fjórum ungum daetr-
um, fóstursyni Og fjölskyidu hans.
Einnig ástríkum föður, sem athvarf
átti á heimili hans í elli sinni, og
tveim systkinum. Ölium þeim færi
ég kveðju ástvinanna og bið þeim
huggunar í sárri sorg, en minningin
um ástríkan heimilisföður og þær
manndyggðir, sem honum voru eig-
inlegar, verða þeim leiðarljós á
komandi árum.
Elskulegi mágur. Hollvættir lands
ins okkar vaki yfir ferðinni og
sterk hönd hins máttuga og
Það er nú þegar fyrirsjáanlegt,
að miklar byggingaframkvæmdir
verða í Siglufirði í sumar. Er nú
ýmist verið að byrja á eða ljúka
hverri stórbyggingunni á fætur
annarri. Vitað er, m. a. um þessar
framkvæmdir;
Byrjað á 3 hæða verzlunarhúsi
hjá Kaupfélaginu, byrjað á nýju
húsi fyrir póst og síma, tveggja
hæða, siúkrahús er í smíðum og
bókhlaða einnig, Þá verða reistar
8 íbúðir í verkamannabústöðum og
10 íbúðarhús.
Byrjað verður að reisa soð-
vinnslugtöð hjá síldarverksmiðj-
unni Rauðku og ríkisverksmiðjurn-
i i ■—111111111 iii iif i immwnniww
miskunnsama stýri knerri þínum
til fyrirheitnu landanna.
Reykjavík, 30. apríl 1963
ar munu stækka sína soðvinnslu-
stöð. Þá mun Tunnuverksmiðja rík-
isins reisa stórt stálgrindarhús.
Til allra þessara framkvæmda
þarf geysilega mikið vinnuafl og
mun þegar í vor verða skortur á
vinnuafli, sérstaklega á iðnlærðum
mönnum til að annast framkvæmd-
irnar.
Stefán Bjamason.
Fjöldi nýrra bygg-
inga á Siglufírði