Vísir - 30.04.1963, Blaðsíða 8
I
s
m
Utgefandi: Blaðaútgáfan VfSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og ^greiðsla Ingóifsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Framtíðarstefnan mörkuð
Nú hefir stefnuskrá.Sjálfstæðisflokksins við al-
þingiskosningarnar í sumar verið birt. Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins mótaði hana í formi stjórnmála-
ályktunar, sem Vísir birtir á forsíðunni í dag.
Þar er mörkuð víðsýn umbótastefna. Ef henni
verður fylgt fram næstu fjögur árin í ríkisstjóm, mun
hinni miklu viðreisn verða haldið áfram. Uppbygging
atvinnuveganna mun verða uukin og frelsi verða meira
til athafna í þessu harðbýla landi, þar sem það ríður
á að gefa einstaklingum nægilegt svigrúm.
Stjómmálaályktun flokksins sýnir kjósendum
hans og öðrum landsmönnum hvað það er sem flokk-
urinn vill í þjóðmálum. Þar er ekki um neina bylt-
ingu að ræða frá stefnu undanfarinna ára. Grundvall-
arstefnan er sú hin sama, er svo vel hefir reynzt síð-
ustu þrjú árin, sém flokkurinn hefir átt sæti í ríkis-
stjórn. Það er einmitt kostur Sjálfstæðisstefnunnar,
að hún er ekki rammskorðað hugmyndakerfi heldur
sveigjanleg þjóðmálastefna, sem finnur svör við vanda-
málunum, þegar þau koma á dagskrá.
I Efnahagsbandalagsmálinu er stefnan skýrt
mörkuð. Flokkurinn mælir með aðild íslands að efna-
hagssamstarfi annarra þjóða eftir því sem hagsmunir
þjóðarinnar krefjast og án þess að undirgangast nokk-
ur samningsákvæði, sem hér geta með engu móti átt
við. Þessi yfirlýsing ætti að nægja til ítrekunar á því
sem foringjar flokksins hafa margsinnis bent á, að
án samstarfs við aðrar þjóðir erum við illa á vegi
staddir. En í því samstarfi munum við aldrei fóma
neinum þjóðarhagsmunum.
Það er einmitt þetta atriði, sem er kjarni stefnu
Sjálfstæðisflokksins: trygging sjálfstæðis þjóðarinnar.
Frá því verður aldrei slakað.
Flótti skipstjórans
/
Utanríkisráðuneytið hefir borið fram þá kröfu,
að brezki togaraskipstjórinn. á Milwood verði fram-
seldur yfirvöldum til þess að standa fyrir máli sínu.
Sú krafa er sjálfsögð og eðlileg. Skipstjórinn væri nú
í íslenzkri vörzlu ef aðstoð brezka herskipsins Palliser
hefði ekki komið til, en sú aðstoð er undarleg og
óskiljanleg.
Skipstjórinn er enn um borð í Palliser, þegar þetta
er skrifað. Þess er að vænta að brezka utanríkisráðu-
neytið, sem nú hefir málið til meðferðar, komi því til
leiðar að skipstjórinn komi fyrir íslenzkan dómstól
og standi þar fyrir máli sínu.
■
VlSIR . Þriðjudagur 30. apríl 1963.
Konunglegt brúðkaup í
Brúðhjónin Angus Ogilvy og Alexandra prinsessa af Kent.
Englandi
Eitt veglegasta brúð-
kaup, sem haldið hefur
verið í langa tíð f ór fram
í Westminster Abbey í
London í síðustu viku.
Viðstaddir það vom auk
allrar brezku konungs-
fjölskyldunnar einn kon
ungur, fimm drottning-
ar, krónprinsar og yfir
60 prinsessur.
Það var heldur engin furða,
því þama var verið að gifta
náfrænku Englandsdrottningar,
Alexöndm prinsessu af Kent,
en hún og Elisabet drottning
eru bræðradætur. Elísabet er
sem kunnugt er dóttir Georgs
VI. Bretakonungs, en Alex-
andra er dóttir yngsta bróður
hans hertogans af Kent.
Alla vikuna hafði kongafólk
og aðalsfólk frá öllum löndum
Evrópu verið að tínast til Lon-
don og hafa brezku blöðin ver-
ið full af frásögnum um ættir
þessa fólks og lýst skyldleika
þeirra við ensku konungsfjöl-
skylduna.
Skrúðfylkii£. "8“ Y"
Og þegar giftingarathöfnin
hófst kom aðalsfólkið í glæsi-
legum Rolls Royce bifreiðum
akandi til kirkjunnar, og rað-
aði sér f skrúðfylkingu, allt í
réttri röð eftir stöðu og standi.
Fyrst Ólafur Noregskonungur
með Elísabetu drottningarmóð-
ur, ekkju Georgs VI., og Frið-
rikka Grikklandsdrottning, þá
Lovísa Svíadrottning, Ingiríður
Danadrottning og dóttir hennar
Anna María. Þá Helena fyrrum
drottning af Rúmeníu, Umberto
fyrrum Italíukonungur, og Vikt-
oría fyrrv. Spánardrottning, þá
kom Haraldur krónprins af
Noregi, Irena prinsessa af
Grikklandi og Konstantin
Grikkjakrónprins.
Þegar þetta göfuga fólk hafði
gengið 1 kirkju kom Elísabet
drottning, maður hennar Fil-
ippus og Karl prins til kirkj-
unnar og hófst nú giftingarat-
hofnin.
Brúðguminn.
Þá er kominn tími til að
geta þess, hver hinn hamingju-
sami brúðgumi var, sem var
nú að tengjast öllu þessu
virðulega konungafólki. Hann
er réttur og sléttur Skoti að
nafni Angus Ogilvy. Hann er
kunnur kaupsýslumaður og
stórlega vel efnum búinn.
Að vísu þykir það alltaf
nokkru lakara í hópi aðalfólks,
þegar prinsessa tekur niður
fyrir sig og giftist óbreyttum
borgara. En þó er það bót í
máli, að hann er Skoti, því að
það hefur reynzt svo I líkum
tilfellum áður, að allir Skotar
geta rakið ættir sínar til fomra
skozkra konunga og svo hefur
einnig orðið f þessu tilfelli, svo
Angus Ogilvy hefur getað hald-
ið því fram að. hann sé einnig
af konungsættum.
Yndlsleg stúlka.
Alexandra prinsessa hefur
verið mjög vinsæl, eftirlæti al-
mennings í Bretlandi. Hún er
talin fegursta prinsessa I Eng-
landi þó verið geti að Anna
dóttir Elísabetar jafnist á við
hana, þegar hún vex upp. Það
var því engin furða þótt öll
brezka þjóðin samfagnaði hinni
fögru, ungu konu. Safnaðist
fólkið saman 1 þúsundatali
kringum kirkjuna og Bucking-
hamhöll.
í sambandi við heimsóknir
hinna erlendu gesta hefur það
orðið ljóst, hve Elísabet drottn- ,
ing er frændsterk einkum með-
al þýzkra aðalsmanna, en hún
er af hinni frægu þýzku Hessen-
ætt og hefur þessi ætt blómg-
azt ákaflega. Annars má segja
að flestir þeirra 600 aðalsmanna
sem viðstaddir voru brúðkaups-
athöfnina hafi verið meira og
minna skyldir innbyrðis.
Það var erkibiskupinn af
Kantaraborg sem vígði brúð-
hjónin, svaramaður Alexöndru
var bróðir hennar hertoginn af
Kent en svaramaður Ogilvis
vinur hans Peregrine Fairfax.
Flogið til Skotlands.
Að brúðkaupinu loknu var
haldið til veizlu f Jakobshöll,
en þegar leið fram á daginn
kvöddu brúðhjónin og flugu
með einkaflugvél til norður-
odda Skotlands, en þar átti
Angus Ogilvy sveitasetur. Þang
að komu þau um kvöldið og
það fyrsta sem þau gerðu eítir
að þau komu inn var að opna
fyrir sjónvarpið og horfa þar
á brúðkaup sjálfra sín.
Anna prinsessa dóttir Elisabetar drottningar var 12 ára brúðarmær.
Hér sýnir Alexandra henni gullarmabndið sem brúðguminn hafði
gefið henni.
/