Vísir - 30.04.1963, Page 7
7
V í S I R . Þriðjudagur 30. apríl 1963.
Hljómplata til styrkt-
ar flóttamönnum
Hlustið og hjálpið okkur. Þessi
orð ásamt mynd af fátæklega bún
um og sjálfsagt vanærðum börn-
um er á stóru spjaldi, sem Flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna
hefur sent út með hljómplötu
þeirri, sem kom í hljómplötuverzl-
anir á íslandi nýlega og ber nafnið
„ALL-STAR FESTIVAL“.
Útgáfa hljómplötunnar „ALL-
STAR FESTIVAL" er einn liður-
inn í hinni víðtæku fjáröflunar-
starfsemi Flóttamannahjálparinnar
til baráttunnar gégn andlegum og
líkamlegum meinum \ landflótta
fólks alls staðar í heiminum, en
eins og ailir vita er flóttamanna-
vandamálið eitt mesta vandamál
þessarar aldar.
Aðdragandinn að útkomu „ALL-
STAR FESTIVAL" er sá, að Flótta
mannahjálpin fékk nokkra heims-
fræga listamenn með Yul Brunner í
fararbroddi til að velja listamenn,
til að koma fram á hljómplötu,
sem seid skyldi verða til ágóða
fyrir samtökin. Val þeirra féll þann
ig: Louis Amstrong, Edith Piaf,
Bing Crosby, Nana Mpuskouri,
Caterina Valente, Patt Page,
Maurice Chevalier, Ella Fitzgerald,
Nat „King“ Cole, Mahalia Jackson,
Anne Shelton, Trio „Los Para-
guayos“ og Doris Day. Listafólkið
brást' allt vel við og söng inn á
hljómplötuna endurgjaldslaust.
Philips gaf út „ALL-STAR
FESTIVAL”, sem kom út í marz
lok og hefur annazt dreifingu.
Hljómplötuverzlanir um ailan heim
hafa selt plötuna nær eða aiveg
endurgjaldslaust.
Þar sem Flóttamannahjálpin á
enga fulltrúa á íslandi hefur Rauði
Krossinn tekið að sér að annast
pöntun og dreifingu á plötunni, án
endurgjalds, og sömuleiðis munu
hljómplötuverzlanir ekki taka nein
umboðsiaun. Gefnir hafa verið
allir tollar og flugfélögin flytja
pantanirnar ókeypis. Verð plötunn
ar verður þvl aðeins 250 krónur,
en það er um 20% lægra verð en
Long Playing plötur, sem þessi,
eru yfirleitt seldar á.
„ALL-STAR FESTIVAL" hefur
verið afbragðs vel tekið um allan
heim og er ekki að efa, að svo
mun einnig verða hér á iandi. Það
er ekki á hverjum degi, að okkur
gefst tækifæri til að hlusta á svo
marga fræga söngvara og um leið
að hjálpa bágstöddu flóttafólki um
allan heim.
B.v. Ölafur Jóhannes-
son seldur til NOREGS
Nýlega tókust samningar milli |
fjármálaráðuneytisins og norsks út
gerðarmanns Vindenæs um sölu á
togaranum Ólafi Jóhannessyni,
sem legið hefur ónotaður í nærri
tvö ár.
Kaupverðið var ákveðið 2 millj. '
750 þús. kr. Var það sonur út-
gerðarmannsins norska, Ejnar
Vindenæs, sem undirritaði kaup-'^
samninginn, en hann er nú staddur
hér.
Ríkissjóður hefur undir höndum i
þrjá aðra gamla togara, sem hafa I
verið til sölu. Eru það togarnir !
Þorsteinn þorskabítur, sem er úti |
í Englandi og verið að gera hann
upp, og togararnir Brimnes og
Sólborg.
Lítíri áhugi er hér innaniands á
að kaupa togarana, þar sem tog-
araútgerð á í vök að verjast. Engin
von hefur verið til að selja togar-
ana innanlands nema með því að
lána mestallt eða allt kaupverðið,
en hinn norski útgerðarmaður borg
ar kaupverðið út í hönd.
Hinn norski útgerðarmaður
hyggst sigla skipinu hið fyrsta út
til Noregs og verður > þar fram-
kvæmd víðtæk og kostnaðarmikil
viðgerð og breytingar. Verður m.
a. sett ný vél í skipið. Ætlun þeirra
er að nota togarann á síldveiðum
við ísland í sumar, bæði stundi
skipið sjálft síldveiðar og svo verði
það notað sem móðurskip fyrir
síldveiðiflota Vindenæs, til flutn-
inga á síldinni til Noregs. Er hér
um tiiraun að ræða og hafa þeir
Vindenæsfeðgar látið í ljós hug á
að kaupa hér fleiri gamla togara,
ef þessi tilraun gefur góðan
árangur.
SSys á Akureyri
Á laugardaginn varð umferðar- j
slys við Akureyri, er árekstur varð |
milli bifreiðar og bifhjóls á þjóð- |
^ veginuni rétt við Glerá í Glerár- i
j þorpi. Á bifhjólinu var mennta-
1 skólanemi. Féll hann í götuna og j
fótbrotnaði. Hann var fluttur í
sjúkrahúsið og leið eftir vonum í
morgun.
l'íiBl
Gerir tillögur um gagn-
fræðaskóla raunfræða
Ásgeir Þorsteinsson, verk-
fræðingur, hefur sent borgar-
ráði Reykjavíkur tillögur um
gagnfræðaskóla raunfræða og
tillögu um breytt gagnfræða-
stig verknáms. Tillögur hans
miða að myndun gagnfræða-
deilda er verði í meiri tengsl-
um við atvinnulífið, en gagn-
fræðadeildirnar eru nú. í bréfi
sínu til borgarráðs segir Ásgeir
m. a.: Á fundi uin tæknimennt-
un og atvinnulífið, er fram fór
hér í bæ £ vetur, bar gagnfræða-
menntunina albnjög á góma.
Fulltrúar gagnfræðaskólanna,
er töluðu á fundinum, lýstu því
yfir, að lokapróf þeirra væru
endaslepp og ekki í beinum
tengslum við atvinnulífið nema
helzt í verzlunardeildunum.
Þetta kom mér ekki á óvart,
og gerði ég þennan þátt því
einnig að umtalsefni á fundin-
um.
Til þess að ekki fari milli
mála, hvar skórinn kreppir, vil
ég setja nokkrar upplýsingar
námið þar). Loks eru tillögur
mínar um gagnfræðaskóla raun-
fræða”, R (stuðzt er við realaf-
delingen, teknisk iinie, £ Dan-
mörku) og tillaga um breytt
gagnfræðastig verknáms, V2.
Stundafjöldinn er fyrir allan
námstímann frá barnask.
greina, sem er gagnfræðastig-
inu óviðkomandi. Þessi ráðstöf-
un minnkar álagið á iðnskólann
um helming. Hún gerir það einn-
ig að verkum að með 6 mánaða
undirbúningsnámskeiði eins og
nú á sér stað hér (og einnig í
Danmörku), getur verknáms-
Samanburður á alm. gagn- gagnfræðingur tekið próf inn í
fræðastiginu (A) og nýju raun- fræðastjgi (R), (er í Danmörku tækniskóla, synlegt." en það er nauð-
A VI I R V2
Tungum. 1650 st. 1500 st. 1494 st. 1650 st. 1500 st.
Reikn. (st.) . 510 — 480 — 598 — 800 — 600 —
Raunfr. 90 — ?o 136 — 480 — 180 —
t Samtals: 2250 — 2070 — 2228 — 2930 — 2280 —
2800 st.), sýnir berlega, hversu
ábótavant er hér í þeim efnum,
því 680 st., eða um 30%, vant-
ar í reikningi (stf.) og raunfræð-
um með sömu tungumála-
kennslu.
Gagnfræðastigi raunfræða (R)
er ætlað að gefa nægilega mennt
un til þess að verðskulda upp-
í síðari hluta bréfsins ræddi
Ásgeir Þorsteinsson um verk-
námið sjálft. Taldi hann hægt að
stytta iðnámið niður í 2—2/2
ár, ef hægt væri að koma ungl-
ingum til Iaunaðrar vinnu á
verkstæðum, yfir sumartímann
eftir 3. og 4. bekk Þá tæki iðn-
skólinn við þeim til sérnáms.
„Þess skal að lokum getið að
og breytt skipulag verknámsskóla
fram í töflu hér á eftir. Saman-
burðurinn nær til þriggja greina:
Tungumála, reiknings (og stærð-
fræði) og raunfræða (eðlis-,
efria- og líffræði). Skólastigin
erú Almennur gagnfræðáskóli,
’A, bg gághfrséðadeild verkriáms
í Vesturb.skóla, VI. (Skólaskýrsl
ur 1959/60). Auk þess er tekið
saman nám undir miðskólapróf
(1—3 b. verknáms í gagnfræðad.
Vesturb.) og iðnskólanámið i
sömu greinum, I (sem næst hálft
(öku í tækniskóla, hér eða ann-
ars staðar (ef 1. eink. er náð,
eins og í Danmörku).
Gaghfræðástig verknáms verð
< ur aö þola samanburð við mið-
skólapróf, að viðbættu almenna
náminu í iðnskólanum (I). Þar
vantar um 158 st. á, eðaitæpl.
8%. Úr þessu ástandi er (illög-
unni (V2) ætlað að bæta. I iðn-
skóla hér í bæ á ekki að vera
annað en sérnám einstöku iðn-
gagnfræðastig raunfræða mundi
inna tíðar opna unglingum er
það stunda, leið inn í tæknihá-
skóla, gegnum forskóla, líkt og
tíðkast hefur í Danm. í. áratugi
„Ætlunin e^.. sú, með þessum
tillögum, að bæði stigin (stig
raunfræða og verknáms) fái
raunhæft takmark í tæknimennt
uninni, og á þvl ríður atvinnu-
lífinu nú mest“, sagði tillögu-
höfundur í lok bréfs ssíns.
Skórust á
bílrúðu
Umferðaróhapp skeði í Kópavogi
síðdegis á föstudag og voru tveir
farþegar í bifreið, sem kastazt
höfðu á framrúðu bílsins, fluttir í
slysavarðstofuna í Reykjavik.
Óhapp þetta vildi til með þeim
hætti, að sendiferðabifreið, sem var
að beygja af Álfhólsveginum inn
að smurstöðinni gegnt Kópavogs-
apóteki, lenti á trollhlera sem var
þar í innkeyrsiunni og við það
lcorn mikill hnykkur á bílinn.
Tveir piltar, sem • sátu við híið
ökumannsins, hrukku fram á rúð-
una, brutu hana' og skárust eitt-
hvað í andliti, annar þó meira.
Þeir voru fluttir í sjúkrabíl í slysa-
varðstofuna, en að aðgerð lokinni
var þeim leyft að fara heim til
sín.
Aöaifundur Blaða-
mannafélags Islands
Aðalfundur Blaðamannafélags
íslands var haldinn í Klúbbnum
s.I. sunnudag. Var fundurinn fjöl-
mennur, og umræður fjörugar. Ný
stjórn var kjörin, og hana skipa
nú: ivar Jónsson (Þjóðviljinn), Atli
Steinarson (Morgunblaðið), Björg-
vin Guðmundsson (Alþýðublaðið),
Elín Pálmadóttir (Morgunblaðið) og
Tómas Karlsson (Tíminn), ívar er
formaður stjórnarinnar.
Á fundinum flutti fráfarandi for-
maður, Gunnar G. Schram, skýrslu
um störf stjórnarinnar á s.l. starfs-
ári. Var ýmsum nýjungum hrint í
framkvæmd. Efnt var til Pressu-
balls, sem tókst mjög vel. Pressu-
klúbbur var opnaður í turnherbergi
Hótel Borgar og félagið opnaði skrif
stofu. Þá leitaði stjórnin hófanna
um kaup á sumarbústað fyrir fé-
lagsmenn, en af þeim kaupum varð
ekki. Þá hafa verið gerð drög að
siðalögum fyrir blaðamenn, og
verða þau tekin til umræðu á fundi,
sem haldinn verður innan skamms.
Þá flutti Ingólfur Kristjánsson rit-
stjóri skýrslu um hag Menningar-
sjóðs Blaðamannaféiagsins og er
hann góður. í stjórn sjóðsins voru
kjörnir Ingólfur Kristjánsson, Björn
Thors og Indriði G. Þorsteinsson.
I stjórn Lífeyrissjóðs Andrés
Kristjánsson og Þorbjörn Guð-
mundsson.
Selflytja vörur i Grænlamfí
Tvær flugvélar frá Flugfélagi ís-1 þeirra, sem eru á leið til veðurat-1 síaða á austurströnd Grænlands.
iands áttu að leggja í Grænlands-! hugunarstöðva í Grænlandi og þar sem ekk iverður komið við öðr
flug urn hádegið í dag með flutn- ; leysa aðra veðurfræðinga af hólmi.; um farartækjum en skíðaflugvél-
ing og farþega. Skíðaflugvélin Gljáfaxi er einn- \ um. Er þetta í fyrsta skipti, sem
Flugvélar þessar eru Skymaster-1 ig á leið til Meistaravíkur, en kem- j sá háttur er hafður á að flytja vöru-
vélin Straumfaxi og skíðaflugvélin ur við i Scoresbysundi. Hún mun , birgðir með stórri flugvél til ákveð
Gljáfaxi. Sú fyrrnefnda fer.til Meist i síðar verða nokkra daga í Græn- ins staðar í Grænlandi, en selflytja
aravíkur blaðin vörum og auk þess j landi og flytja vörur þær, sem bæði síðan með skíðaflugvél víðsvegar
eru með henni 7 farþegar, danskir ; hún og Straumfaxi höfðu meðferð- til dreifbýlisins við austurströndina
veðurfræðingar og aðstoðarmenn - is til Meistaravíkur, til ýmissa smá-