Vísir - 30.04.1963, Síða 16
VISIR
Þriðjudagur 30. aprfl 1963.
Fanfani
stjórnar
áfram
Kristilegi lýðræðisflokkurinn- við
forustu Fanfani mun stjórna á-
fram með hlutleysi Nenni-jafnaðar-
manna.
Bráðabirgðaúrslit eru kunn í
þingkosningum til ítalska senatsins
og eru Kristilegir lýðræðissinnar
þar áfram stærsti flokkurinn með
144 þingsæti af 315, en fylgi flokks
ins hefir minkað úr 41,2% í 37,2%.
Kommúnistar hafa 85 þingsæti,
Nenni-jafnaðarmenn 44, jafnaðar-
menn (kratar) 13, frjálslyndir (lib
Framhald á bls. 6.
...... «
VfSIR
Vísir kemur ekki út
á morgun, 1. maí.
Ég varð fyrir mjög sárum
vonbrigðum, þegar ég komst
að því að brezku sjóliðarnir
höfðu flutt John Smith skip-
stjóra frá borði á Milwood og
yfir í annan togara, sagði Þór-
arinn Bjömsson skipherra á
Óðni í samtali við Vísi.
Þetta kom mér mjög svo
á óvart vegna þess að Hunt
skipherra á Palliser hafði full
komlega viðurkennt rétt okk-
ar til að taka togarann og
handtaka skipstjórann. Það
hafði meira að segja orðið
að samkomulagi milli okkar,
að öll skipshöfnin af Milwood
nema skipstjórinn yrði flutt
frá togaranum og áttu okkar
menn síðan að fara hið skjót-
asta um borð i togarann og
taka bæði skipið og skipstjór-
ann.
En einhver mistök urðu hjá
brezku sjóliðunum. Smith skip-
stjóri, sem hafði lýst því yfir,
að hann ætlaði alls ekki að fara
frá borði, heldur sigla skipinu
einn út, stökk yfir í bát Palli-
sers, er hann lagði frá og var
þá fluttur yfir í Juniper.
— Ég veit ekki hvað gerðist
þarna, sagði Þórarinn Björnsson,
en af öllum atvikum og fram-
komu Hunt skipstjóra, gruna ég
hann ekki um að hafa ætlað
að svíkja samkomulag okkar.
En hann hefur verið í mjög erf-
iðri aðstöðu, því að skipstjór-
inn var algerlega óður.
Þegar ég hafði síðan samband
við Hunt skipstjóra, lét ég 1 ljós
við hann vonbrigði og mikla
reiði yfir því sem gerzt hafði.
Hann gaf mér þá ekki aðra skýr
ingu á því sem gerzt hafði nema
þessa: — Skipstjórinn var alveg
óður, hann hótaði að kasta sér
Framhald á bls. 6.
Kastaðist upp úr
sjúkrabörunum
ÍSllHim SHDAR-
STOFNAR VAXANDI
Jakob Jakobsson fiskifræðlngur
kom heim í gærkvöldi, en hann fór
utan fyrir rúmri viku til þess að
sitja fund Aiþjóðahafrannsóknaráðs
ins í Bergen eða fund þeirra manna,
sem á vegum ráðsins hafa síldar-
rannsóknir með höndum.
Fundurinn stóð vikutíma. Auk
Jakobs sótti fundinn Egill Jónsson,
starfsmaður Fiskideildar, en hann
starfar í Bergen um þessar mundir
við aldursgreiningu á slld og á-
kvarðanir á síldarstofninum eftir
hreisturseinkennum. Er verið að
samræma starfsaðferðir islenzkra
og norskra síldarrannsóknamanna á
þessu verksviði.
Vísir átti viðtal við dr. Jakob
í morgun og spurði hann hvað helzt
hefði komið f ljós á fundinum.
Kvað hann komið greinilega í
ljós, að
allt benti til, að norski stofninn
hefði minnkað svo, að hann væri
nú að hann væri nú aðeins 1/12
þess, sem hann var fyrir 10 ár-
um, en sá hlutinn sem eftir er
hefur gengið æ meira á Norður-
iandsmið.
Fyrir 10 árum fór þangað 1/10—
1/5 hluti norska stofnsins, en núna
svo til allur.
Að því er íslenzku stofnana varð
ar, kom í ljós, að þeir hafa aukizt
undanfarin ár, enda hefði ekki
verið hægt að halda uppi jafnmik-
illi veiði og um hefur verið að
ræða hin síðari ár, ef svo væri ekki.
Vísir spurði dr. Jakob um skoð-
anir manna á breytingunum á síld-
arstofnunum. Hann kvað nýja ár-
ganga ekki hafa bætzt í norska
stofninn á 9 undangengnum árum,
hryggingarstöðvar hefðu færzt til
o. fl. hefði komið fram, svo sem að
sovézkir Tannsóknarmenn halda
því fram að ein megin orsökin sé
hin gífurlega smásíldarveiði Norð-
manna, en hún neraur 2—3 millj-
ónum hektólítra á ári.
Það undarlega atvik skeði hér f
Reykjavík í gær, að kona tvislas-
aðist á sama stundarfjórðungnum
í gær. Þó miklu meir f seinna skipt-
ið, en þá var hún í sjúkrabíl á
leið f slysavarðstofuna.
Þessi atburður skeði rétt um
klukkan 1 e. h. í gærdag. Kona
að nafni Laufey Sigurjónsdóttir,
Árbæjarbletti 60, hafði farið úr
strætisvagni á Nóatúni, en þegar
hún var nýkomin út úr vagninum
fékk hún aðsvif og féll í götuna.
Sjúkrabifreið var kvödd á staðinn,
var konan takin í sjúkrakörfu og að
því búnu var hún flutt áleiðis í
slysavarðstofuna.
Eins og venjulega þegar slys ber
að höndum var sjúkrabifreiðin með
kallmerki og rautt ljós, en þrátt
fyrir það ók sendibifreið frá Al-
þýðubrauðgerðinni á hana á mótum
Barónsstígs og Hverfisgötu, og það
svo harkalega að Laufey kastaðist
upp úr sjúkrakörfunni og skarst
um leið á höfði, auk þess sem
hún mun hafa fengið snert af heila-
Framhald á bls. 6.
Innbrotsþjéfur
tekinn
I fyrrinótt handtók lögreglan inn
brotsþjóf fyrir utan sælgætisverzl-
unina á Leifsgötu 4, en þar hafði
hann brotizt inn og var nýkominn
út aftur þegar lögreglan tók hann.
Fólk í húsinu hafði vaknað við
rúðubrot um nóttina og gerði lög-
reglunni aðvart. Þegar hún kom á
staðinn, var ungur piltur, mjög
drukkinn, fyrir utan húsið og hafði
þá birgt sig upp með vindla, súkku
lað,i konfekt og opal.
Þetta var utanbæjarmaður, sem
ekki hefur komið við sögu hjá lög-
reglunni fyrr. Kvaðst hann hafa
verið svo dauðadrukkinn, að hann
hafi ekki haft hugmynd um hvað
hann gerði.
Um helgina var og peninga-
þjófnaður kærður í heimahúsi.
Sátu tveir menn að drykkju, en
þegar húsráðandi var einn orðinn
eftir og gesturinn farinn, veitti
hann því athygli að horfnar voru
5 þúsund krónur I peningum.
Kærði hann þá stuldinn til lög-
reglunnar og kvaðst hafa gest sinn
gpunaðan, en til hans hafði enn
ekki náðst í morgun.
Hitaveita / stærsta áfang-
ann, HA GANA, að hefjast
Á næstunni verður
byrjað á stærsta áfanga
þeirra miklu hitaveitu-
framkvæmda, sem nú
standa yfir. Er það hita-
veita í Hagahverfið og
er ætlunin að hitaveitu-
framkvæmdunum verði
lokið í miklum hluta
hverfisins fyrir 1. nóvem
ber en þeim verði öllum
lokið fyrir 1. ágúst á
næsta ári.
Hverfi þau, sem hér eiga að
fá hitaveitu, eru afmörkuð af
þessum götum: Suðurgötu, Nes-
vegi, Kaplaskjólsvegi, Ægisíðu,
Shellvegi og aftur á Suðurgötu.
Á þessu svæði eru nú um
260 hús og er það nærri helm-
ingi fleiri hús en á næststærsta
áfanganum. — Kostnaðarverð
hafði verið áætlað um 20 millj.
Framh. á bls. 6.