Vísir - 22.08.1963, Qupperneq 4
4
V í SIR . Fimmtudagur 22. ágúst 1963.
ANDREA ODDSTEINSDÓTTIR
RITAR FJÓRÐA OG SÍDASTA
TÍZKUSRÉF SITT FRÁ PARÍS
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
ast, er þær halda formleg mat-
arboð í heimahúsum. Þessir
kjólar eru stundum úr grófum
efnum og yfirleitt einfaldir. Það
er mjög mikið í tízku hér í
París, að frúr klæðast þannig
kjól, er þær halda formleg mat-
arboð. Sumir eru einnig tví-
skiptir, blússan sportleg og pils-
ið rykkt, aðrir með blússu og
víðum buxum með líningu um
öklann og svo pils utan yfir,
sem er opið í báðum hliðum
frá mitti.
Það mætti auðvitað skrifa
miklu lengra mál um þessa sýn-
ingu, en ég læt þetta stutta yfir-
lit nægja að svo stöddu.
JACQUES ESTERÉL
í gær fór ég á mjög skemmti-
lega tízkusýningu hjá Esterel.
Þessi sýning hafði flest til sin
ágætis. Hún var í senn frumleg,
smekkleg og einföld, og fötin
höfðu þann stóra kost, að þau
voru öll nothæf og hentug.
Esterel hélt sína fyrstu sýn-
ingu fimm dögum á undan Dior
og margir vilja halda því frani,
að nokkurra áhrifa frá honum
hafi gætt hjá Dior. Þegir á
allt er litið fannst mér föt Est-
erel stílhreinni og glæsilegri.
Þetta er í annað skiptið, sem
ég fer til Esterels og nú sýndi
hann dragtir, kvöldkjóla og sel-
skapskjóla. Öll föt Esterels
voru kennd við borgir, dragt-
ina, sem mér fannst fallegust,
kenndi hann við Calcutta. Hún
var græn úr þunnu upphleyptu
ullarefni, jakkinn var laus, *ví-
hnepptur með litlum hornum,
Dragt og sportklæðnaður teiknaður af tízkuhúsi Diors.
ísettum ermum og skásettum
vösum. Innanundir var kjóll
upp í háls að framan og drann-
erað bak úr svörtu chiffoni.
Höfuðbúnaðurinn við þessa
dragt var svört chiffonslæða og
á hana var klippt út gat fyrir
andlitið, en slæðan sjálf náði
niður fyrir axlir. Þetta var ljóm
andi fagur og frumlegur höfuð-
búnaður. Þarna gat einnig að
líta kvöldkjól úr svörtu, léttu
siikiefni. Hann var mjög slétt-
ur og einfaldur, ermalaus og
aðskorinn í mittið og pilsið
þröngt. Blússan að framan var
úr hvítu skinni, flegin í bakið
og með einu svörtu þverbandi.
Síður samkvæmiskjóll vakti
mikla hrifningu, enda var hann
í einu orði sagt stórkostlegur,
har.n var úr svörtu, léttu silki-
efni, alveg beinn upp í háls,
með löngum ermum .alsettur
kristalperlum, með svörtum
skinnkaníi að neðan.
Þetta eru síðustu tízkufréttir,
sem ég skrifa frá París að þessu
sinni.
• ©
Onnur heimsókn í
Parfs I júlí.
1 fyrradag fór ég að sjá tízku-
sýningu hjá Dior, sem er fræg-
asta og stærsta tízkuhúsið í
heimi, en það er ekki þar með
sagt, að það sé þekktast fyrir
smekkvísi og listræn vinnu-
brögð. Þaraa- voru sýndir 200
klæðnaðir, dagkjólar, kápur,
dragtir, kvöldkjólar, síðir sam-
kvæmiskjólar, skinnavörur og
hattar, sem yfirleitt sátu mjög
framarlega, auk þess hinir svo-
kölluðu klúthattar, sem eru
mjög skemmtilegir og óvenju-
legir svo og skór, sem notaðir
eru við kápur ,og dragtir, götu-
skór mjög þægilegir og fallegir
með breiðup, lágum hæl. Þeir
eru sniðnir þannig, að þeir ná
hátt upp á ristina.
Stórvægilegasta byítingin, sem
fram kom á þessari sýningu,
var sú, að axlir á mörgum káp-
um og drögtum voru stoppað-
ar. Síddin er sú sama og áður.
TVTargt var þarna skemmtilegt
1’JL að sjá, þó sumt af þessum
fötum væru í rauninni aðeins
sýningargripir, sem engri konu
kæmi til hugar að ganga í, þótt
margir þeirra væru frumlegir og
fallegir.
Kápurnar í ár hjá Dior eru
yfirleitt fyrirferðarmiklar, marg
ar hverjar tvíhnepptar, sumar
með mikilli vídd og laskermum,
en aðrar beinar og talsvert
stoppaðar á öxlum. Kápumar
voru flestar með stórum, háum
trefli eða skinnkraga, sefn náði
upp að augum.
Dragtirnar eru margar með
tveim jökkum, lítill innan und-
ir jakki og annar hálfsíður utan
yfir.
Pilsin eru yfirleitt örlítið út-
sniðin eða með lokufellingu frá
mitti, bæði aftan og framan.
Þarna voru líka til sýnis dragt-
arkjólar, kjóllinn beinn og blúss
an úr rússkinni, ermalaus, og
jakkinn kragalaus, en með mikl
um trefli.
TZ völdkjólarnir eru margir
hverjir úr léttum crepefn-
um með chiffon-ermum og
-brjósti. Þeir eru mjög fínir og
kvenlegir. Aðrir eru mikið flegn
ir í bakið, alveg niður í mitti
og aðrir niður á mið brjóst.
Síðu samkvæmiskjólarnir eru
allflestir mikið skreyttir perl-
um og pallíettum, mjög skraut-
legir, mittið á mörgum þeirra
var upp undir brjóstum (ekki
ósvipaðir búningi kvenna á Mið
öldum) og mikið bar þama á
löngum ermum.
Vonandi verður mikið um
síða samkvæmiskjóla á Islandi
í vetur, af því að kvenleg feg-
urð nýtur sín aldrei betur en í
síðum samkvæmiskjól.
Mesta athygli vöktu síðir
móttökukjólar, sem frúr klæð-