Vísir - 20.09.1963, Page 2

Vísir - 20.09.1963, Page 2
2 m VÍSIR . Föstudagur 20. september 1963. HJÓLBARÐA SALA • VIÐGERÐIR Simj 3 29 60 ferrania filmur íþróttamúlin rædd í HaukodaEs „Kvittun fyrír að skyldur sínar vií Ifkamann — sagðí iens Guðbjörnsson um íþróttumerki ÍSf, sem er stórmerk nýjung Eitt þeirra mála, sem tekið var fyrir á fundi ÍSÍ með forráðamönnum héraðssambandanna og sérsam- bandanna um síðustu helgi í Haukadal var hið nýja Iþróttamerki ÍSÍ. Það var Jens Guðbjörnsson, sem flutti greinargóða framsögu í málinu og teíjum við ástæðu til að flytja hér á eftir framsöguræðu Jens eins og hann flutti hana í Haukadal, ekki sízt þar eð í henni er skírt ítarlega frá íþróttamerkinu í framkvæmd, en okkur er kunnugt um að það er nokkuð óljóst fyrir mörgum. Er því vonandi að menn kynnist þessari stór- merku tilraun ÍSÍ til að auka almannaíþróttir í landinu. Fer hér á eftir erindi Jens. Góðir íþróttaleiðtogar. Það hefir fallið I minn hlut að hafa framsögu um íþróttamerki m. '' Eins og flestum ykkar er kunn- ugt, hafa allar Norðurlandaþjóðim- ar nema íslendingar haft slíkt merki til þess að keppa um og það nú um nokkra áratugi, þau sem fyrst hófust handa í þessu nauð- synlega og merkilega máli. Tilgangurinn með Iþróttamerki íþróttasambands íslands er sá að vekja og viðhalda áhuga manna fyrir alhliða íþróttaþjálfun. Iþrótta merkið getur hver íslenzkur ríkis- borgari tekið, þegar hann er orð- inn 16 ára. Iþróttamerkið er gert úr eir, silfri og gulli. Iþróttaafrekum þeim, sem hver maður skal vinng, til þess að fá merkið, er skipt í fimm flokka. Skal leysa af hendi eitt afrek inn- an hvers flokks og er það frjálst val þátttakanda að öðru leyti, hvaða þraut hann kýs að reyna við. Til þess að hljóta íþróttamerkin skal inna af hendi íþróttaafrek þau sem krafizt er, svo sem hér segir: Eirmerki: í fyrsta sinn, annað og þriðja sinn, sem þrautirnar eru Ieystar af hendi, hlýtur þátttak- andi rétt til eirmerkja, sem númer- uð eru f þeirri röð, sem til þeirra er unnið. Silfurmerki: I fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda sinn sem þraut- in er leyst af hendi, hlýtur þátt- takandi rétt til silfurmerkis, sem númeryð eru í þeirri röð, sem til þeirra er unnið. Gullmerki: I áttunda sinn sem þrautin er leyst af hendi, hlýtur þátttakandi gullmerki. Undanteknlngar vegna aldurs: a) f>eir, sem orðnir eru 30 ára, þurfa aðeins að leysa þrautirnar tvisvar sinnum af hendi, til þess að hljóta silfurmerki. b) Þeir, sem oru orðnir 30 ára, þurfa að leysa þrautir þrisvar sinnum af hendi, þar af einu sinni eftir að 35 ára aldri er náð, til þess að- vinna til gull- merkis. íþróttamerkið er aðeins hægt að taka einu sinni á ári, og ber að skila gögnum um prófið til íþrótta- merkjanefndar I.S.I. fyrir lok jan- úarmánaðar næsta ár. Ég hefi hér að framan getið um eir, silfur og gullmerki, en fjórða stigið er svo framtíðarinnar: fögur stytta af íþróttamanni. Vér íslendingar byrjum síðastir Norðurlandaþjóðanna á þessu merkilega máli eins og áður er sagt en ég fagna því innilega að bætzt hefir einn dýrmætur liður til þess að auka á fjöibreytni í íþrótta- og æskulýðsstarfi voru, sem sagt að fá almenning, fólk á öllum aldri, til meiri og hollrar útivistar hver við sitt hæfi, enda miðað við þrjá aldursflokka við íþróttamerkjatöku, þ. e. 16—18 ára, 19—40 ára og 41 og eldri. íþróttamerkið er aðeins kvittun, ef ég mætti orða það þannig, fyrir því að heilbrigðir menn hafa rækt nauðsynlega skyídu við lík'ama sínn þvf hvað er oss nauðsynlégra á þessari vélvæðingaröld én holl og góð hreyfing í góðum og glöðum félagsskap. Iþrótta- Og ungmennafélög hvar sem eru á landinu gætu efnt til merkjatökumóta um helgar eða á einhverjum ákveðnum degi að minnsta kosti einu sinni í mánuði, og eftir æfingar hjá hinum ýmsu íþróttaflokkum er oft tilvalið tæki- færi að reyna við þrautirnar, því víðast hvar er hægt með góðum undirbúningi að leysa 1 þraut úr 3 flokkum af 5 1 sama skipti. Fyrir nokkrum árum vildu Norð- menn fá Svía og Dani í lands- keppni um íþróttamerki ~þessara þriggja þjóða. Noregur hafði þá um 10.000 þátttakendur, en Svíar 30.000. Danir treystu sér ekki til þessarar keppni vegna þess hve Myndimar á síðunni tók ljósm. Vfsis austur í Haukadal um siðustu helgi. Á ræðupúltinu er hinn aldni jöfur Sigurður Greipsson bóndi í Haukadal, en hann var gestgjafi fundarmanna og fórst þáð af mesta myndarskap. Hin myndin er af fundarmönnum. blöðin í landinu veittu þeim lítinn stuðning, en Norðmenn og Svlar lögðu til atlögu. Miðað við fólksfjölda þurftu Norðmenn að auka þátttöku sfna um 40% til þess að sigra. Það var há tala sögðu margir, en aðrir svör uðju vissulega er það rétt, en ef við aðeins fáum 2 þátttakendur í viðbót frá hverju félagi verður aukningin 7000. Úrslitin urðu þau, að Norðmenn sigruðu með glæsibrag og hlutu veglegan bikar að launum. Ég get þessa hér, aðeins til að rökstyðja það einu sinni enn, að ef samhugur ríkir og vilji er fyrir hendi er hægt að komast langt. Þann 17. júní s.l. var hringt til mín áf framkvæmdarstjóra I.S.I., Hermanni Guðmundssyni, og sagði hann þau óvæntu tíðindi að 11 í- þróttamerki þyrfti að afhenda þann dag. Var það unglingalandsliðið í körfuknattleik sem hafði unnið brautryðjendastarf, sem voru okk- ur öllum, sem að þessum málum vinna, gleðitíðindi mikil. Var þessum ungu myndarlegu piltum afhent merkið á leikvangin- um í Laugardal, í sambandi við 17. júní mótið, við mikinn fögnuð við- staddra, meðal annarra forsetahjón anna hf. Ásgeirs Ásgeirssonar og frú Dóru Þórhallsdóttur. Þegar íþróttakennaraskóla Is- lands var slitið í vor, höfðu þeir 6 piltar sem stunduðu nám þar slð- astliðinn vetur, unnið til merkjanna og afhenti forseti I.S.I Gísli Hall- dórsson þeim merkin f lok skóla- uppsagnarinnar með stuttrj hvatn- ingarræðu. Kæru íþróttasamherjar. Innan 1- þróttasambands íslands eru nú 7 sérsambönd, 26 héraðssambönd með 232 fþrótta- og ungmennafé- lögum. Ef við samstillum þessa krafta af alhug fyrir þessu þjöð- nytjamáli, Iþróttamerki Í.S.l. og til gangi þess, og setjum okkur það mark að að meðaltali tækju íþrótta merkið fjórir úr hverju félagi. Á árinu 1964 væri þátttakendafjöld- inn orðinn rúm 1000 þá er ég ekki óánægður, en kannski finnst ykk- ur þessi tala of lág, þá verður enn gleðilegri árangur, því ef við kom- um þessu vel af stað, kvíði ég engu með framhaldið. Þökk fyrir áheyrnina. Jens Guðbjömsson. RAM MAGERÐIN! GRETTISGÖTU 54 SÍMI-I 91 OSl

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.