Vísir - 21.09.1963, Síða 13
VióíK . Laugardagur 21. september 1963.
13
Homo aquaíicus —
Framhald af bls. 9.
gjálfrinu viS strendur Miðjarð-
arhafsins. Sjö metra háar bylgj-
ur hrifu flota ,Cæsar og þeyttu
honum langt upp á land. Og
það var aðeins fyrir harðfengi
hinna vel vopnuðu manna
sinna, að honum tókst að berja
á hinum vopnlitlu Englending-
um.
í viku neðansjávar.
í september 1962 beindist
athygli margra samt að hafinu
og ástæðan var ekki svo lítil.
Tveir froskmenn, þeir Albert
Falco og Claude Wesly, áttu
aði gera tilraun til þess að búa
í heila viku neðansjávar. Til-
gangurinn var sá, að athuea
hvort menn gætu unnið og lif-
að sæmilegu lífi f hinum mikla
þrýstingi sem á þeim hvílir
undir yfirborði hafsins.
Það var 14. september að
froskmennirnir tveir lögðu í
djúpið. Þeim var sökkt niður í
köfunarhylkinu Diogenes, sem
átti að vera heimili beirra með-
an á tilrauninni stóð.
Fyrst eftir að hylkinu var
sökkt í sjóinn, var — þótt
undarlegt megi virðast —
stöðugur straumur gesta til
þeirra tvímenninganna. Það
voru læknar, tæknifræðingar og
Ijósmyndarar, sem köfuðu nið-
ur til þess að vera fyrstu menn-
irnir sem færu í slíka neðan-
sjávarheimsókn, og til þess að
athuga hvort allt væri í lagi.
Þegar svo reyndist vera, fengu
þeir svo frið og voru látnir
eftir einir.
Fram til þessa hafði enginn
maður verið undir yfirborði
sjávarins í Iengur en 12 tíma.
„Vfsindamenn telja það ekkert
sambæriíegt að vera í kafbát,
þar sem allt er gert til þess að
aðstæðurnar megi verða sem
líkastar því sem þær eru á
þurru landi. Þeir líkja kafbát-
unum einna helzt við litlar
eyjar.“
Froskpiennirnir tveir áttu
hins vegar að vera undir stöð-
ugum þrýstingi, og við sem
líkastar aðstæður og fiskar og
önnur sjávardýr. Uppi yfir hylki
þeirra voru tvö skip, Espadon
og Calypso, sem áttu að vera
samband þeirra við umheim-
inn. Þaðan fengu þeir loft og
mat, höfðu símsamband og
einnig var þar í sambandi sjón-
varpstökuvél, sem tók myndir
af því sem skeði í og utan
hylkisins.
Falco og Claude höfðu verið
valdir til tilraunarinnar, vegna
þess að þeir voru báðir af-
burðafærir froskmenn, rólyndir
og ákveðnir, og vissu vart hvað
hræðsla var.
Og samt fyrstu nóttina sem
þeir voru í hylkinu, vaknaði
Falco eftir að hafa haft hræði-
lega martröð. „Ég hafði það á
tilfinningunni að ég yrði að
komast út úr hylkinu, sagði
hann seinna. Ég var með inni-
lokunarkennd, og verkjaði í
allan líkamann. Ég reis á fætur,
og gekk að útganginum. Allt
var kyrrt og rólegt. Mælitækin
voru einnig í lagi. Claude svaf
rólegur, og ég lagðist út af
aftur, en gat ekki sofnað.
Mér fannst ég vera algerlega
yfirgefinn af guði og mönnum,
og var ákaflega einmana þarna
niðri á hafsbotni. Það var eins
og ég hefði verið veiddur í
gildru, og það sóttu á mig alls
konar fáránlegar, en ægilegar
hugsanir. Ég hafði til dæmis
miklar áhyggjur af því að hylk-
ið kynni að springa."
Þetta var í eina skiptið sem
vart varcj við ótta hjá tvímenn-
ingunum. Og ótti Falcosvarekki
svö alvarlegt tilfelli, því að
löng þjálfun hans, sem kafara
hjálpaði honum til þess að-
hafa vald á tilfinningum sínum,
og hugsa skýrt.
Daginn eftir byrjuðu þeir
svo að vinna. Tvo tíma fyrir há-
degi, tvo tima eftir hádegi, og
einn eftir kvöldmat. Þá yfir-j
gáfu þeir hylkið jafnan f frosk-1
mannsklæðum, og „gengu“ til
vinnu.
Með vissu millibili voru þeir
heimsóttir af tveimur Iæknum
sem rannsökuðu þá. Læknamir
voru báðir áhuga-froskmenn,
og það var því auðvelt fyrir þá
að fara í þessar óvenjulegu vitj-
anir, Læknaskýrslurnar sýna,
að köfurunum tveimur leið
verst á öðrum degi, og í byrj-
un þess þriðja. Eftir það byrj-
uðu þeir að hressast, og á sjö-
unda degi var þeim farið að
líða mjög vel. Til að byrja með
var þeim gefinn samskonar
matur og þeir neyttu á þurru
landi. En' á öðrum degi, báðu
þeir um að fá einhverja léttari
fæðu.
Misstu áhuga fyrir
lífinu á yfirborðinu.
/
Á þriðja degi skeði nokkuð
sem vakti mikla undrun og á-
huga þeirra lækna og vísinda-
manna sem á yfirborðinu voru.
Falco og Wesly, misstu allan á-
hugá á þvf sem var áð ské
fyrir ofan þá. ‘ Þeir hættu að
hlusta á útvarpið og horfa á
sjónvarpið, og þeir nenntu ekki
einu sinni að lesa. Falco sagði
um þetta:
„Mér var algerlega sama um
hvað var að ske þarna uppi,
eða á þurm landi, og Claude
hafði það alveg eins. Við lifðum
í öðrum heimi, og tíminn hætti
að- hafa .nokkra þýðingu fyrir
okkur. Við vissum hvaða mán-
aðardagur var, og hvaða dagur
vikunnar, en það var aðeins
vegna þess að þeir sem uppi
voru sögðu okkur það. Okkur
fannst það ekki skipta neinu
máli.“
Áhugaleysi félaganna varð
svo mikið, að þeim gramdist
það jafnvel þegar verið var að
trufla þá. Þeir voru að laga
sig að nýjum lifnaðarháttum,
og kærðu sig ekki um að vera
truflaðir. Þeir sögðu við þá
sem á skipunum voru: „Við
verðum að fá að vera einir.
Þið verðið að sjálfsögðu að
gefa okkur loft og annað, en
við viljum vera einir. Ef okk-
ur langar til þess að sjá ein-
hvern, þá skulum við segja til.“
Þessir tveir menn voru að sam-
laga sig lífinu á hafsbotni, og
þeim fannst að þessi nýja til-
vera þarfnaðist allrar athygli
þeirra.
Á sjöunda degi fóru lækn-
arnir í síðasta skipti niður til
þess að athuga þá Claude og
Falco. Og að þeirri rannsókn
lokinni voru þeir dregnir upp
á yfirborðið, eftir að hafa íifað
við sömu aðstæður og fiskar í
heila viku.
Tilraunin
velheppnuð.
Tilraunin tókst vel, og aðrar
tilraunir sem síðan hafa vérið
gerðar hafa einnig leitt margt
í ljós. Vísindamenn vinna stöð-
Sýningin verður opin áfram í dag og á morgun frá
kl. 2-7 en er lokuð á sunnudagskvöld.
ugt að því að fullkomna alls
konar tækni, sem orðið geti til
þess að menn geti lifað sem
óháðastir neðansjávar.
I Bandaríkjunum er verið að
fullkomna gervitálkn, sem kaf-
arar geta notað til þéss að sjá
blóðinu fyrir súrefni og losna
þannig við að þurfa að nota
öndunartæki. Tálknin er hægt
að festa undir handlegg, og
tengja við hjartaslagæðina
(aorta) með einfaldri aðgerð.
Þegar er byrjað að tala um
Homo Aquaticus, þ. e. menn
sem munu lifa algerlega neðan-
sjávar, og búa í neðansjávar-
borgum. Og þróunin getur vel
orðið sú, að þessir sjávarbúar
geti verið óháðir, og þurfi ekki
neina hjálp frá hinum venju-
legu, jarðbundnu manneskjum.
Og þá verður hægt að tala
um sjómenn, í orðsins fyll^tu
merkingu
Guðlaugur Einarsson
Málflutningsskrifstofa
Freyjugötu 37
Sími 19740
KVENSKÓR
Tökum upp 9 gerðir af Hollenskum skóm
með innleggi á mánudagsmorguninn kl. 9
Mikið úrval af breiðum skóm. Lítið í glugg-
ana um helgina.
STEINAR S. WAAGE
Laugaveg 85 — Sími 18519
prestaköllin
Safnaðarfundir, til að kjósa sókn-
arnefnd og safnaðarfulltrúa, hafa
verið auglýstir í hinum nýju presta-
köllum: Fyrir Ásprestakall í kvik-
myndahúsi D.A.S. sunnud. kl. 1,30,
og fyrir Grensásprestakall f Golf-
skálanum sama dag, sunnudag 22.
þ. m. kl. 4 e. h.
Til þess að auðvelda fólki að
vita, hverjir eiga kosningarrétt í
þessum sóknum, hefir dómprófast-
urinn sent blaðinu þessar upplýs-
ingar:
Til Ássprestakalls telst þjóð-
kirkjufólk, sem búsett er við þess-
ar götur:
Ásvegur — Austurbrún — Brúna
vegur — Dalbraut — Dragavegur
— Laugarásbl. — Dyngjuvegur —
Efstasund nr. 2 — 64 — Engjavegur
(Bræðrapartur, Bræðrapartur A,
Bræðrapartur B, Engjabær, Laug-
ardalur, Laugatunga) — Hjallaveg-
ur — Hólsvegur — Holtavegur
(Engjabær, Langholt) — Kambs-
vegur — Kleifarvegur — Klepps-
vegur (nr. 52—108, Heiði, Hlíðar-
endi, Hrafnista, Kleppur— ,hjúkr-
unarbústaður, Kleppur, Kleppur —
Prófhús, Kleppur — Víðhlíð, Mel-
staður, Nafta, Sólvellir, Ægissíða
— braggar — 5, 6, 7, 8, 9 og 11)
Langholtsvegur (stök númer 1 —
69 og jöfn númer 2 — 84) — Laug-
arásvegur — Laugamýrarbl. —
Múlavegur (Hafrafell, Laugarás,
Reykjaborg) — Selvogsgrunn —
Skipasund (stök númer 1—51 og
jöfn númer 2—56) — Sporðagrunn
— Suðurlandsbraut (Álfabrekka)
— Sundlaugavegur (Breiðablik,
Efstahlíð (Holt), (Hringsjá), Jaðar,
(Mold, Reykir, (Úthlíð), Braggi við
Norðurhlíð, Bragg; 12, 13, 16, 18)
— Sunnuvegur — Vesturbrún.
Til Grensássprestakalls telst
þjóðkirkjufólk, sem búsett er við
þessar götur:
Brekkugerði — Bústaðavegur
— Sogamýrabl. — Grensásvegur
(jöfn númer 24 — 60, Fagrahlíð) —
Háaleitisvegur (Sólheimar) — Háa-
leitisvegur, Kringlumýrarbl. 23 og
24 — Háaleitisvegur, Sogamýrar-
bl. 32, 34, 36, 38, 49, 41 og 59 -
Heiðargerði — Hvammagerði —
Hvassaleiti — Mjóumýrarvegur,
Kringlumýrarbl. 19 — Seljalands-
vegur, Kringlumýrárbl. 12, 14, 15
og 17. — Skálagerði — Stóragerði
— Bústaðavegur: Fossvogsbl. 30,
31, 39, 42, 42A. 47, 49, 50, 51,
54, 55 — Bústaðavegur: Bústaða-
bl. 3, 7, 23 — Bústaðav.: Fossvog
ur — Fossvogsvegur: Fossvogsbl.
2, 2A, 3, 5, 13 og 14 - Klifvegur:
Fossvogsbl. — Reykjanesbraut:
Garðshorn, Hjarðarholt, Kirkju-
hvoll, Leynimýri, Rauðahús, Sól-
bakki, Sólland og Br. 88 Fossvogi
— Sléttuvegur — Sléttuvegur:
Fossvogsbl.
Drengur slasnsf
í gærkveldi, laust fyrir kl. 7,
var sjúkrabifreið kvödd að mótum
Bergstaðastrætis og Skólavörðu-
stígs vegna drengs, sem talið er
að hafi verið hrint í götuna.
Drengurinn heitir Sveinn Lárus
Austmann og blæddi nokkuð úr
höfðj hans þegar sjúkrabifreiðin
kom á vettvang. Hann var lagður
inn í slysavarðstofuna til aðgerðar,
en að þvi búnu leyft að fara heim.