Vísir


Vísir - 02.10.1963, Qupperneq 11

Vísir - 02.10.1963, Qupperneq 11
V1S I R . Miðvikudagur 2. október 1963. ]] HW'T MHIIl ——JBg|—^j-T-ip.. «,„!ir-T'.T~---r-j Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Máninn í sólmerki þínu bendir til þess að þú sért nú í sviðsljósinu og athygli annarra beinist nú meir að þér heldur en venjulega. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Plánetustraumarnir eru nú með veikara móti hvað þig áhrærir Í og er þér því óráðlegt að hafa þig mikið í frammi eða standa fyrir framkvæmdunum yfirleitt. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júnl: Þú kannt að sjá einhverja af vonum þínum rætast fyrir tilstuðlan velviljaðs vinar þíns 1 dag. Þú ættir sem mest að vera á ferli meðal kunningj- anna. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þér býðst óvenjulega gott tæki- færi til að bæta aðstöðu þína á vinnustað og auka þar með á- lit yfirmanna þinna á þér. Umb- un fyrri starfa þinna gæti nú fallið þér í skaut. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst: Nú eru sérstaklega heppilegar afstöður fyrir þig til að ann- ast þær bréfaskriftir, sem þér eru skyldar til ættingja og vina erlendis eða í fjarlægum lands- hornum. Meyjan 24. ágúst til 23. sept.: Sameiginleg fjármál þfn og maka þfns eða náinna félaga eru nú undir óvenjuhagstæðum afstöðum og því heppilegast að framkvæma eitthvað sameigin- legt til úrbóta efnahagnum. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Þú ættir að gefa maka þfnum eða nánum félaga tækifærf til að koma með sínar tillögur um málin, því þessir aðilar eru nú mun betur fyrir kallaðir til slíks heldur en þú. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Gangur mála á vinnustað er nú með allra bezta móti og auð- velt ætti að vera fyrir þig að afkasta mun meiru heldur en að vanda lætur. Reyndu nýjar aðferðir. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Afstöðurnar eru óvenju hagstæðar með tilliti til róman- tíkurinnar eða ástamálanna yfir leitt. Góð tækifæri bjóðast, þeim sem bregða sér á manna- mót. Steingeitin, 22. des. til 20. jan. jan.: Þróun mála heima fyrir einkar heillavænleg síðari hluta dagsins. Rausnarlegur aðili kemur mikið við sögu. Gestrisni af þinni hálfu yrði vel þegin. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Stutt ferð til vina eða náinna ættingja gæti orðið þér óvenju árangursrík. Gerðu ná- grönnum þínum grein fyrir af- stöðu þinni til málanna. Fiskamir, 20. febr. til 20. marz: Persónuleg fjármál þfn eru undir afar góðum afstöð- um og ábótasöm tækifæri bjóð- ast fyrir tilstuðlan höfðinglegs manns. Umbun viðleitni þinnar gæti einmitt nú fallið þér í skaut. Fundarhöld Frá Styrktarfélagi vangefinna. Konur í Styrktarfélagi vangefinna halda fund f dagheimilinu Lyngás fimmtudagskvöld 3. október kl. 8.30. Fundarefni: Frú Sigríður Ingimarsdóttir segir frá 12. þingi Norðurlanda um málefni vangef- inna. Rætt um vetrardagskrána. Strætisvagnar ganga frá Kalk- ofnsvegi á heilum og hálfum tíma. 6ELLA r /ðSs Auðvitað hefðuð þér getað gert eitthvað til þess að forðast þetta. Til dæmis lagt í annarri götu. Blöð og tímarit Heimllisblaðið Samtfðin. Októ- berblaðið er komið út, fjölbreytt og skemmtilegt. Efni: Skálholt í Biskupstungum, eftir Sigurð Skúlason ritstjóra. Kvennaþættir eftir Freyju. Merk nýjung f ísl. kortagerð — samtal við Viggó Oddsson. Smakkaðu á (smásaga). Grein um kvikmyndadísina Nata- lie Wood. í dauðaklefum Sing- Sing. Elztu Iffverur jarðarinnar, eftir Ingólf Davíðsson. Skákþátt- ur eftir Guðm. Arnlaugsson. — Bridge eftir Árna M. Jónsson. Stjörnuspádómar fyrir október. Or einu — í annað. Nýjar erl. bækur. Þá er fjöldi skopsagna, getraunir o. fl. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Öskari J. Þor- lákssynf ungfrú Jóna Conway og Helgi Vilhjáimsson. Heimili ungu hjónanna er að Skjólbraut 3, Kópavogi. Eftir að kóngurinn á þennan óvirðulega hátt hafði verið fjar- lægður úr brúnni á Krák, dró bar ón Friðrik sig í hlé og sat f þung- um þönkum í herbergi konungs- ins. Það þarf að vera einhver gáf- aður maður, sem ræður fram úr þessu vandamáli, hugsaði hann. Og það er tæplega gáfaðri maður en einmitt ég hér um borð, svo að það kemur auðvitað f minn hlut að sjá um að þetta endi ekki á einhvern voðalegan hátt. Regl- umar hafa verið brotnar, meira að segja mölbrotnar, og svo hef- ur verið farið með kónginn eins og „messa gutt“. Halló Friðrik! hrópaði glaðleg rödd. Frikki sneri sér við, og sá konunginn koma skokkandi með sjómannsföt undir handleggnum. Yðar hátign, sagði Frikki, eruð þér ekki reiður yfir þessari svívirðilegu meðferð? — Hvemig ætlið þér að refsa skip- stjóranum? Kóngurinn lyfti brún- um. Refsa Friðrik? Hvers vegna skyldi ég refsa honum? Mér líkar vel við skipstjórann, mjög vel. Og hann gekk flautandi inn í klefa sinn. Kalli og kóng- urínn CAN'T SPOT MINö OR THE OTHERS. WONPER IF IT'S . SA\FE TO (5ET OUT CF ........, THIS THIN&/ THEPRA60N " Wia NOT SEE WELL ABOVE HIM.TÁKE YCUR ÁiMFROMTOAT BALCONY... / MY ÞREAM AT LAST/A FORWNE, ANP AWAY FROMMIN&/ . Ég sé ekkert til Ming eða kumpána hans, hugsar Kirby með sér, þar sem hann röltir um í gervi drekans. Mér þætti gaman að vita hvort það r,é óhætt að afklæðast þessum skrúða. Á með- an gengur Ming um með mönn- um sínum, og skipar þeim í fylgsni. Farðu þangað upp, segir hann við einn þeirra, og bendir á svalir. Drekinn sér ekki vel upp fyrir sig. Og meðan hernað- araðgerðirnar eru skipulagðar af mestu nákvæmni, hleypur Fan með dúkkuna og gimsteinana út úr kránni. Loksins er draumurinn að rætast ,hugsar hún. Ég hef heilan fjársjóð og er laus við Ming. Marlene Dietrich er búin að gefa út bók — eins komar leksikon. Bókin ku vera und- arleg samsetning kvenlegrá klækja, gáfna og yndisþokka — og mataruppskrifta. Hér er sýnishorn- af þvi sem Marlene segir: Ást: Látið fíann sigla sinn sjó ef hann elskar yður ekki — látið hana sigla ef hún elskar yður ekki. Afbrýði: Síamstvíburi ást- arinnar. Dama: Það sem sérhver móð ir vill að dóttir hennar verði. Fiðla: Tákn draumsins, sem brást. Gyðingur: Ég ætla ekki að reyna að lýsa því dularbandi, sem tengir mig Gyðingum. Það er sterkara en band blóðsins. Marlene Dietrich Hatun Ég þekkti hatrið á árunum 1933 — 1945. Það eru enn Ieifar af hatri í hjarta mér, en ég eyði hvorki orku ná tíma í að útrýma því. Það er erfitt að lifa með hatur í hjarta, en ef aðstæðumar kref jast þess, verður maður að herða sig upp í að hata. Ég held að ég gæti aldrei hatað nokkum, sem hefði gert mér sjálfri persónulega illt. Það þarf eitthvað meira til að vekja með mér hatur. Hjónaband: Sá tími kemur, að jafnvel gáfuð kona segir við eiginmann sinn: — Ég hef gefið þér beztu ár ævi minn- ar. ítalskir karlmenn: Fallegir en tómir. Kartöflur: Ég elska kartöfl- ur. Ég borða þær. Lífið: Lífið er ekkert frí. Sá, sem mætir því með þá hug mynd um það, fær fljótt leið á lífinu. Make-up: Það leiðinlega er, aö við þörfnumst þess flestar. Móðurást: Hreinasta og ástríðufyllsta tegund ástarinn ar. Óumbúið rúm: Karlmaður vill heldur koma heim að óum búnu rúmi og hamingjusamri konu, en umbúnu rúmi og óhamingjusamri konu. París: Heimili, sem stendur við það sem það hefur lofað. Táldráttur: Sérhver sem hef ur verið tældur, hefur viljað láta tæla sig. >f Formaður læknasamtakanna í New York, dr. Oscar Hamp- ton, kom því f gegn á þingi einu að sjúkrabílar borgarinn- ar fengu ekkj leyfi til að aka hraðar en 45 km. á klst. Till. hans var byggð á því að sam- kvæmt margra ára rannsókn- um hefur það komið í ljós, að sjúkrabílar valda dauða fleiri manna en þeir bjarga.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.