Vísir - 11.10.1963, Page 5
VtSIR . Föstudagur 11. október 1963.
Drengur fyrír bíl
vií heimili sitt
Sinfóriían kveður sér hljóðs
Sinfóníuhljómsveitin hóf
vetrarstarf sitt hér í Reykja-
vík, með hljómleikum í Há-
skólabíói í gærkvöldi. Voru
þeir að mörgu leyti forvitni-
legir, og þá auðvitað fyrst og
fremst vegna þess, að þar
komu fram nýr stjórnandi, írinn
Proinnsias O’Duinn, og tveir
sólistar sem ekki hafa áður lát-
íð til sín heyra á hljómsveitar-
konsertum, þeir Guðmundur
Guðjónsson tenórsöngvari, og
Ketill Ingólfsson píanisti. Þrátt
fyrir nokkum óstyrk í upphafi
fyrsta verksins, Leónóruforleiks
ins nr. 3 eftir Beethoven, mátti
þá þegar heyra hljóm sem mað-
ur var farinn að halda að hefði
verið úthýst með öllu hér á
landi. Þ. e. þegar allir hljóð-
færaleikararnir leika óumdeil-
anlega samkvæmt einni og
sömu tónstillingu. Slíkt var
sem sé orðið heldur fátítt um
skeið, hvort sem um var að
kenna barnalegum deilum um
A 430 eða 44 o. s. frv., eða
hreinu og beinu kæruleysi. Ann
ars var forleikurinn heldur í
andstyttra lagi, og náðist varla
fram nema hluti þeirrar drama-
tísku kyngi sem í honum býr.
Guðmundur Guðjónsson söng
fimm lög eftir Pál ísólfsson,
sem Hans Grisch prófessor frá
Þýzkalandi hefur fært í hljóm-
sveitarbúning og gerði það
með prýði. Öll þessi lög eru
upphaflega samin fyrir söng-
rödd og píanó, og það þannig,
að erfitt er að hugsa sér þau
í öðrum búningi. En Grisch
hefur tekizt að gera þau tals-
vert sannfærandi í hljómsveit-
argervinu, og beitir reyndar til
þess mjög einföldum og venju-
legum meðölum, sem duga hér
til síns brúks. Eini gallinn er,
að búningurinn er nokkuð ein-
litur. Þessi lög er óþarfi að
kynna fyrir íslendingum, söng-
elskum eða laglausum, því þau
þekkir hvert einasta manns-
barn. Þó finnst mér alltaf „Sáuð
þið hana systur mína“ bera af,
og það ekkj aðeins lögum Páls,
heldur allflestum sönglögum
sem hér hafa verið fest á blað.
Einleikur Ketils Ingólfssonar
I tiltölulega léttvægum, en ekki
auðveldum píanókonsert eftir
Weber, færði heim sanninn um
að hann er efni I afbragðs lista-
mann. Mátti vel heyra það,
þrátt fyrir að hljóðfærið sem
hann hafði undir höndum er
gjörónýtt, og tónlistarlífi höfuð-
staðarins reyndar tli háborinn-
ar skammar.
Að lokum lék hljómsveitin
áttundu sinfóníuna eftir Dvor-
ak. Þetta er mikið glæsiverk,
sem reynir á hljómsveitina til
hins itrasta, og verður ekki
annað sagt en að þeim kröfum
var vél svarað að þessu sinni.
Stjórnandinn náði fram öllum
hugsanlegum blæbrigðum tóna
og hljóðfalls, sem hann felldi á
einkar vel skipulagðan hátt
inn í heildarbyggingu flutnings-
ins, og útkoman var einn áhrifa
mesti leikur hljómsveitarinnar
um langan tfma. Nú má vel
vera, að nýtt andlit á stjórn-
andapalli hafi mest að segja um
þetta, og þegar frá líður, og
þetta andlit gerist gamalkunn-
ugt, falli ailt í sama hjakkfar-
ið aftur. En það breytir engu
um, að hljómsveitin hefur látið
skína I hvað hún raunverulega
getur, og því verður ekki
gleymt. Og þess skal þá einnig
minnzt, að skipti við þá vest-
menn, hafa fyrr reynzt heilla-
drjúg íslenzkri menningu.
Leifur Þórarinsson.
Fimm ára drengur, Gunnar
Tryggvason, Tungu við Laugaveg,
varð í gærdag fyrir bifreið fyrir
framan heimili sitt og var fluttur
á Landspítalann. Líðan hans í
morgun var eftir v.onum, en hann
hefur hlotið slæman heilahristing
og var ekki fyllilega kominn til
sjálfs sin.
Gunnar Iitlí varð fyrir bifreið
sem var á leið inn Laugaveg, og
að sögn bifreiðarstjórans hljóp
Macmillan —
Frh. af bls. 6:
inn, jafnvel þótt hann heppnað-
ist, að hann treysti sér ekki til
þess að hafa forustuna í kosn-
ingabaráttunni.
Mikið lof er borið á Macmill-
an í blöðum — en sumir telja
hann hafa dregið fulllengi að
taka ákvörðun sína.
Wilson, formaður jafnaðar-
manna segir nú efst £ sér og
sfnum mönnum, að Macmillan
megi ná skjótri og fullri heilsu.
Tilkynningar lækna Macmill-
ans í morgun herma, að þeir
séu ánægðir með líðan
hans eftir uppskurðinn, sem var
gerður á honum í gær. Yfir-
læknirinn er kunnur sérfræð-
ingur I nýrna- og blöðrusjúk-
dómum.
Góðir gestir —
Framhald at bls. 8.
menn til landsins, og bentu m.
a. á hvernig sportveiði við
strendur landsins hefði verið
skipulögð í því skyni. Ef til
vill gætu íslendingar lært eitt-
hvað af írum á sviði ferðamála.
Allir létu þeir félagar og frú
Murphy í ljós áhuga á að
koma aftur til íslands og þá að
sumarlagi. Héðan fóru þessir
góðu gestir fyrir nokkru loft-
leiðis, sölustjórarnir og frú
Murphy til Kaupmannahafnar.
Fylgja þeim beztu óskir þeirra,
sem kynntust þeim i allt of
skammri dvöl þeirra hér.
- A. Th.
drengurinn skyndilega £ veg fyrir
bílinn og varð hann ekki var við
hann fyrr en hann skall á bílnum.
Barst drengurinn síðan með bíln-
um alit að 15 metra og kastaðist
í götuna.
Ljósmyndari Vísis B. G. kom að
slysstaðnum rétt eftir að slysið
vildi til og sýnir myndin sjúkra-
Iiðsmenn hagræða Gunnari litla á
sjúkrabörum, en þeir fluttu hann
fyrst til rannsóknar á Slysavarð-
stofuna, en síðan á Landspítalann.
Á forsíðu I dag er fjallað um
umferðarslys barna, en gífurlega
mörg og uggvænleg siys á börnum
hafa orðið í umferðinni að undan-
förnu og.visast nánar til þeirrar
greinar.
Bræðslusíld —
Framh. af bls. 1.
heimsmarkaðinum, sem fréttir
hafa greint frá að undanfömu.
Verður kg. nú 87 aurar en var
74 aurar í fyrra.
Síld til skepnufóðurs verður
nú 1,00 kr. en var s.l. vor 95
aurar. Þar er þó ekki fyllilega
um sambærilegar tölur að ræða.
Alþingi —
Framh. af bls. 1.
Aldursforseti tilnefndi síðan
með samþykki þingheims þá
Ólaf Björnsson og Skúla Guð
mundsson til að vera ritara.
Þá var raðað niður í kjördeild
ir, þrjár talsins, samkvæmt
þingsköpum, og fjölluðu þær
síðan um kjörbréf, eftir að
fundi hafði verið frestað til
kl. 14,30 í dag.
Allir þingmenn voru mættir
til þings, tveir komu utan
af landi í þann mund er fund-
um var að Ijúka. Þrír nýir
þingmenn taka nú sæti á Al-
þingi, Matthías Bjarnason, 2.
landskjörinn, Ragnar Arn-
alds, 5. landskjörinn og Sverr
ir Júlíusson, 7. landskjörinn
þingmaður. Aðeins ein kona
situr á þinginu, frú Auður
Auðuns ,forseti borgarstjórn-
ar Reykjavíkur.
Alvarlegt —
Framh. af bls. 1.
henni í framsæti var annar far-
þeganna, karlmaður, og £ aftur
sætinu var hinn farþeginn, einn
ig karlmaður.
Lögreglan telur að slysið hafi or-
sakazt er G-3024 ætlaði að aka
fram úr tengivagni („Múlasna"),
sem fór á undan og var einnig á
leið norður. En i sama bilí kom
stór sandflutningabifreið af Volvo-
gerð, Y-24 á móti og skipti eng-
um togum að G-3024 skall á hann
hægra megin.
Báðir bílamir stórskemmdust.
Fólksbifreiðin klesstist öll að fram
an og við flótlega yfirsýn er hún
ónýt talin með öllu. Vöruflutn-
ingablllinn skemmdist minna, en
þó það mikið að hann var óökuhæf-
ur á eftir. M.a. fór drifskaftið und-
an honum, auk fleiri skemmda er
á honum urðu. Varð að flytja báða
bílana burt af árekstursstað á
kranabilum.
Konan sem sat við stýrið £ fólks
bifreiðinni ,svo og maðurinn sem
sat við hlið hennar i framætinu
slösuðust mjög mikið, skárust auk
annarra meiðsla. Hins vegar slapp
farþeginn í aftursætinu og eins öku
maður vörubifreiðarinnar að mestu
við meiðsli.
Voru hinir slösuðu fluttir í
Slysavarðstofuna og samkvæmt
upplýsingum sem Vísir fékk hjá
Slysavarðstofunni rétt fyrir hádeg
ið í dag var búið að flytja karl-
manninn í Landakotsspítala. Hann
var mun meira slasaður en konan
og m.a. með höfuðáverka. Konan
var þá enn til aðgerðar £ Slysa-
varðstofunni.
Árns —
Framh. af bls. 16.
afvopnaður skjótt.
Bretarnir voru hafðir í haldi
fram eftir nóttu en sleppt gegn
tryggingu svo togaramir kæm-
ust út, enda allir aðilar fegnir
að losna við þá sem fyrst.
Slysaalda —
Framh. af bls. 1.
Það eru óskráð lög, sagði
Ólafur, að börn séu ekki á göt-
unum nema í fygld með full-
orðnum. Og foreldrar þurfa al-
varlega að fylgjast með útivist
barna sinna til að þau fari sér
ekki að voða.
Ólafur fulltrúi skýrði Vísi
ennfremur frá því að nú fyrir
skemmstu hafi umferðarnefnd
sent áskorun til skólastjóra
allra barna- og unglingaskóla £
Reykjavík þar sem þeir hlutist
til um að á næsta hálfum mán-
uði verði að minnsta kosti 2
kennslust. f hverjum bekk
varið til umferðarfræðslu og
aðvarana vegna hætrfti f um-
ferðinni.
Ólafur sagði að skólastjórarn-
ir hafi tekið þessari málaleitan
vel og kvaðst vona að ráðstaf-
anir i þessa átt væru f fullum
gangi í skólum borgarinnar.
'Þörfin fyrir sh'kar ráðstaf-
anir eru jafnan hvað mestar á
haustin þegar myrkur gengur i
garð, veður versna og börnin
eru nýkomin úr sveitinni þar
sem þau þurfa siður að ugga
að sér vegna umferðarhættu.
Eldur —
Framh. af bls. 16.
urinn hafði einnig læst sig
um. En eldurinn hafði komizt
f gegnum loftið og þurftu því
slökkviliðsmenn að rífa þak-
ið, en þó að mjög litlu leyti,
til þess að geta komizt að
eldinum. Klukkan 8,18 fór
síðasti slökkviliðsbíllinn frá
húsinu, en slökkviliðsmenn
eru ennþá á vakt.
Skemmdir urðu miklar á
íbúðinni sérstaklega þó á eld
húsinu sem er mjög mikið
Kristinn Holls-
son syngur
í frétt, af væntanlegri afmælis-
söngskemmtun í Þjóðleikhúsinu n.
k. Iaugardag, féll niður nafn
Kristins Hallssonar, óperusöngvara,
en hann syngur þar einsöng ásamt
3 öðrum einsöngvurum, Þuríði
Pálsdóttur, Sigurveigu Hjaltested
og Guðmundi Jónssyni, lög eftir
dr. Pál ísólfsson.
brunnið og einnig herbergi
inn af því, einnig urðu tals
verðar skemmdir af vatni.
Á neðri hæðinni er Hanzka
gerðin starfrækt. Ekki var
vitað um í morgun hversu
miklar skemmdir hafa orðið
þar, en þó mun eitthvert vatn
hafa lekið niður.
Húsmóðirin mun hafa feng
ið taugaáfall og fór hún á
spítala.
Ekki er vitað með vissu,
hver eldsupptökin voru, en
allar líkur benda til þess að
gleymzt hafi að slökkva á
eldavélinni.
Afmæli
Sjötug er í dag frú Sesselja
Magnúsdóttir frá Skuld í Hafnar-
firði.
FÉLAGSLÍF
Frjálsíþróttadeild K.R. heldur
fund í kvöld kl. 20,30 £ KR-heimil-
inu við Kaplaskjólsveg, þar sem
rætt verður um vetrarstarfið og æf-
ingar í vetur.
AUir þeir sem ætla sér að æfa
hjá deildinni í vetur eru hvattir til
að mæta á fundinn. Stjórnin