Vísir - 16.10.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 16.10.1963, Blaðsíða 1
53. árg. — MiQvikudagur 16. október 1963. — 229. tbl. Fleirj (slenzkir stúdentar stunda nám í háskólum í Vestur-þýzka- landi en nokkru öðru Iandi að ís landi undanskildu. 1 erlendum háskólum, tækniskól- um og öðrum skólum voru hátt á fimmta hundrað nemendur s. I. vetur — eða yfir 460 samkvæmt þeim upplýsingum, sem blaðið hef- ur fengið. Frá þessari tölu dragast nú þeir, sem luku námi s. 1. vor, Framh. á bls. 5. Sýnum þann manndóm að hætta gengisfellingarleiknum stakra stétta f dag. Með slfkum ráðum verður brautin brotin til þeirra lífskjarabóta sem öll þjóð in vonast til að vinnist, sagði ráðherrann. Framh.. á bls. 5. GLÆSILEGUR KOSNINGASIGUR. Benediktsson á Vorðnrfundi í gærkvöldi Gengisfelling eins og nú er ástatt er engin lausn, sagði Bjami Benediktsson dómsmálaráð- herra í ítarlegri og merkri ræðu á Varðarfundi í gærkvöldi. Hins vegar mundi gengisfelling stórskerða traust okkar er]endis, valda ójöfnuði, ranglæti og vax- andi ríkisafskiptum. Þess vegna verðum við um- fram aUt að beita öilum ráðum til þess að tryggja verðmæti gjaldmiðils okkar. ★ Krónan er ekki fallin en hún er í hættu, ef ekki er stungið við fótum. Vlð vitum að sumlr mæla gengisfellingu ætið bót, sagði ráðherrann, ýmsir atvinnurekendur, sem keypt hafa dýr tæki og húsbyggjendur, sem telja það ráðið tU þess að losna úr skuldum. En einhver verður að borga fyrir verðmætin og enginn sleppur svo auðveldlega. Það sem slikur maður ætlar að taka af öðrum neyðist þjóðfélagið til þess að taka a* honum. ★ Einhvern tfma hlýtur gengislækkunarleiknum að verða lokíð. Við verðum að hafa þann manndóm að láta honum Ijúka, sagði dómsmálaráðherra f niðuriagi ræðu sinnar. Bjami Benediktsson, form. Sjálfstæðisflokksins, flytur ræðu sína. VlSINDALEG VINNUBRÖGÐ Ráðherrann vék síðan að því hvaða úrræði væru fyrir hendi til þess að leysa vandann. Hann kvað ekki enn vera tímabært að skýra opinberlega frá ein- stökum atriðum þeirra þar sem nú væri unnið að því að athuga þær leiðir sem heppilegastar væru til þess að tryggja efna- hagsjafnvægi og áframhald við reisnar efnahagslífsins. En þeg- ar þvi væri lokið mund; þjóð- inni gerð grein fyrir þeim ráð- stöfunum sem nauðsynlegt væri að gera. Menn hafa fengið marg faldlega nóg af hinni ófrjóu kjarabaráttu, kröfugerð og inn- antómum samningum. Þjóðin verður að átta sig á þvi að það er einungis með því að auka framleiðsluna sem við getum hlotið betri lífskjör. Við Islend- ingar ættum margt ólært á sviði visindalegra vinnubragða og þar yrðum við að hagnýta okkur reynslu annarra þjóða sem lengra væru komnar, Sérfræðing ar teldu að með vinnurannsókn- um og vinnuhagræðingu mætti jafnvel auka afköstin um 20 — 30% og bæta lífskjörin sem þvi næmi en auðvitað tæki slíkt nokkurn tíma. I stað þýðingar- lausra vinnudeilna og verkfalla ættu menn að beita sér fyrir bættum vinnuskilyrðum og auk inni framleiðslu. Þar væru og samstarfsnefndir launþega og vinnuveitenda mikilvægt atriði. Á slikum grundvelli væri von og möguleiki til þess að skapa þann anda sem við þurfum á að halda. BÆTT LÍFSKJÖR. Með öðrum þjóðum hefir ver- ið tekið upp skipulagt starfsmat millí einstakra stétta, sem er mun skynsamlegra en handahóf ið í kapphlaupinu milli ein- 1 upphafi ræðu sinnar vék Bjami Benediktsson að kosn- ingaúrslitunum í sumar og kvað það algjöra nýlundu að rikis- stjórn ynni slikan sigur sem Viðreisnarstjórnin þá. Þetta væri f fyrsta skipti sem tveir flokkar, sem starfað hafa sam- an og gengið til kosninga með þá yfiriýsingu að stjóma á sama hátt áfram, ef þeir hlytu traust, fengju sigur og ykju fylgi sitt sameiginlega. Fullyrð- ingar málgagns Framsóknar- manna um að stjómin hefði nauman meirihluta væru furðu legar þegar kosningaúrslitin væru athuguð. Ríkisstjómin hefði fengið nær 56% atkvæða en allar þær stjómir sem Fram sóknarflokkurinn hefði setið f, án þess að starfa með Sjálfstæð isflokknum, hefðu haft miklu minna fylgi og komizt niður I 35% kjósenda árið 1931. Ráð- herrann benti á að vinstri stjóm in hefði heldur ekki haft nema 53% atkvæða á bak við sig. Á Norðurlöndum hafa þingræðis- stjómimar nokkuð innan við helming atkvæða að baki sér og svo er einnig f ýmsum fleiri lönd um. Af þessu sést sagði ráðherr- ann, hve fráleitt er að tala um að fylgi Viðreisnarstjórnarinnar sé veikt, enda mundi sigur sá sem stjómin vann I sumar hvar- Bloðið í íiug Bls. 3 í brezkum fagnaði. — 4 Skákþáttur. — 7 Þær fundu hamingj- una á Islandi. — 8 Rockefeller vonlaus um forsetaembættið — 9 Fjárlagafrumvarpið, grein eftir Gunnar Thoroddsen, fjár- málaráðherra. sagði dómsmólaráðherra Bjarni Frá hinum fjölmenna Varðarfundi I gærkvöldi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.