Vísir - 22.10.1963, Page 6
VlSIR . ÞrlOjudagur 22. október!963.
utlönd 1 morgun
útlönd i rnórgun ' . •útlönd í.morgun
útlönd í mopgun
Heilt her-
fylki fliitt
loftleiðis
Home lávaröur, hinn nýi for-
sætisráðherra Bretiands, sagði
að færa mætti gild rök fyrir því
að fundum brezka þingsins yrði
frestað fram yfir aukakosning-
una.
Sjónvarpað var í gær frá
; þrem sjónvarpsstöðvum svörum
Home lávarðs við ýmsum fyrir
sþurnum á þá leið, að hann
hefði aldrei sótzt eftir að verða
forsætisráðherra, en hann hefði
talið sér skylt að verða við til-
mælunum um að reyna að
mynda*nýja rfkisstjórn.
Birt hafa verið svarskeyti
Home lávarðs til Kennedys
Bandaríkjaforseta, Krúsévs for-
sætisráðherra Sovétríkjanna og
Ludwigs Erhards forsætisráð-
herra Vestur-Þýzkalands.
í skeytinu til Kennedys sagði
hann, að brezka þjóðin yrði á-
fram ákveðin og ábyrg sam-
starfsþjóð Bandaríkjanna svo
sem verið hefur.
1 skeytinu til Krúsévs kvaðst
hann vilja gera allt sem i hans
valdi stæði til þess að bæta sam
búð Bretlands og Sovétríkjanna.
Og i skeytinu til Ludwigs
L.IIHHI n» IHlll aMMCWM
Erhards hét hann auknu sam-
starfi til éflingar góðrj sambúð
og stuðningi við Norður-Atlants
hafsbandalagið.
Aukakosningin
og neðri málstofan.
Home kvað svo að orði, að
það hefði verið sjálfsögð
kurteisi að ræða við Harold
Wilson leiðtoga stjórnarandstöð
unnar um það hvort fresta
skyldi þingfundum eða ekki, en
Wilson hefði sjálfur farið að
ræða það mál opinberlega, og
lýst sig andvígan frestun, og
gæti hann þvi gert grein fyrir
skoðun sinni nú.
Aukakosningin í Kinross á
fram að fara 7. nóvember. Fram
bjóðandi íhaldsflokksins hefur
dregið sig I hlé í þágu Home
lávarðs í kjördæminu (Kinross
og West Perth). I almennu
þingkosningunum seinustu voru
úrslit þessi: Ihaldsfl. 16.256,
Jafnaðarmenn 40008, Skozkir
þjóðernissinnar 3.568. Nú verða
frambjóðendur 4, einn þeirra ó-
háður.
Mestu herliðsflutningar í Iofti sem
sögur fara af fyrr og síðar hófust
í morgun með flutningi heils her-
fylkis (um 16.000 manns) frá Banda
ríkjunum til Vestur-Þýzkalands til
þátttöku í heræfingum.
Með þessum flutningum á að
sýna, að gerlegt sé að flytja mikið
lið til Evrópu á skömmum tlma, ef
styrjöld brýzt út. Flogið er beint
frá Texas og leggur hver flugvélin
af stað á fætur annarri með jöfnu
millibili. Flugferðin tekur 10*4 klst.
Fjölmargar flugvélar, sem eru
í áætlunarflugferðum um Ber-
muda og Azoreyjar, fljúga nú
norðurleiðma (um Grænland),
til þess að vera utan þess svæð-
is, sem nýi hvirfilvindurinn,
Ginny, fer nú yfir.
A 77/ AD M YRDA TIT0?
Tito forseti Júgóslaviu ávarpar í
dag AÍlsherjarþing Sameinuðu þjóð
anna. Siðan er hann ræddi við
Iienijedy í Washington hefir hann
dvalizt í Williamsburg.
Hann ætlaði að vera nokkra
daga f Kaliforniu, en af því gat
ekki orðið vegna þess, að hann
veiktist af inflúenzu.
1 New Yorlc býr forsetinn á 36.
hæð, í hinu fræga gistihúsi Wal-
dorf Astoria.
Lögreglan handtók þar á hæð-
inni I gærkvöldi tvo menn, sem
höfðu laumazt þangað upp, og er
kunnugt að þeir eru andstæðingar
Tito, og er grunað, að þeir hafi
ætlað að vinna honum mein. —
Ekki er kunnugt um hvort forset-
inn var f fbúð sinni, er handtakan
átti sér stað. Lögreglan han^tók
einnig 3 menn úr fylgdarliði Tito
forseta, en þeir höfðu Ient f slags
málum úti fyrir gistihúsinu við
and-Titoista.
Viðskiptasendinefnd frá Sovétríkjunum kom f dag til New York og
Ieggur leið sína til Washington til þess að ræða kaup á bandarísku
hveiti. — Skopmydin hér til hiiðar birtist upphaflega í bandaríska balð-
inu Christian Science Monitor, en hefir verið endurprentuð víða, og er
hér tekin eftir dönsku blaði. — Myndinni hafa fylgt fyrirspumir eins
og: Hver greftrar?, en eitt sin sagði Krúsév við Badaríkjamenn og
vestrænu þjóðiman Vér mumim greftra ykkur.
iSsÍll
;V"Ív
Tvö stjómarfrumvörp komu til
umræðu á Alþingi í gær, frum-
varp um framlengingu og bráða-
birgðabreytingu nokkurra laga og
frumv. um meðferð ölvaðra
manna og drykkjusjúklinga.
Neðri deild.
Bjami Benediktsson, heilbrigð-
ismálaráðherra, gerði grein fyrir
síðartalda frumvarpinu með
nokkrum orðum. Meðal nýmæla-
í frumvarpinu er að heimilað er
iögreglunni að flytja ítrekað
handtekinn mann í sjúkrahús ef
hann er grunaður um að vera
haldinn drykkjusýki. Þá skal
gera hlutaðeigandi og aðstaðend-
um aðvart um sýnilega eða að-
vífandi drykkjusýki. Verður hald-
in spjaldskrá yfir þá menn, sem
handteknir eru vegna ölvunar og
með þeim hætti fylgzt með hátt-
um þeirra að nokkru leyti.
Fellt er niður ákvæði um að
geðveikraspítalinn á Kleppi hafi
yfirumsjón með gæzlu áfengis-
sjúklinga I öðrum lækninga-
stöðvum,
Þörf er á sérstöku hæli fyrir
drykkjusjúklinga og gert ráð fyr-
ir að 7.5 millj. króna af ágóða
Áfengisverzlunar ríkisins verði
varið til stofnunar sérstaks
sjóðs, gæzluvistarsjóðs, er skuli
standa straum af kostnaði við
byggingu hælis eða sérstakrar
móttökudeildar fyrir áfengis-
sjúklinga.
Tvö
stjórnar-
frumvörp
Tveim prósentum af fyrr-
greindri upphæð skal varið til
rannsókna á eðli og orsökum
drykkjusýki og meðferð áfengis-
sjúklinga.
Þá flutti Gísli Guðmundsson
(F) greinargerð fyrir frumv. sinu
um aðgerðir til jafnvægisaukn-
ingar í byggð landsins. Frumv.
kom fram á s.l. þingi en var vís-
að frá með rökstuddri dagskrá
og töldu flutningsmenn um svo
þýðingarmikið mál að ræða að
nauðsynlegt væri að endurflytja
frumvarpið. 1 frumvarpinu er m.
a. gert ráð fyrir að komið verði
á fót nefnd er fjalli um þessi
mál og geri hún áætlanir um
framkvæmdir í einstökum byggð-
arlögum i því augnamiði að við-
halda og jafnvel auka þar byggð.
Stofnaður verði sérstakur sjóður
sem veiti fjárhagslégan stuðning
I þessu skyni.
Efri deild.
Fjármálaráðherra Gunnar
Thoroddsen gerði grein fyrir
frumvarpi um framlengingu og
bráðabirgðabreytingu nokkurra
laga. Þetta er frumvarp sem kem-
ur nærri óbreytt fram á hverju
þingi. í þetta sinn vantar á-
kvæði um verðtoll og 8% bráða-
birgðasöluskatt, sem felld voru
niður með nýju tollalögunum.
Karl Kristjánsson (F) flutti
frumvarp sitt um heimild til að
selja Jóhanni Skaftasyni sýslu-
manni eyðijörðina Litlagerði í
Grýtubakkahreppi, en Jóhann
hefur á henni áhuga vegna þess
að þar bjuggu foreldrar hans
lengi og fæddist Jóhann á bæn-
um.
Skyndihappdrætti SiálfstæðisfEakksins