Vísir - 22.10.1963, Blaðsíða 7
7
V í SIR . Þriðjudagur 22. október 1963.
í dag er öld liðin frá fæðingu
Ólafíu Jóhannsdóttur.
Minningu hennar var mikill sómi
sýndur árið 1957 með útgáfu Hlað-
búðar á endurminningum hennar,
í tveimur bindum. Nefndist hið
fyrra Frá myrkri tii ljóss, hið síð-
ara Aumastur allra. Formála þess-
arar vönduðu bókar skrifaði Bjarni
Benediktsson ráðherra og segir
hann þar réttilega: „Henni nægði
ekki að boða trú sína, heldur varð
hún að sýna hana í verki. Það
tókst henni á þann veg, að ekki
verður talið ofmælt, að henni hef-
ur verið líkt við helga menn krist-
innar kirkju, svo sem Frans frá
Assisi“.
Minningin um Ólafíu Jóhanns-
dóttur og starf hennar má ekki
falla í gleymsku. Því er ofannefndr-
ar ártíðar minnzt hér, þótt eigi
séu tök að gera það, nema í stuttu
máli, en vísað skal tii Endurminn-
inganna, sem öllum er hollur lest-
ur, og ég vil endurtaka örstuttan
kafla úr grein, sem ég skrifaði i
Vísi um Ólafíu 1957, er minning-
arnar hennar komu út:
„Aumastur allra“
kynnt
fyrstu kvöldvöku F. í
Ferðafélag íslands efnir til
fyrstu kvöldvöku sinnar á haust-
inu í Sjálfstæðishúsinu n. k.
fimmtudagskvöld.
Aðalefni kvöldvökunnar verður
erindi sem dr. Sigurður Þórarins-
son flytur um hina merkilegu þjóð
Mormóna í Bandaríkjunum og land
íþað sem hún byggir.
I vor þegar dr. Sigurði var boðið
H'estur um haf til fyrirlestrahalds
við ýmsa bandaríska háskóla voru
einnig háskólar í Mormónaríkinu
Utah þar á meðal. Þar var dr.
Sigurði boðið í ferðalög um
nokkurn hluta landsins og kvaðst
hann hafa orðið undrandi yfir
Ainni miklu náttúrufegurð sem
Iand þetta hefúr að geyma. Þar
voru fjöll með snævi þöktum tind-
um, á 5. þús. metra há, stórkostleg
og hrikafögur gljúfur sem naumast
eiga sinn líka og önnur náttúru-
fegurð eftir því. Þarna tók dr. Sig-
urður fjölda litmynda og sýnir
þær og skýrir með erindi sínu á
fimmtudagskvöldið.
Svo sem kunnugt er hafa nokkr-
ir íslendingar gerzt mormónar og
tekið sér búsetu í Utah. Það er
mannvænlegt fólk og menningar-
legt og komst dr. Sigurður í kynni
við nokkra afkomendur hinna ís-
lenzku Iandnema í Mormónaland-
inu.
Dr. Sigurður segir manna
skemmtilegast frá og hefur jafnan
verið húsfyllir á þeim kvöldvökum
Ferðafélagsins, þar sem hann
hefur flutt erindi. Þarf ekki að efa
að svo verði enn.
Að erindinu loknu verður
myndagetraun og verðlaun veitt og
loks stiginn dans til kl. 12 á mið-
nætti.
„Það er saga sumra munaðar-
Ieysingja, sem Ólafía segir í bók
sinni „De ulykkeligste", sem kom
út í íslenzkri þýðingu og enskri, og
var prentuð fimm sinnum í Noregi,
seinast 1947. í þessu verki, sem
hvert stórskáld mætti vera full-
sæmt af vegna látlausrar frásagn-
arsnilldar og efnismeðferðar, er
lýst einni skuggalegustu hlið mann
legs lífs, en hversu djúp sem ör-
væntingin er og eymd mannssál-
aririnar, sem lýst er, er aldrei svo
dimmt yfir, að lesandanum finnist
ekki, að hann standi í birtu drott-
ins. Slík er trú, göfgi og fórnar-
lund konunnar, sem segir frá“.
Og niðurlagsorð greinarinnar:
„Og nú skalt þú, lesari góður,
lesa bókina um Ólafíu Jóhannsdótt-
ur, ganga þannig á fund þeirrar
konu, sem mér ávallt hefir fundizt
eiga skilið heiti slíkt sem Florence
Nightingale hlaut, að vera kölluð
„konan með Iampann" — eða jafn-
vel heiti enn fegurra".
Axel Thorsteinson.
^ Fyrírlesfur 'i
háskólanum
Hr. Mogens Hansen verkfræð-
ingur frá Danmörku flytur fyrir-
lestur um notkun reiknivéla í
tækni og stjórnum (Elektroniske
regnemaskiners anvendelse inden-
for teknik og administration) n. k.
miðvikudag 23. okt. kl. 17,30
i í I. kennslustofu háskólans. —
! Öllum er heimill aðgangur.
Ádrepa á póstjórn
Mér dettur í hug að skamma
póstyfirvöldin í dag. Þau eiga
það skilið og ég skal segja
ykkur hvers vegna.
Um fjölmörg undanfarin ár
hafa verið til sölu í pósthúsinu
svokölluð flugbréf. Það er
bréfsefni með áprentuðu frí-
merki mjög hagkvæmt til allrar
notkunar og burðargjald auk
þess mun ódýrara heldur en
undir venjulegt bréf.
Þessi flugbréf hafa ekki verið
til í pósthúsinu í Reykjavík í
allt liðlangt sumar og er það ó-
fyrirgefanlegt sleifarlag og
sinnuleysi af hálfu póststjórn-
armanna.
Ég kom I pósthúsið í vor og
ætlaði að kaupa nokkur flug-
bréf. Þau voru ekki til en mér
var tjáð að þau myndu koma
i júlí.
í júlímánuði fór ég aftur i
pósthúsið og ætlaði að hreppa
gæsina glóðvolga. Nei, flug-
bréfin voru ennþá ókomin en
voru væntanleg í næsta mán-
uði.
Þennan næsta mánuð var ég
í sumarleyfi, tók mér hvíld frá
öllum bréfaskriftum en Iagði
Ieið mína í pósthúsið snemma
í september og bað um flugbréf.
!■■■■■■
„Það eru engin flugbréf til,“
hljóðaði svarið.
í byrjun þessa mánaðar gerði
ég enn eina tilraun til að fá
flugbréf, en allt fór á sömu
leið. Þau voru enn ókomin.
Hvers vegna jpetta
sinnuleysi?
Nú langar mig til að spyrja
yfirmenn póstmála hverju þetta
sæti. Eru þeir sofandi í starfi
sínu og hugsa ekki um sjálf-
sagða þjónustu við almenning,
sem ætla mætti þó að væri
skylda þeirra. Fást flúgbréfin
ekki prentuð, eða skortir papp-
ír í bréfsefnin? Eða er þetta
beinlínis gert af yfirlögðu ráði
til að fólk geti ekki notið hinna
ódýrari póstburðagjalda og af
því að póststjórnin græðir meira
á burðargjöldum almennra
bréfa heldur en flugbréfa?
Og að Iokum hvenær koma
flugbréfin, eða koma þau alls
. ekki?
Eiginmenn
klunnaleg meindýr
Ég f.r að glugga í nýútkomna
bók eftir danska gamanhöfund-
inn Willy Breinholst sem ís-
lendingum er að góðu kunnur
fyrir bráðskemmtilegar ritsmíð-
ar 1 tímaritum, bæklingum
og bókum, m. a. í landkynning-
arbæklingum Flugfélags íslands
og víðar.
Þessi nýkomna bók eftir
Breinholst heitir „Hinn full-
konaíl eiginmaður", en i fyrra
kom út eftir hann bókin
„Vandinn að vera pabbi“, sem
varð meðal metsölubóka á jóla-
markaðinum í fyrra.
í hinni nýju bók sinni segir
höfundurinn að frá sjónarmiði
eiginkonunnar hafi eiginmaður-
inn á öllum tímum verið
klunnalegt, bjánalegt, tillits-
laust og tóbaksþefjandi meindýr
með tvær hendur, tvo fætur og
höfuð, sem hann notar sem
geymslustað fyrir ótakmarkaðar
birgðir heimsku sinnar. Það sé
og rökfræðileg sannreynd að
allir eiginmenn séu aulabáðar
(annars væru þeir ekki eigin-
menn, heldur piparsveinar!).
Það er margt skemmtilegt í
þessari nýju kennslubók(l) til
að verða fullkominn eiginmað-
ur, og ekki kæmi mér á óvart
þótt hún yrði ekki síður vin-
sæl heldur en ,,pabba-bókin“ í
fyrra.
Kári II.
Ólafía Jóhannsdóttir.
OTTAZT UM HOF-
UÐKÚPUBROT
í fyrrinótt varð alvarlegt
slys í Lækjargötu, rétt norðan við
Vonarstræti. Þar varð fótgangandi
maður fyrir bifreið og slasaðist
það mikið að flytja varð hann í
sjúkrahús.
Slysið varð um miðnættið. Þá
var bifreið ekið norður Lækjar-
götuna og þegar hún var rétt
komin norður fyrir gatnamót Von-
arstrætis vissi ökumaður hennar
ekki fyrr til en bifreiðin lendir á
fótgangandi manni, sem skall um
leið í götuna og var meðvitundar-
laus þegar að var komið. Kvaðst
ökumaðurinn alls ekki hafa séð
neitt til ferða mannsins fyrr en
um leið og áreksturinn varð.
Maðurinn sem slasaðist heitir
Ólafur Gestsson og er rúmlega
hálffertugur að aldri. Hann var
fluttur í slysavarðstofuna, en þar
sem læknar töldu llklegt að mað-
urinn væri höfuðkúpubrotinn, var
hann fluttur £ Landakotsspltala.
Rannsóknarlögregluna vantar
vitni að atburði þessum. Hún
telur líklegt að þarna hafi verið
fólk á ferð og biður þá sem kunna
frá atvikum að skýra að gefa sig
fram við hana.
Sd jum alla miðana
SKYNDIHAPPDRÆTTI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS er i
fullum gangi. Vinningurinn, MERCEDES BENZ 190, stend-
ur í Austurstræti og þar eru seldir miðar. — KAUPIÐ
MIÐA TÍMANLEGA. — Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins, sem hafa fengið senda miða, eru vinsamlegast
beðnir um að GERA SKIL SEM ALLRA FYRST í aðal-
skrifstofu SjáifstæðisfIokksins. — TIL STYRKTAR SJÁLF-
STÆÐISFLOKKNUM. - Munið, að dregið er 8. nóvem-
ber, svo að ekki eru margir dagar til stefnu. En kjörorðið
er samt sem áður:
Seljum alla miðana.
♦