Vísir - 28.10.1963, Blaðsíða 9

Vísir - 28.10.1963, Blaðsíða 9
V í SIR . Mánudagur 28. október 1963, 9 Sjúklingnum veröur aö lyfta með varúð. Ásdis Óskarsdóttir og nokkrar af námsmeyjum hennar. Þorbjörg Jónsdóttir, skólastjóri Hjúkrunarskóla íslands. „Ægilega spennandi“, segir ein. Hún er enn í forskólanum og hlaltkar til að spreyta sig á hinu raunverulega hjúkrun- arstarfi og nota eitthvað af fræðilegu þekkingunni, sem hún er nú að afla sér. „Það er þroskandi", segir önnur. Hún er að byrja annað árið, og viss alvara býr þegar á bak við glaðlega brosið. „Maður kynnist lífinu frá nýrri hlið“. „Ég gæti ekki hugsað mér að gera neitt annað“, segir sú þriðja. Hún er búin að vera tvö ár. „Ég er allt öðruvísi núna en áður en ég byrjaði. Maður fullorðnast á þessu“. „Þjónusta við mannkynið er grundvöllur starfsemi hjúkrunarkvenna og rök fyrir tilveru hjúkrunarkvennastétt- arinnar“, segir f alþjóðasiða- reglum hjúkrunarkvenna. Námsmeyjarnar í Hjúkrunar- skóla íslands eru kátar og fjör- miklar stúlkur, sem augsýnilega hafa lifandi áhuga á starfs- grein þeirri, er þær hafa valið sér. Og þær telja sig lánsamar að hafa fengið inngöngu f skól- ann, því að þangað komast færri en vilja — sem stendur liggja fyrir 110 umsóknir, og sffellt bætast fleiri við. ENN VANTAR HÚSNÆÐI „Það er skortur á húsa- kynnum, sem takmarkar tölu nýrra nemenda“, segir skóla- stjórinn, ungfrú Þorbjörg Jóns- dóttir. „Fólk á erfitt með að trúa því, að okkur vanti enn húsnæði þrátt fyrir þennan stóra, nýja skóla, en hann er bara ekki fullbyggður. Á næsta ári verður bætt viö nýrri álmu, kennslustofudeild, og við bíð- um þess sannarlega með eftir- væntingu, að hún verði tilbúin. Eins og er, verðum við að nota leikfimisalinn fyrir verklega kennslu, önnur bóknámsstofan er á gangi inn í nýju álmuna og hin f herbergi, sem síðar á að verða bókasafn — og í það troðum við 22 nemendum, þó að ekki komist með góðu móti nema 16. Þetta er auðvitað til bráðabirgða, en það takmarkar óhjákvæmilega nemendafjöld- ann“. „Hvað hafið þið marga nem- endur núna?“ „Eitthvað um 140“. „Og hvað getið þið tekið marga, þegar skólabyggingin er fullgerð?“ „Við reiknum með 250. Og það ætti að nægja til að anna eftirspurninni". SÁLIN MÁ EKKI VERÐA ÚTUNDAN Hún gengur rösklega á und- an mér eftir löngum göngum, upp og niður stiga, gegnum stofur og sali og útskýrir skil- merkilega tilhögun námsins. Við kíkjum inn í kennslustund, þar sem Sigurjón Björnsson sálfræðingur flytur erindi um Ieyndardóma sálarlífsins fyrir á- hugasama forskólanema. Viss- ara að vanrækja ekkj sálina, þótt aðaláherzlan kunni að vera lögð á meinsemdir Ifkamans og lækningu þeirra. Síðan löbbum við niður í kjallara og komum inn f stóra sjúkrastofu. Þar er verknámið í fullum gangi. I rúminu næst veggnum liggur snoðklippt kona, sem hrærir hvorki legg né lið, andar meira að segja ekki. Það er dúkka, sem notuð / 1 er við kennsluna. í næsta rúml liggur bráðlifandi sjúklingur, ein námsmeyjanna. Félagar hennar búa varlega um hana undir eftirliti kennarans. Þær eru að byrja annað námsárið og ganga að þessu með tilhlýðilegri alvöru. Þetta á að vera sár- þjáður sjúklingur, sem ekki má hreyfa sig neitt f rúminu, og það er vandi að lyfta honum og skipta um sængurföt á liðlegan hátt. EKKI DUGIR AÐ VERA OF VIÐKVÆMUR „Er ekki gaman að rtáminu?" spyr ég, þegar þær hafa tíma til að svara. Þær eru allar á einu máli um það. „Maður verður að hafa á- nægju af því“, segir ein. „Ann- ars væri ekki hægt að vinna það almennilega". „Er ekki stundum óhugnan- legt að taka t. d. á móti slös- uðu fólki?“ „Jú, það getur orðið það“, svarar önnur, „en maður hugs- ar aðallega um, hvað hægt sé að gera fyrir sjúklingana, og þá gleymist hitt á meðan“. „Fyrsta árið er kannske erf- iðast - a.m.k. að þessu leyti", segir sjúklingurinn og rís upp, svo að einkennisbúningurinn kemur í Ijós undir sængurföt- unum. „En það þýðir ekki að vera of viðkvæmur, þvf að þá getur maður minna hjálpað'*. „Þið sjáið ekki eftir að hafa byrjað á þessu?“ Allar f kór: „NEI!“ ÖRUGG HANDTÖK Rétt hjá er stór lyfjaskápur. Þar stendur hinn kennarinn, hlýðir einni námsmeynni yfir meðalanöfn og fylgist með, jjegar hún telur dropa f glas; nú má engu skeika. I hinum enda herbergisins eru margar stúlkur niðursokknar f störf sfn. Þær hreinsa sprautur, færa til alls konar verkfæri með töngum, útbúa áhöld á bakka — handtökin eru svo örugg, að það er eins og þær hafi ekki gert annað alla sfna ævi. Ekki dugir að tefja þær, svo Framh. á 4. síðu. Sólveig Jónsdóttir, aðalkennari skólans. Heimsókn ^ ^ * Islands

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.