Vísir - 06.01.1964, Síða 8
8
V í S IR . Mánudagur 6. janúar 1964.
VISIR
Otgefandi: Blaðatitgáfan VlSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
í lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vlsis. — Edda h.f.
Hagnýtum þekkinguna
| áramótaræðu forsætisráðherra Bjama Benediktsson-
ar var rætt um þau meginvandamál, sem þjóðin stend-
ur nú andspænis og glögg grein fyrir þeim gerð. For-
sætisráðherra benti á það hver höfuðnauðsyn það væri
að menn kæmu sér saman um það að virða staðreynd- *
ir efnahagslífsins. Þekkingin ein stoðar ekki ef menn
fást ekki til þess að skeyta henni, sagði ráðherrann.
jV[ikil sannindi em fólgin í þessum orðum. Við íslend-
ingar höfum allt frá styrjaldarlokum séð hjólið snúast
án afláts. Fyrst koma kauphækkanir, síðan verðhækk-
anir, sem gera kauphækkunina að engu. Þá nýjar kaup-
hækkanir til þess að bæta upp kjararýmunina, enn
nýjar verðhækkanir og svo koll af kolli — lokaður
vítahringur. Þessi sannindi eru öllum orðin löngu ljós,
en hugrekki hefir skort til þess að draga af þéim rétt-
ar ályktanir — þær, að fara verður nýjar leiðir í kjara-
baráttunni í stað þess að hola rætur þjóðarmeiðsins
í sífellu. En það er mála sannast, að úr þessari sjálf-
heldu verður ekki komizt nema allir leggist á eitt,
eins og forsætisráðherra benti á. Samtökum almenn-
ings má ekki beita til þess að torvelda að löglegur
meirihluti kjósenda ráði. Leitast verður við að sam-
eina hin ólíku sjónarmið, auka víðsýni og traust milli
stétta þjóðfélagsins.
J>egar allt kemur til alls er markmið launþegasam-
takanna, ríkisstjórnar og Alþingis eitt og hið sama.
Að auka þjóðartekjurnar og bæta lífskjörin í samræmi
við þær. Hér greinir ekki á um markmiðið sjálft held-
ur einvörðungu leiðirnar. Og til þess að sá ágreining-
ur verði sem auðleystastur er tvennt nauðsynlegt. 1
fyrsta lagi þekking á staðreyndum efnahagslífsins, af-
komu atvinnuveganna, kaupmætti launa og öllum
breytingum á þessu sviði. Slík þekking er ennþá of
lítil og of lituð. Því verður að setja á fót hlutlausa
hagstofnun hið allra fyrsta. í öðru lagi verður að rækta
þá ábyrgðartilfinningu og sanngimi að eftir hlutlæg-
um upplýsingum verði farið við skiptingu þjóðarauðs-
ins — við lausn vanda efnahagsmálanna. Það er
stærsta framtíðarverkefnið.
jslenzka þjóðin gengur nú til móts við ár, sem getur
orðið eitt hið afdrifaríkasta í sögu þjóðarinnar. Ef
stéttadeilurnar og verkföllin magnast enn á árinu er
hætt við að þjóðm giati fjárhagslegu sjálfstæði sínu.
Vitrari stefnu gæti hún því ekki tekið upp á þessum
tímamótum en þá að starfa af samhug að Iausn vand-
ans, á grundvelli þeirra staðreynda efnahagslífsins,
sem óhrekjanlegar reynast.
i
BÆKUR 0G
flMt'
LAXNESS
og
Sovétríkin
d □ o
Ritdómur um Skúldutímu
úr POLITIKEN
il
Sunnudaginn 29. des. birti
KaupmannahafnarbiaöiO Poli-
tiken ritdóm um hina nýju bók
Halldórs Laxness, Skáldatimi.
Er hann ritaöur af Erik Sönder-
holm cand. mag., sem áöur var
danskur sendikennari viö Há-
skóla Isiands. Bók Laxness
kemur út á þessu ári hjá
danska forlaginu Gyldendal og
einnig mun hún væntanleg í
enskri þýðingu.
Ritdómurinn fer hér á eftir
í lausiegri þýöingu. Hann ber
fyrirsögnina „Laxness og
Sovjet".
„Hin nýja bók Laxness hefir
aö geyma endurminningar frá
tímabilinu 1928-1939. Titil
bókarinnar má þýða á dönsku
þannig: „En digters tidsopgör".
Fyrstu kapitularnir skýra frá
hinu merkilega kaþólska tima-
bili' í lffi hans og hvernig hann
hverfur frá trúnni, eins og lýst
er í hinni miklu æskuskáldsögu
hans Vefarinn mikli frá Kasmir.
Engu minni þýöingu hafði kynn
ing höfundarins af Bandarfkjun-
um á þriðja áratugi aldarinnar.
Þar kynntist hann sósfalism-
anum og þjóðfélagsádeiluhöf-
undum, eins og Sinclair Lewis
og Upton Sinciair, sem fjallað
er ýtarlega um f bókinni en á
mjög gagnrýninn hátt. Póli-
tísk samvizka hans hafði verið
vakin af hinum bandarfsku
þjóðfélagsádeiluhöfundum og
þegar hann hóf virka þátttöku
í andstöðunni gegn nazisman-
um á fjórða áratugi aldarinnar
er ekki að undra þó hann gangi.
f hóp vinstri manna og lýsi á-
huga sfnum á Sovétríkjunum.
Meginþáttur bókarinnar er
uppgjörið við Sovétkommún-
ismann, sem hann kynntist á
tveimur Rússlandsferðum sfn-
um á fjórða tugi aldarinnar.
Höfundurinn, sem nýsloppinn
var undan áhrifum kaþólskunn-
ar, veigraði sér við að ganga
nýrri andlegri einveldisstefnu á
hönd. Það kemur í ljós af hin-
um sterka gagnrýnistón þessa
kafla, þótt þar megi hvarvetna
sjá hvern áhuga Laxness hafði
á óg samúð með þeirri tiiraun
f þjóðfélagsmálum sem þar var
verið að framkvæma. En ekki
var hann ýkja hrifinn af stefnu
rússnesku stjórnarinnar í list-
málum.
í lslandi hefir hin nýja bók
Laxness vakið furðu, þar
sem þar er að finna svo mikla
gagnrýni á hinu rússneska
ævintýri á fjórða tugi aldarinn-
ar. Er það fyrst og fremst
vegna þess að Laxness hefir
áður ritað tvær bækur um
Sovétríkin, og hefir önnur
þeirra Gerzka ævintýrið komið
út í danskri þýðingu, en f þess-
um báðum bókum er mjög vin-
samlega ritað um það sem fyr-
ir* augu hans bar í þessum
Rússlandsferðum. Af hálfu
hægri manna á Islandi hefir
verið spurt hvers vegna Lax-
ness hafi ekki fyrr sagt sann-
leikann, þar sem hann var hon-
um greinilega ljós; kommúnist-
ar hafa hins vegar borið honum
það á brýn að hann hafi verið
heilaþveginn eða að skrifa nú
til geðs nýjum vinum, sem
hann hefir öðlazt á Vesturlönd-
um eftir að hann hlaut Nóbels-
verðiaunin.
TV'æstsfðasti kafli bókarinnar
„Vera Hertsch“ sýnir af-
stöðu Laxness, en þar dregur
hann upp mynd f hnotskurn
af reynslu sinni á þessari tfð í
Rússlandi. Er mynd sú svo
sterk að lýsingin gleymist
seint. En andstæðan milli þess
tíma sem bókin fjallar um og
dagsins f dag er þó ekki ó-
skýranleg. Laxness skýrir nú
frá því að ástandið í Sovétrfkj-
Laxness
unum undir Stalin hafi verið
ógnvænlegt, en hann var þá
þeirrar skoðunar að tilraunin
sem þar fór fram væri góðra
gjalda verð. Þá áttu sér stað
margir ógnvænlegir og ómann-
úðlegir atburðir, en svo fremi
sem aðeins var um skamma
breytingatíð að ræða þá varð
að láta sér hið illa einnig lynda,
þvf sifk tilraun hlaut að vera
dýru verði keypt. Þess vegna
Verður mjög athyglisvert að
lesa framhald Skáldatfma og
kynnast skoðunum Laxness á
Sovétrfkjunum eins og hann
hefir séð þau eftir styrjöldina.
Af köflum bókarinnar er sér-
stök ástæða til þess að drepa á
þá sem fjalla um þrjú höfuð-
verk hans frá árunum fyrir
1940, Sölku Völku, Sjálfstætt
fólk og Heimsljós en þar er út-
gáfusaga þeirra rakin í kald-
hæðnum glettnistón. Margir
kaflar bókarinnar eru á yfir-
borðinu spaugkennt rabb, en í
rauninni er þar að finna djúp-
stæðar hugleiðingar um bók-
menntir og menningarmál.
Þetta er í einu orði sagt mjög
hrífandi bók.“
Ny kennsiubók í reikági
Ég reikna, 2, hefti, er komið
út á vegum Ríkisútgáfu náms-
bóka, og hafa þeir Jónas B.
Jónsson og Kristján Sigtryggs-
son gert heftið.
Gerð bókarinnar er svipuð og
i. heftis. Hún hefst á upprifj-
un þess, sem áður var lært í
samlagningu og frádrætti, og
síðan er haldið áfram, aðeins
byrjað á margföldun og deil-
ingu og kennt að geyma í sam-
lagningu.
Það er ætlazt til þess, að
börnin reikni f bókina nema þar
sem annað er tekið fram, og
margar myndanna má lita. Þótt
bókin sé fyrst og fremst kennslu
bók til notkunar í skólum fyrir
8 ára böm, er hún einnig hent-
ug til notkunar f heimahúsum.
Börnin geta fikrað sig áfram af
sjálfsdáðum, því glöggar leið-
beiningar eru með hverri nvrri
aðferð, en auk þess gefur bókin
margar bendingar um leiki, æf-
ingar og spil, sem alls staðar
er hægt að nota.
Myndirnar gerði Bjarni Jóns-
son.