Vísir - 20.03.1964, Side 11

Vísir - 20.03.1964, Side 11
r v í S I R v-*>* Föstudagur 20. marz 1964 Vatnsleysu, formaður Bún- aðarfélags íslands. 21.30 Útvarpssagan: „Á efsta degi“ eftir Johannes Jörg- ensen; VI. (Haraldur Hann- esson hagfræðingur). 22.10 Lesið úr Passíusálmum (45>‘ 22.20 Daglegt mál (Árni Böðvars son). 22.25 Undur efnis og tækni: Gunnar Ólason efnaverk- fræðingur talar um fram- leiðslu og notkun áburðar. 22.45 Næturhljómleikar. 23.40 Dagskrárlok. Sjónvarpið - Föstudagur 20. marz: - - 16,30 1, 2, 3, Go s ' 17.00 Men of Annapolis 17.30 Tennessee Ernie Ford show £*• < 18.00 Louis Armstrong 18.30 It’s a Wonderful world fe- i 19.00 Afrts News 19.15 Air Force News In Review 19.30 Current Events 20.00 Rawhide 21.00 The Jack Paar show 22.00 Fight of the week 23.00 Afrts Final Edition News 23.15 The Tonight Show___ Tilkynning Æskulýðsfélag Lauga’rnessóknar Fundur í kirkjukjallaranum í kvöld kl. 8.30. Fjölbreytt fundar efni. Séra Garðar Svavarsson. Fundahöld Frá Guðspekifélaginu: Fundur verður í stúkunni Mörk kl. 8.30 í kvöld í Guðspekifélagsh.úsinu Ing ólfsstræti 22. Sigurlaugur Þor- kelsson flytur erindi: Dulvitundin Hljóðfæraleikur: Sigfús Halldórs son tónskáld. Kaffi í fundarlok. Utanfélagsfólk velkomið. Messur Elliheimilið: Föstumessa I dag kl. 6.30. Jóhannes Sigurðsson prent ari predikar. # # % STIÖRNUSPÁ ’wvr. ' il o • I *:;v t1 '/TfV J f > ' \ ~ i, ~*i f) •f.'j.. Spáin gildir fyrir laugardag- inn 21. marz. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl.: Dagurinn er mjög heilla- vænlegur fyrir fjölskylduna til að koma saman til leikja og skemmtana. Þau málefni, sem tekin hafa verið réttum tökum, ættu að geta gengið vel. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Þú ættir .að dvelja sem mest í félagsskap tannarra í dag, sér- staklega skemmtilegra ættingja og nágranna eða vina. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júni: Nú er heppilegt fyrir þig að afla þér þeirra hluta, sem heimilið þarfnast og mættu ef til vill prýða. Þú ættir að leggja að þér til að komast að góðum kjörum. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þér er ekki ráðlegt að fela ljós þitt fyrir þeim, sem kynnu að meta nærveru þlna. Þú ættir að gefa öðrum til kynna skoð- anir þlnar. Ljónið 24. júlí til 23. ágúst: Þær stundir renna upp, þegar mannlegar sálir taka sér hvíld og hugleiða lifið og gleyma hinu daglega amstri. Venjulega er heimilið bezti staðurinn til þessa. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Það eru allar líkur til þess, að þú verðir stjarna kvöldstundanna og að allir reyni að fara eftir þvf, sem þú segir. Samt kynnu hugmyndir þfnar að vera nokkuð vafasam- Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Þú virðist ekki hafa mikinn á- huga á þvi að vera f sviðsljós- inu og ert fús að láta öðrum slíkt eftir. Það hefur lfka sfna galla. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Þú ættir að taka þér fyrir hend- ur að heimsækja einhverjar persónur, sem hafa svipaðar skoðanir á lífinu og þú. Þeijj drekamerkingar, sem eru ó* giftir gætu ef til vill fundið hinn útvalda meðal vina. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Vandaðu val þitt, þegar þú ferð í búðir og forðastu að festa kaup á hlutum, sem þú hefur raunverulega alls ekki not fyrir. Þú finnur til meira öryggis. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Nánir félagar eða hjón ná. fyrr settu marki, ef þeir eða þau komi sér fyrirfram saman um þær starfsaðferðir, sem bezt væri að fylgja. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Þér er óhætt að taka það, sem þú hefur réttilega unnið fyrir, af kökunni. Þú hefur að- stæður til að tryggja þér meira öryggi. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Þú og ástvinir þfnir ættu að eiga auðvelt með að komast að samkomulagi, sem allir aðilar gætu sætt sig við. Reiknaðu samt með þeim möguleika, að tafir fylgi. // Hofsjökull" Germamia Sl. þriðjudag hljóp af stokkun- um í Grangemouth í Skotlandi nýtt kæliskip, sem h.f. Jöklar eiga þar í smíðum. Var skipinu gefið nafn og skírði Ólöf Einarsdóttir það Hofsjökul. Ólöf er 7 ára, dótt ir Einars Sigurðssonar, útgerðar- manns og stjórnarformanns Jökla h.f. Hún bar við þetta tækifæri fs- lenzka þjóðbúninginn, upphlut og möttul. Viðstaddir athöfnina voru ýms- ir forystumenn Grangemopth og skipasmíðastöðvarinnar. i, f hálfu skipafélagsins Jöklar h.f. voru mættir Ólafur Þórðarson, framkvæmdastjóri og Sturlaugur H. Böðvarsson útgerðarmaður og frú og Gísli Ólafsson fram- kvæmdastjóri og frú. Hofsjökull er 2500 brúttólestir að stærð, með 2500 ha. Deutz- dieselvél. Skipið verður væntan- lega tilbúið til afhendingar í maí- júní n.k. Er þetta fjórði Jökullinn Fyrir á félagið kæliskipin Vatna jökul, Langjökul og Drangajökul. Hjálp i viðlögum Námskeiði f hjálp í viðlögum er nýlokið á vegum Reykjavíkur- deildar Rauða Kross íslands, en hún hefur í fjölda ára haldið slík námskeið. Þátttaka var góð og er enginn vafi á því, að margir sem _á nárnskeiðinu voru finna sig i eklci eins varimáttuga og áður, að hjSlpá 'eí'slýs ber að höndum, og eru nú færir að hjálpa á réttan hátt en það er mjög mikilsvert. Þarna var fólk á öllum aldri og úr öllum atvinnustéttum t.d. hún mæður, kennarar, smiðir o.s.frv. Kennari var eins og oftast áður Jón Oddgeir Jónsson enda hefur hann langa reynslu í þessum efn um. Nú hefur Rauði Kross Islands ákveðið að taka upp eftir páska, kennslu fyrir bifreiðastjóra. bæði fyrir þá sem hafa akstur að at- vinnu og hina sem aka einkabíl- um. Kennsla verður bæði miðuð við hjálp í viðlögum og slysavarn ir. Það hafa vafalaust margir gott af því að gera sér grein fyrir ýmsum hættum sem ökum. get ur stafað af bíl sínum bæði eitr- un, gáleysi við að skipta um hjólbarða eða viðgerð undir bíl- palli og m.f. Rauði Krossinn væntir þess að allir ökumenn sém því geta við komið noti sér þetta og mun þá halda svo mörg námskeið sem þurfa þykir. Á kvikmyndasýningu félagsins Germaníu á laugardag verða sýnd ar mjög nýlegar fréttarriyndir, m. a. frá jólaheimsóknum Vestur- Berlínarbúa til ættingja og vina í Austur-Berlín, frá heimsókn próf. Erhards kanzlara til Lyndon B. Johnsons í Texas og Sir Alec Douglas-Home í London, frá list skautahlaupi í Grenoble og ýmsu fleira; Fræðslumyndirnar á sýningunni verða tvær'. Er önnur um híbýla- prýði einkum um veggfóðiir riotk un‘ þess á margvíslegan hátt, á- hrif þess á umhverfið, húsgögn- in og annað eftir því. Hin fræðslu myndin er frá Allgau. Sýnir hún hið fagra landslag Álpafjallanna í vetrarskrúða, skíðaferðir og aðr ar vetraríþróttir og villt dýrin og er myndin í litum. Sýningin verður f Nýja bíó og hefst kl. 2 e.h. Öllum er heimill aðgangur, börnum þó einungis í fylgd með fullorðnum. BELLA ffiPIB Bara að ég gæti gengið í svefni. Þá fengi ég bæði hvfld, hreint loft og góða hreyfingu í einu. Hattar 'VANDHREINSAÐ/R efnalaugin björg Sólvollogötu 74. Simi 13237 Bormohlið 6. Simi 23337 R I P K I R B Y Ef þetta eru leitarflugvélar, þá sjá þær okkur aldrei meðan Plund erer er með felunet yfir sér, hugs ar Julia, og óskar þess innilega að Rip fari að koma. En Rip hefur nóg að gera. Scorpion veit að ef hann getur ekki ráðið niðurlög- um Kirbys þá er hann glataður maður og mjög líklega dauður. Svo að hann berst eins og villi- dýr. En Rip kann ýmislegt fyrir sér, og á í fullu tré við sjóræn- ingjann. Þegar Scorpion er að því kominn að trampa á glóðinni hendir Rip sér yfir hann og skellir honum í gólfið svo harkalega að kassar velta og sprengjuskothylki í fallbyssuna skoppa umhverfis þá. Og dauðinn færist sífellt nær f líki lítils neista. E3 □ □ □ □ □ □ □ □ a □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ s □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ o □ □ o Q o D O Q O o o o o D O D □ n □ □ □ □ □ □ -E □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ D □ D □ □ □ □ D O D D D D D D D D D D D D D D O o o o o o o o o o Q o o o o o o o o o o D o Q O O o 'O o o □ □ □ □ o □ Q Q Q Q Q D Það er ekki neitt sældarlif að vera kennari í Bandaríkj- unum. Á hinum árl. fundi am- eríska kennarasambandsins, kom það í ljós, að á hverjum einasta degi allan ársins hring verður a.m.k. einn kennari í Ameríku fyrir árás af hálfu nemenda sinna. 1 skýrslu sem Mr. Charles Cogen lagði fram sagði, að meiðsli kennaranna væru ekki alltaf alvarleg, en þó hefði orðið áð flytja nokkra þeirra á sjúkrahús. — Og það versta er, segir Cogen, að stjórnarvöldin reyna að þagga þetta niður. Það getum við ekki liðið. Við verðum að kref jast strangra réfsiriga fyrir þá nemendur sem misþyrma kennurum sínum. -x Herbert Talmud, sem er þjónn á matsölustað í Wash- ington, var nýlega handtekinn fyrir að eitra fyrir gesti sem gáfu honum litla drykkju- peninga. Það voru nokkrir fastagestir, sem tóku eftir þvf að oft eftir að þeir hefðu borð að á þessum vissa matsölustað fundu þeir til óþæginda f mag anum og urðu jafnvel illa veikir. Þeir kvörtuðu að sjálf sögðu yfir þessu við eigand- ann, sem vissi ekki sitt rjúk andi ráð, en greip að lokum til þess bragðs að ráða einka lögreglumenh til að finna or- sökina. Og Sherlockamir komust að þvf, að eitrunarein kennin komu aðeins í ljós eftir að hinn hefnigjarni Telmud hafði borið á borð fyrir gest- ina. Talmud var samstundis handtekinn og játaði. -x Ungi fallegi einkaritarinn var nýbyrjuð að starfa hjá stóru fyrirtæki og starfssystur hennar vöruðu hana við ungum manni sem vann með þeim og sem þær sögðu vera sambland af morithana og Don Juan. Unga stúlkan ákvað með sjálfri sér, að hún skyldi setja náungann á rétta hillu eins fljótt og því yrði við kom ið. Það leið ekki á löngu þar til hann var kominn að borði hennar, búinn að koma sér þægilega fyrir, farinn að segja henni sögur af sér og sýna henni ótal ínyndir af sér með ýnisum frægum íþróttagörpum Þegar hann var sem ákafastur að lýsa sundkeppni einni sem hann kvaðst hafa unnið og sýndi henni myndir úr, leit hún á hann stórum augum og spurði sakleysislega: — En segið mér, eigið þér enga hóp mynd af yður?“ ;' >f Önnur hinna fjörugu Gabor systra, Eva Gabor, sern ekki alls fyrir löngo varð 42 ára gömul, hefur nú eignazt tengdamóður, sem er aðeins 25 ára. Maður hennar, Richard Brown, á nefnilega mjög lífs- glaðan og fjörugan föður, sem nýlega gekk að eiga 25 ára gamla sýnirgarstúlku frá London. — Það verður áreið- anlega gaman að hitta tengda mömmu segir Eva. ■ i 11 i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.