Vísir - 23.03.1964, Qupperneq 2
2
VÍSIR
Hnnv
Mánudagur 23. marz 1964.
ISLAND NÁDIÁCÆTUM
ÁRANCRIIPOLAR CUP
„Á öllum ferli mínum sem körfuknattleiksmaður
hef ég aldrei séð annan eins darraðardans“, sagði
fréttamaður Vísis á POLAR CUP — körfuknattieiks-
keppni Norðurlanda sem fr am fór um helgina í Hels-
ingfors. Það var leikurinn við Dani sem þessi lýsing
Einars átti einkum við, en leikurinn við Svía var
einnig mjög spennandi og tók á taugakerfi þeirra fáu
íslendinga, sem viðstaddir voru. ísland varð 4. í
keppninni og hefur aldrei átt jafn góða leiki og sýnir
miklar framfarir í körfuknattleik.
að hafa Guðmund Þorsteinsson
ekki með í liðinu varð því til þess
að Svíar sigruðu 65:59.
Sigurði Ingólfssyn; var einnig
vísað útaf fyrir 5 villur og hafði
það einnig sín áhrif. Þorsteinn Hall
grímsson var í þessum leik ekki
einungis bezti maður íslendinga
heldur einnig bezti maður kvölds
ins. Einnig voru ágætir Birgir
Birgis og Hólmsteinn, sem vann
sitt verk af stakri prýði þ. e. að
gæta Hansons
Leikurinn við Dani á laugardag-
inn var afar spennandi og mjög
jafn. íslenzka liðið átti í erfiðleik-
um með yfirspenntar taugar og lík
lega hefur það orðið til þess öðru
fremur, að leikurinn var svo tví-
sýnn. því íslenzka liðið var án efa
sterkara og á að geta sýnt betri
körfuknattleik en nú var gert. í
hálfleik var staðan 26:25 fyrir Dani
og í seinni háifleik hélt spennan
áfram. Ellefu sinnum í leiknum var
staðan jöfn og Danir yfirleitt með
yfirhöndina.
Þegar 2 og hálf mfnúta voru
eftir höfðu Danir yfir 52:47 og
Norðurlandakeppnin í körfubolta
hófst á föstudagskvöldið með
stuttrf setningarathöfn f einni af
íþróttahöllum Helsingfors, fremur
lítilli og raunar of lítilli, því hús-
fyllir var um 1000 manns, alla
dagana sem keppnin fór fram.
Fyrsti leikur keppninnar var við
Svfa og var geysiharður. Þetta kom
mjög á óvart þar sem Svíum
hafði verið reiknaður heldur
auðveldur sigur í keppninni við
íslendinga. Okkar menn byrjuðu
betur en Svíar og það var ekki fyrr
en um miðbik hálfleiksins að Svíar
komust yfir. Níu sinnum í leiknum
var staðan jöfn en í hálfleik var
staðan 25:23 fyrir Svía.
I seinni hálfleik var jafnt f 33:33
- 35:35 - 37:37 og 39:39. I 51:49
kómust Svfar framúr íslendingum
en þá var Hólmsteini Sigurðssyni
vísað út af með 5 brot, en Hólm-
steinn hafði haft það erfiða hlut-
verk að gæta bezta manns Svía,
Hanson, sem tók nú til og skoraði
12 af 14 stigum Svía til leiksloka
Brottrekstur Hólmsteins ásamt því
sigurinn virtist blasa við þeim. Þá
var það að Þorsteinn Hallgrfmsson
tók málin algjörlega í sínar hend-
ur. Anton fékk tvö vítaköst og
skoraði úr öðru, en Þorsteinn skor
ar 52:50 og 1 mfn. 20 sek eru
eftir og Þorsteinn fær tvö víti og
skorar örugglega úr báðum þrátt
fyrir yfirspennuna við ógurleg fagn
aðarlæti áhorfendanna, sem allan
tímann voru mjög vinsamlegir ís-
lendingum. Þegar 1 mín. 05 sek. eru
eftir skorar Arne Pedersen, bezti
maður Dana úr öðru vítinu sr
hann fær og áhorfendur
kuldalega, og nú eru aðeins 30 s.
eftir og Þorsteinn skorar glæsilega
og staðan er 54:53 fyrir ísland. Þeg-
ar 20 sekúndur eru eftir fær Peder
sen gott tækifæri með tveim vítum
en brennir báðum af, en nær for-
ystunnf fyrir Dani 55:54 rétt á eftir
. . . og nú eru aðeins 6 sekúndur
eftir, íslendingar með boltann en
að þvf er virðist mjög vonlitlir.
Þorsteinn allgrímsson fær boltann
á miðjum velli og geysist fram.
Tveir menn eru greinilega honum
til höfuðs og þeir neytá allra
bragða, en Þorsteinn smýgur gegn
um hverja hindrun og sekúndu-
vísirinn tifar og er að falla á íslend
ingana, þegar Þorsteinn stekkur
loks upp og boltinn lendir örugg-
lega í körfunni, sigurinn hefur lent
"-lands megin í mesta hörkuleik
Tpninnar.
Síðasti leikur íslands var í gær.
Það var leikið við Finna. Leikurinn
gekk íslandi nokkuð í hag til að
byrja með gegn hinu.n sterku Finn
um, en þó var alltaf greinilegt að
Finnar mundu sigra. Eftir 8 mín.
Framhald af bls. 5.
Þorsteinn Hallgrímsson er al
mennt álitinn bezti körfuknatt-
leiksmaður NöfðlMafiflájl eWíí
leikina í Polar Cup um helgina.
Átti hann stórkostíega léiki og
varð Iang stigahæstur í keppn-
inni. Hann skoraði 77 stig, sem
er algjört met í keppninni.
eða 26 stig að meðaltali í
kom Finninn Limo með 55 stig.
Þorsteinn var hvað eftir ann-
FERMINGARGJAFIR
Eftirlætisgjöf fermingar-
stúlkunnar:
SKATTHOL
Ennfremur:
SVEFNBEKKUR
STÓLL
KOMMÓÐA
VEGGHÚSGÖGN
að bezti maður íslands og oftast
var hann bezti og vinsælasti
leikmaður Ieikkvöldsins og
klappað lof í lófa þegar hann
náði boltanum frá andstæðing-
um sínum, Iagði fallega upp
fyrir félaga sína eða brauzt upp
á eigin spýtur og skoraðl.
Sérstök var frammistaða hans
þó síðustu mínúturnar gegn Dön
um, þegar hann hreinlega vann
leikinn á eigin spýtur. „Ég man
bara varla eftir sfðustu einni og
hálfri mínútunni“, sagði hann
við fréttamann Vísis eftir leik-
inn, .„þetta var allt mjög æs-
Eftir keppnina voru beztu
menn hverrar þjóðar valdir og
eru þeir þessir: Þorsteinn Hall-
grímsson, ísland, Pedersen, Dan
mörku, Hanson, Svíþjóð og
Límo, Finnlandi. Fengu þeir að
launum alklæðnað frá finnska
körfuknattleikssambandinu.
Þors teinn álitinn
á Norðurlöndum
Innanhússknattspyrnumót KR
að Hálogalandi kl. 20.15. Keppt
er f riðlum og hófst keppnin í
fyrrakvöld fóru leikar þá svo:
A-riðill:
K.R. a — Valur 14:4.
Fram —Haukar 10:4.
B-riðill:
Víkingur —Í.B.K. 2:6.
K.R. b — Þróttúr 4í8.
A-riðill:
K.R. a - Fram 6:12.
Valur—Haukar 11:3.
B-riðill:
K.R. b - Í.B.K. 5:5.
Þróttur — Víkingur 10:4.
í kvöld leika:
A-riðill:
K.R. a — Haukar.
Valur — Fram.
B-riðill:
K.R. b — Víkingur.
Þróttur - I.B.K.
í riðlunum eru Fram og Þrótt
ur efst, hafa unnið báða leiki
sína en vinni Valur Fram í
kvöld sker markahlutfall úr um
röð KR, Vals og Fram og þá
reiknað með sigri KR yfir
Haukum. I b-riðli sker leikur
ÍBK og Þróttar úr um hvor
lendir í úrslitum, en Þrótti
nægir jafntefli.
ÍSIENIKA UL
VARÐ FJÓRÐA
Ath. Munið okkar hagkvæmu greiðsluskilmála
Húsgagnaverzlun Austurbæjar
Skólavörðustíg 16 — Sími 24620
íslenzka unglingalands-
liðið í handknattleik
varð fjórða í röðinni
með einn sigur í Norður
landakeppninni sem
frarn fór í Eskilstuna
um helgina. íslendingar
unnu Finna í fyrsta leik
sínum með 11:10 í hörku
leik og urðu Firníar
neðstir í keppninni.
Vegna slitins sæsíma reynd-
ist ekki unnt að ná sambandi
við forráðamenn íslenzka liðs-
ins í Eskilstuna í gær og verð-
ur nákvæm frásögn að bíða.
Samkvæmt fréttaskeytum frá
NTBsegir að Svíar hafi enn einu
sinni unnið á markahlutfalli í
keppni þessari og er það í fjórða
sinn í röð sem Svíar vinna.
Geta Svíar raunar þakkað Norð
mönnum fyrir sigurinn, en þeir
unnu Dani með 16:15 á laugar-
daginn og Danir unnu Svía með
16:14 í síðasta leik keppninnar
í gær. Urðu 3 lönd, Sviþjóð,
Danmörk og Noregur þvi jöfn
að stigum með 6 stig, ísland
með 2 og Finnland ekkert.
Masa
*tSf.