Vísir


Vísir - 02.04.1964, Qupperneq 8

Vísir - 02.04.1964, Qupperneq 8
8 V í S I R . Fimmtudagur 2. apríl 1964. T VISIR Otgefandi: Biaðautgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. AðstoSarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði. I lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur) Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Nauðsyn stöðvunar |£JARADÓMUR hefir kveðið upp skynsamlegan úrskurð í kjaramáli opinberra starfsmanna. Það er öllum ljóst að kapphlaupið milli einstakra stétta og starfshópa um laun hefir gert raungildi kjarabótanna, sem náðst hafa, að sáralitlu. Þetta þekkja opinberir starfsmenn bezt af eigin raun. Sú mikla kjarabót sem þeir fengu með dómnum fyrst í júlí í fyrra varð tilefni til samanburðar annarra stétta við launakjör opinberra starfsmanna. Þær stéttir settu fram kröfur um sam- bærilegar launahækkanir, þótt í rauninni hafi laun opinberra starfsmanna aðeins verið leiðrétt til sam- ræmis við þeirra eftir margra ára misræmi. Launa- hækkanirnar voru knúnar fram með hörðu og í kjölfarið hafa fylgt miklar verðhækkanir. Ef kjara- dómurinn hefði nú enn veitt opinberum starfsmönn- um 15% kauphækkun hefði það sama gerzt, kjarabót- in orðið harla lítils virði og nýr samanburður annarra stétta átt sér stað. Kjaradómur segir réttilega að ríkis- starfsmenn og annað fastlauna fólk hafi sérstaka á- stæðu til þess að óttast áhrif áframhaldandi launa- kapphlaups á afkomu sína og aðstöðu. Því væri til mikils að vinna ef unnt reyndist að stöðva þá hættu- !egu þróun sem átt hefir sér stað að undanförnu, jafn- vol þótt nokkur hluti ríkisstarfsmanna fengi ekki þá ’eiðréttingu kjara sinna, sem samanburður við aðra starfshópa kynni nú að gefa tilefni til. gN vandamálið er miklu víðtækara. Það er nú flest- um orðið ljóst að sífellt kapphlaup milli stétta um prósentur og krónur er engin varanleg né raunhæf kjarabót. Síðustu sönnun fyrir því eru állar stéttir að fá þessar vikurnar, er miklar verðhækkanir dynja yfir, sem eru bein afleiðing kapphlaupsins. Þess vegna verður að grípa til ráðstafana til þess að stöðva þetta tilgangslausa kapphlaup, bæta kjörin í réttu hlutfalli við afkomu þjóðarinnar og vinna um leið bug á verð- bólgunni, sem lifir lystisemdarlífi, þar til slíkar ráð- stafanir verða gerðar. Reynsla annarra ^ÐRAR þjóðir hafa staðið oftsijmis í svipuðum verð- bólgu og kaupgjaldserfiðleikum og við íslendingar um þessar mundir. Danir tóku hraustlega á vandamálinu er þeir bundu kaupgjald og verðlag í landinu í tvö ár. Jafnframt settu þeir á 7—9% söluskatt sem dró úr þenslunni. Þær ráðstafanir hafa gefið hina beztu raun, enda var öllum flokkum Ijóst að einhverju varð að fórna í bili fyrir efnahagslegt öryggi og stöðugt verð- lag. Frakkar hafa nýlega framkvæmt svipaða bind- ingu, þótt skemmra gangi, og einnig ítalir. Reynsla þessara þjóða sýnir ótvírætt að efnahagsvandamálin má leysa með friði, ef skynsemin er látin ráða. Heígi Ólafsson skák- meistarí Islands 1964 Ckákþing íslands í ár fór fram um páskana og var að þessu sinni teflt í fimm flokkum. Frá úrslitum í hverjum flokki hefur þegar verið sagt hér í blaðinu og munu þau því ekki verða rak in aftur, en spjallað lítils háttar um þau. í landsliðsfiokki, sem er efsti flokkurinn, var teflt um sæmd- arheitið „skákmeistari íslands“ og hlaut Helgi Ólafsson frá Keflavík hnossið í þetta .skipti. Sigur Helga kom þeim ekki á óvart, sem með rnótinu fylgdust, þótt frammistafia hans hafi al- mennt komið nokkuð á óvart. Hann byrjaði heldur ekki vel, tapaði fyrstu skákinni — gegn Hilmari. En fall er fararheill, segir máltækið og eftir þessa köldu dýfu vann Helgi sex skák- ir í röð og komst þannig í efsta sæti. Fyrir síðustu umferð hafði Birni Þorsteinssyni tekizt að skjótast hálfan vinning fram úr honum, en síðasta umferðin réði úrslitum: Björn tápaði fyrir Jónasi Þorvaldssyni, en Helgi sigraði Jón Kristinsson. Hinn nýbakaði Islandsmeistari er 20 ára gamall prentnemi, ætt aður úr Keflavík og núverandi skákmeistari Suðurnesja. Þótt ungur sé að árum, er þetta í þriðja sinn, sem hann teflir í landsliðsflokki á Skákþingi ís- lands. Aðeins tvisvar áður hafa utanbæjarmenn hlotið íslands- meistaratignina, en þeir eru Hannes Hafstein (Akureyri) og Stefán Ólafsson (Siglufirði). Óskum við Helga Ólafssyni tii hamingju með sigurinn! Jafnir í öðru sæti urðu þeir Björn Þorsteinsson og Trausti Björnsson. Þeim verður varla legið það á hálsi, þótt þeir mættu láta í minni pokann gegn utanbæjarmanni, því að yfirleitt sýndu þeir góða tafl- mennsku og keppnisanda. Fjórði varð Freysteinn Þor- bergsson og mynda þessir fjórir efstu landsliðið í ár. Til gamans má geta þess, að þeir Helgi og Freysteinn eru ná- frændur (bræðrasynir) og rennir það enn stoðum undir þá kenn- ingu, að skákgáfan sé að ein- hverju leyti arfgeng. I meistaraflokki varð Jón Hálfdánarson efstur og Bragi Þorbergsson annar. Hljóta þeir báðir rétt til þátttöku í næstu landsliðskeppni. Sigurvegari i I. flokki varð Helgi Hauksson og flyzt hann upp í meístaraflokk. Efstur af II. flokksmönnum varð Sigtrygg ur Sigurðsson, sem flys£ upp f I. flokk. í unglingaflokki eru úrslit enn ekki ljós, en þar urðu efstir þeir Gísli Jónsson og Jóhannes Lúð- víksson. Munu þeir tefla einvígi um það hvor upp kemst í II. flokk. Við birtum hér eina af skemmtilegustu skákum móts- ins. Er hún var tefld, var Frey- steinn 1 efsta sæti, hafði hlotið 4 vinninga og unnið alla and- stæðinga sína. Jónas teflir djarf lega og hefur hlotið viðurnefnið „kóngabani", enda sannaði hann Helgi Ólafsson, skákmeistari, þá nafngift enn áþreifanlegar með sigrum sínum gegn Braga Kristjánssyni, er hann hafði náð forystunni og síðast með þvi að svipta Björn Þorsteinsson kórón unni í síðustu umferð. Hvítt: Freysteinn Þorbergsson. Svart: Jónas Þorvaldsson. Kóngsindversk vörn. I. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. d4 0-0 5. g3 d6 6. Bg2 Rc6 7. d5 Ra5 8. Rd2 c5 9. Dc2 a6 10. a3 Dc7 11. b3 — Það er fróðlegt að sjá hversu mikinn þrýsting svartur hefur á c4-reitnum, enda treystir hvitur sér ekki til að hugsa frekar um framrás peðs- ins til b4. II. - Bd7 12. Bb2 b5! Svart- ur gripur tækifærið og hefur sjálfur aðgerðir á drottningar- væng. 13. Rdl bxc4 14. bxc4 Hab8 15. 0-0 Hb7 16. e4 Hfb8 17. Hel Dd8 Svartur rasar e<rki um ráð fram og gætir þess að valda viðkvæma punkta. 18. Bc3 Rb3 19. Rxb3 Hxb3 2 h3 Ba4 21. Dd2 Rd7 22. Bxg7 Kxg7 23. Dcl Re5 24. He3 Da5! Þar sem hvítur hefur ekki tíma til neinna umsvifa á mið- borði eða kóngsvæng, er nú ó- hætt að hefja lokaatlöguna drottningarmegin. 25. Bfl Rf3t 26. Kg2 Rd2! 27. Rc3 Hb2 2o Ha2 Hxa2 29. Rxa2 Hbl 30. Dc3t Dxc3 31. Rxc3 Rxfl 32 Rxbl — Vonlaust er einnig 32. He2 (Ekki 32. Hd3 Bc2!), því að svartur getur hvort sem vill leikið 32. — Bdl eða — Hcl. 32. - Rxe3t 33. fxe3 Kf6! Hér eftir verður engum vörnum við komið. 34. Kf3 Ke5 35. Rd2 Bc2 36. h4 h5 37. g4 Bdlt 38. Kg3 Bxg4 39. Kf2 f6 40. Kel g5 41. Kf2 BDl Hvítur gafst upp. ERLENDAR FRÉTTIR Orslit svæðismótsins rússneska urðu sem hér segir: 1. Spassky 7 v. 2. -3. Bronstein og Stein 6(4 v. 4. Kolmoff 6 v. 5. -6. Kortsnoj og Svetin 5(4 v 7. Geller(!) 5 v. Þrír efstu komast áfram í millisvæðamótið, sem hefst í Amsterdam hinn 20. mai n. k. Skákdæmi nr. 4 Hvitur leikur og mátar í 3. leik. Lausn á skákdæmi í síðasta þætti: 1. Kd6! d3 2. Kc6 c3 3. Kb6 Hh6 4. Re6 Hh7 5. Df8 mát. Þ. Ó. m

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.