Vísir - 17.04.1964, Qupperneq 2
% '
Hér sést verðlaunaafhendingin í 50 m. flugsundi, skemmtilegustu grein kvöldsins. Frá hægri: Davíð
Valgarösson, Bobby McGregor og Andy Harrower.
Var 15 minúfur með — en þú kölluðu
skyldustörfin um borð í GULLFOSSI
í leik Víkings og Fram í fyrrakvöld vakti það nokkra athygli, að
einn bezti leikmaður Víkings, Jóhann Gíslason, var ekki með nema
fyrstu 15 mínútur leiksins, en eftir það sást hann ekki meir, hvorki
í Iiðinu, úti á vellinum né meðal varamanna.
Ástæðan var sú, að hann varð að fara við svo búið, þar eð hann
er skipverji á GULLFOSSI, eins og menn muna frá því í vetur, er
ritað var um „vélstjórann skotharða“. Gullfoss var sem sé að leggja
af stað úr Reykjavíkurhöfn og Jóhann gat ekki Iengur leikið með
liði sinu. Telja margir það óhapp fyrir Víking, sem hefði eflaust borið
sigur úr býtum, ef hans hefði notið við.
Norska liðið Fredens-
borg og Víkingur keppa í
handknattleik í kvöld að
Hálogalandi. Fredensborg
er eins og kunnugt er bezta
lið Norðmanna og er án
efa mjög gott lið. Leikur-
inn hefst kl. 20.15.
VMbragðtö { 50
m. fhigsundi. —
Fr4 vinstri: Guð
mundur Gísla-
son, R. McGre-
gor, Davíð Val-
garðsson og
Andy Harrower.
Skotamir sigursxlir / gærkvoim
Guðmundur setfi 60. met sitt í gær
Skozka sundfólkið fagn-
aði sigrum á KR-mótinu í
gærkvöldi. Það tók þátt í
4 greinum í gærkvöldi og
vann 3 þeirra. Glæsilegast
og eftirminnilegast í gær-
kvöldi var 200 metra skrið
sund hins unga McGregor,
sem hann synti á 2.02,3 og
var rúmum 6 sekúndum á
undan Davíð Valgarðssyni
úr Keflavík, sem nálgast
met Guðmundar Gíslason-
ar hröðum skrefum, en
Guðmundur varð nú 3. á
2.12,3. Hraði McGregors
var geysilegur og engu lík
ara en hann svifi ofan á
vatnsborðinu.
Guðmundur átti betri tilþrif í 200 m
baksundinu. Þar vann hann Skot-
ann Andy Harrower eftir hörku-
keppni með 2.25,1 mín., sem er
nýtt Islandsmet og bót á eigin meti
um 1/10 úr sek., en met þetta er
60. met Guðmundar á sundferli
■hans. Harrower fékk tímann 2.26,4.
Ein skemmtilegasta grein kvölds
ins var þó 50 metra flugsund karla,
þar sem allir fjórir úrslitamenn-
irnir voru mjög jafnir en Skotam-
ir tveir hrepptu þó tvö fyrstu sæt-
in, McGregor á 28,3, Harrower á
28,4, Davíð Valgarðsson á sama
tíma og Guðmundur Gíslason á
28,9.
Ann Barter og Hrafnhildur voru
hörðustu keppinautarnir í 200 m.
bringusundi, en Baxter vann þar
mjög öruggan sigur, mun öruggari
en vænta mátti. Hún fékk 2.53,3,
en Hrafnhildur 2.58,0.
Hins vegar gat engin ungu stúlkn
anna ógnað Hrafnhildi í keppninni
um Flugfreyjubikarinn. Þar vann
Hrafnhildur 100 metra skriðsundið
á 1.06,7^ Andrea Jónsdóttir frá
Selfossi á 1.13,2 og Hrafnhildur
Kristjánsdóttir, Ármanni, á 1.14,1.
Mjög athyglisverðum árangri
náði hinn ungi sundmaður Fylkir
Ágústsson frá ísafirði í 200 metra
bringusundi. Hann náði nú sínum
langbezta tíma, 2.47,9 og vann með
yfirburðum.
Sveit Ármanns vann sigur f 4x50
metra skriðsundi karla á 1.52,1, en
Sundfélag Hafnarfjarðar varð
næst með 1.56,2.
Gestur Jónsson, SH, vann 100
metra bringusund drengja á 1.20,5,
Matthildur Guðmundsdóttir vann
50 metra bringusund telpna á 39,0,
sem er nýtt telpnamet, og 50 m.
skriðsund unglingspilta vann Davíð
Valgarðsson á 26,9.
Seinni hluti sundmóts KR verður
á sunnudaginn kl. 3.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Ann Baxter eftir bringusundið í gær-
kvöldi.
HANDKNA TTLEIKUR
IFREDENSBORG - VÍKINGUR
Leika í kvöld kl. 20.15 að Hálogalandi.
Handknattleiksdeild Víkings