Vísir - 17.07.1964, Qupperneq 3
V í SIR . Föstudagur 17. júlí 1964.
..H»MM!eæB!!llg!SS|gfeli.
Sjálfvirkar þvottavélar
LÉTTA MJÖG HÚSMÓÐURSTÖRFIN
Það eru ekki ýkja mörg ár
síðan „þvottadagur“ var mikið
fyrirtæki og lítið tilhlökkunar-
efni fyrir sistarfandi húsmæður
og hjálparkonur þeirra. Þá voru
ekki vélarnar komnar til að
létta störfin, og það kostaði
ekkert smáræðis umstang að
leggja í bleyti í ótal bala og
’
þvottakör, kveikja upp undir
þvottapottinum, bursta, þvæla
og nudda þvottinn á þvotta-
brettunum alkunnu, vinda, skola
og sjóða, þreinþvo, vinda aftur
og skola aftur, hengja upp á
snúrur til þerris, brjóta upp,
rulla, strauja, o.s.frv., o.s.frv.
Þvottahúsið var eins og gufu-
baðstofa, húsmóðirin batt á sig
stærðar strigasvuntu og höfuð-
klút og óð um í háum gúmmí-
stígvélum, rennsveitt og más-
andi, og vafalaust hefur henni
oft legið við að óska, að hún
þyrfti aldrei framar að þvo
þvott eða jafnvel líta inn i
þvottahús — ef hún var þá svo
lánsöm að hafa sérstakt þvotta-
hús, en verða ekki að notast
við eldhúsið í staðinn.
Nú er orðinn annar bragur á.
Sjálfvirkar þvottavélar, sumar
jafnvel búnar rafheilum, vinna
verkið, og húsmóðirin getur
tiplað um á títuprjónahælum og
í bezta kjólnum sínum, meðan
þvotturinn er í fullum gangi.
Hún þarf ekki annað en stinga
honum í vélina, láta þvottaefnið
I og styðja á takka eða snúa
takka — síðan bíður hún, þang-
að til honum er skiiað þurr-
undnum og tandurhreinum. Ef
hún vill fá hann nógu þurran
til að geta strax byrjað að
strauja — þær fáu flíkur, sem
ekki eru úr gerviefnum, er
aldrei þarf að strauja — bregð-
ur hún honum í þurrkarann,
sem er nokkurs konar tvíbura-
bróðir þvottavélarinnar, og still-
ir tímalengdina með takka. Eft-
ir það tekur strauvélin við, eina
tækið af þessum þremur undur-
samlegu hjálpargögnum nútíma-
húsmóðurinnar, sem ekki er
fyllilega sjálfvirkt.
Hér á landi er glæsilegt fram
boð af ails kyns ágætum heim-
ilistækjum, og geta húsmæður
valið úr mörgum tegundum
þvottavéla, hvort sem þær vilja
hafa þær algerlega sjálfvirkar
eða kjósa heldur að stjórna
verkinu samkvæmt eigin
hyggjuviti. Af gerðum, sem nú
eru fáanlegar eða væntanlegar
á markaðinn alveg á næstunni,
má nefna t.d. LAVAMAT (verð
kr. 24.957.00), HOOVER (ca. kr.
20.000.00, sjáifvirkar með raf-
heila og 8 mismunandi stilling-
um, eftir því hvers konar þvott
um er að ræða), GENERAL
ELECTRIC (kr. 18.800.00-
23.300.00, þurrkari ca. kr.
17.000,00), LAUNDROMAT (kr.
20.000.00, en kr. 21.534.00 með
vatnshitara, þurrkari kr. 17 —
18.000.00) og KELVINATOR
(kr. 19.33.00). Þessar eru allar
sjálfvirkar, en NORGE (kr. 13—
17.000.00) er ein af mörgum
tegundum, sem húsmóðirin hef-
ur meiri persónuleg ráð yfir, en
útheimtir á hinn bóginn dálítið
meiri fyrirhöfn.