Vísir - 25.09.1964, Qupperneq 3
VÍSIR . Föstudagur 25. september 1964
3
Úr íslenzku sýningardeildinni. Stúlkan lengst til vinstri á upphlutnum heitir Guðborg Kristjánsdóttir, en sú sem er til hægri á Loftleiðabún
ing, heitir Valgerður Ólafsdótt-ir og er flugfreyja hjá félaginu.
„Það fylStist allt þegar íslenzka
lambakjötið kom úr steikarofninum
Fyrir nokkru laiik brezku mat
vælasýningunni £ London, en ís-
land var eitt af 28 löndum sem
sýndu þarna framleiðslu, sem
hæfa mundi hvaða konungsborði
sem væri. Öll sýndu löndin glæsi
lega matvöru og var þar engin
undantekning.
Agnar Tryggvason, hjá SÍS,
sagði £ viðtali, að sýningin
hefði heppnazt einkar vel og
fjöldi manna komið og skoðað
hana. „Lambakjötið okkar vakti
sérlega athygli og þótti afar ljúf
fengt. Frá morgni til kvölds var
sjálfvirkur steikarofn £ gangi og
þegar steikin var tilbúin voru
gefnar bragðprufur. Þá fylltist
sýningardeildin okkar ævinlega.
Við gáfum þannig 700 kfló af
kjöti f hálfgerðum „pillumat" á
þessum t£ma“.
Fyrirtækin sem tóku þátt í
islenzku sýningardeildinni voru
SÍS, Sfld & Fiskur, sem sýndi
London Lamb o. fl., Ölgerðin,
sem gaf ísl. bjór af sterkari
gerðinni með svartadauða
„snaps“, flugfélögin bæði og
ferðaskrifstofan, sem sýndi fs-
lenzkar kynningarmyndir allan
daginn á sjónvarpsskermi.
Eins og meðfylgjandi mynd
sýnir voru myndskreytingar á
veggjum frá Reykjavík af fjár-
rekstri f Þjórsárdal, af íslenzk
um stúlkum á hestbaki við
Stórusteinaflatir við Þjórsá og
svo auglýsingar á Surti og
Gullfossi, en í kæliborðum var
ýmis framleiðsla bæði sjávar
og landbúnaðarafurða, s. s. ost-
ar, smjör, rækjur, humar og kavf
ar (grásleppuhrogn).
íslenzkar stúlkur komu
þarna fram fyrir landsins hönd,
og kannski hefur gestafjöldinn
ekki sízt verið svo mikill vegna
þeirra. Önnur þeirra, sem er á -
meðfylgjandi mynd, Guðborg
Kristjánsdóttir sagði:
„Þetta var stórkostlega skemmti
legur tími. Það var alltaf eitt-
hváð skemmtilegt að gerast".
British Food Fair stóð frá
1. sept. til 16. sept., og er hald-
in árlega. Þótti sýningin í heild
takast mjög vel.
hehr ntiklu meira fylgien Goldwater
Stofananir þær f Bandaríkjun
um sem framkvæma skoðana-
kannanir eru nú allar sammála
um það, að fylgi kjósendanna
við Lyndon Johnson sé miklu
meira en fylgi við Barry Gold-
water. Segja þær að munurinn
sé svo mikill, að einsdæmi sé.
Síðasta vfðtæka skoðanakönnun
in sem fór fram nú í byrjun vik
unnar sýnir, að Johnson forseti
sé með 63% kjósendanna á bak
við sig, Goldwater með aðeins
37%. Séu þessar kannanir réttar
og haldist þessi munur svo, þá
virðist ljóst að Johnson vinni
glæsilegasta kosningasigur f
sögu bandarfskra forsetakosn-
inga.
Það er annars einkennilegt, að
flokkur Johnsons, demokratar
virðist ekkert kæra sig um að
hampa þessum tölum. Þeir virð
ast nú hræddir um, að slíkar töl
ur kunni að draga úr áhuga
flokksmanna, þeir verða væru-
kærir og láta sér á sama standa
Johnson.
um kosningarnar. Hefur flokkur-
inn þvert á móti gefið út ýmis
flugrit, þar sem hann varar sína
menn við að taka skoðanakann
anir of bókstaflega.
Það er bent á, hvernig fór fyr-
ir forsetaefni republikana Thom-
as Dewey f kosningunum á móti
parry Truman 1948. Þá fóru
fram margar skoðanakannanir
og voru þær flestar á eina leið,
að Dewey hefði geysilegt at-
kvæðamagn fram yfir Truman.
Þetta olli áhugaleysi f röðum
republikana, sem töldu kosningu
Deweys vísa hvort eð er. Úrslit
þeirra kosninga kom því mjög á
óvart. Truman vann glæsilegan
sigur.
Á það er bent í þessu sam-
bandi að svo slæmt orð fari af
Goldwater innan vissra hópa
manna f Bandaríkjunum að vel
kunni svo að vera, að sumir
raunverulegír fylgismenn hans
vilji ekki segja frá því f skoðana
könnun, að þeir ætli að kjósá
hann. Því kunni fylgi hans að
vera meira en kemur fram i
skoðanakönnunum.
Það er margt einkennilegt,
sem kemur fram f skoðanakönn
unum. Það þykir t. d. einkenni-
legt, að eini landshlutinn, þar
sem Goldwater virðist hafa á-
líka mikið fylgi og Johnson er
Suðurríkin, en þar er þó Texas,
Goldwater.
heimarfki Johnsons forseta. Það
er greinilegt, að fylgi Gold-
waters byggist þar mjög á af-
stöðu hans í mannréttindamál-
inu. Hins vegar gekk kosninga-
ferð Goldwaters um Suðurríkin
um síðustu helgi mjög illa. Á-
heyrendur voru ekki ánægðir-
með mótsagnakenndar yfirlýsing
ar hans.
í heimahéraði Goldwaters sjálfs
Vesturströndinni sýna skoð
anakannanir, að Johnson hefur
helmingi meira fylgi en Gold-
water. Og þótt Johnáon sé mót-
mælendatrúar en Goldwater slái
um sig, að faðir hans hafi verið
Gyðingur hefur Johnson þrefalt
meira fylgi meðal Gyðinga.
Kartöflumar
10,65 kílöið
Verð á kartöflum hefur þegar
verið ákveðið.
Heildsöluverð til kaupmanna á
1. flokks kartöflum í 50 kg. sekkj-
um er kr. 7,84 pr. kg. Smásöluverð
í 5 kg. pokum er kr. 10.65 pr. kg.
en f 2 y2 kg. pokum kr. 10.80.
Heildsöluverð á 2. fl. kartöflum
f 50 kg. pokum er kr. 6.54 pr. kg.,
en smásöluverð kr. 9.16 í 5 kg.
pokum og kr. 9.30 í 2 V2 kg. pok-
um.