Vísir - 14.01.1965, Page 16
ISIF
Fimmtudagur 14/janúar 1965
92 þús. fóru um
Kefluvíkurvöll
Á árinu 1964 fóru um Kefiavíkur
flugvöll: 92.834 farþegar (35.945),
857.805 kg. vörur (552.458),
97.421 kg. póstur (67.758). Tölur
innan sviga frá árinu 1963.
Smáhýsahótel
byggt í Hveragerði
Félugið Hluð h.f. sfofnuð
1 gærkvöldi var haldinn fram
haldsstofnfundur félagsins Hlað
h.f., en hlutverk félagsins er
veitinga og gistihúsarekstur. —
Hlutafé Hlaðs er 7 millj. króna
og skipta hluthafar tugum.
-<*>
Forstjéri Norður-
stjörnunnur rúðinn
Akureyrarblöðin skýra frá því að
forstjóraskipti hafi nú orðið hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa. Lætur
Andrés Pótursson af starfi og tekur
við forstjórastöðu hjá síldarniður-
suðuverksmiðjunni Norðurstjörn-
unni í Hafnarfirði.
Við starfi Andrésar tekur kunn
ur togaraskipstjóri á Akureyri,
Vilhelm Þorsteinsson.
Fyrsta verkefni hins nýja fé-
lags verður bygging gistihúss i
Hveragerðí. Verður það gistihús
með bandarísku sniði, eftir svo
nefndrj „motel" fyrirmynd. —
Byggð verða mörg smáhýsi vest
an við Hveragerði, undir heið-
inni við þjóðveginn og auk þess
veit'ingaskáli þar sem bæði verð
ur „kafeteria“ og góður veitinga
salur. Auk þess er ætlunin að
koma upp miklum skála þar
sem alls kyns leiktækjum verði
fyrir komið til dægrastyttingar
gestum hótelsins.
Formaður hins nýja félags er
hótelstjóri Sögu, Konráð Guð-
mundsson. Aðrir í stjórn eru
Bragi Einarsson Hveragerði,
Steingrímur Hermannsson fram
kvæmdastjóri og Styrmir Gunn
arsson stud. jur. í varastjórn
er Hörður Einarsson stud. jur.
Manfreð Vilhjálmsson ark'itekt
vinnur að teikningum hins nýja
hótels.
Svavar Gests formaður F.Í.H. skýrir hina nýju samninga félagsins á fundi í gær.
Nú hefst dansinu afturí
Efni somkomulagsins við hljóðfæruleikaru
í gær samþykktu félagsfund-
ir hjá Félagi íslenzkra hljóm-
listarmanna og Sambandi veit-
inga og gistihúsaeigenda samn-
ing þann sem samninganefndir
I
Olvun viS akstur eykst
stóríega meS hverju ári
félaganna höfðu komið sér sam-
an um kvöldið áður.
Samkvæmt því verður kaup
hljóðfæraleikara kr. 135,50 á
tímann, auk 7% orlofs og 1%
sjúkratryggingargjalds. Hér ber
á það að líta að vinnutími hljóð
færaleikara er yfirleitt ekki
nema 15—20 tímar í viku og er
tímakaupið miðað við það hve
vinnutíminn er stuttur.
Samkvæmt fyrri samningi
hljóðfæraleikara var öll upphæð
þessi í einu lagi, eða kr. 122,50 á
tímann. Kaupkröfur hljóðfæra-
leikara voru við samningana kr.
225 á tímann.
Aðrar breytingar í hinum nýju
samningum eru að kvaðningar-
tími hljómsveita á föstudags- og
laugardagskvöldum er nú frá kl.
20 en var áður frá kl. 21. Einnig
var sú breyting gerð að tíminn
á danshúsum milli kl. 1 og 2
á aðfarnótt sunnudags greiðist
nú með næturvinnuálagi.
Vísir hefur aflað sér upplýs-
inga um að fyrr meðan gömlu
samningarnir giltu var tltt .að
hljóðfæraleikurum voru greiddar
kr. 150 á tímann, svo hér er
verið að staðfesta í samningum
kaup sem mörg danshúsin hafa
begar greitt um all langt skeið.
Ölvun við akstur hefur stórlega
aukizt f Reykjavík með hverju ár-
inu sem líðúr og á árinu sem leið
voru 677 blóðsýnishorn tekin úr
mönnum, sem grunaðir voru um að
hafa ekið bifreiðum undir áfengis
áhrifum.
Árið 1961 voru ekki tekin nema
um 250 blóðsýnishorn úr ökumönn
um, árið næsta á eftir hækkar sú
tala næstum um helming, eða í 425.
Árið 1963 eru blóðsýnishorn tekin
úr 582 ökumönnum og nú 677.
Þetta er ískyggilega há tala og
ískyggilega mikil aukning. Þess ber
þó að gæta að þó sýnishornin séu
tekin, er ekki þar með sagt að það
sé sönnun fyrir því að áfengismagn
hafi fundizt í blóðinu, eða þá svo
mikið að dugi til að sakfella öku-
manninn fyrir. í öðru lagi hefur í
einstöku tilfellum blóðsýnishorn
verið tekið úr fleiri en einum
mannj úr einni og sömu bifreið.
Það er gert þegar einhver vafi leik
ur á hver ekið hafi eða líkur benda
til að fleiri en einn hafi ekið.
I sambandi við þessa öru fjölgun
blóðsýnishorna frá ári til árs ber
þess að geta að eftirlitið hefur ver
ið hert með ölvuðum ökumönnum
með hverju ári sem liðið hefur. Þar
við bætist að bílum höfuðborgar-
innar hefur fjölgað mjög ört á
þessu tímabili og þar með öku-
mönnunum.
Sementsnotkun íslendinga
sú næstmesta í Evrópu
ísland og Sviss eru þau tvö
lönd sem langsamlega ber hæst
í Norðurálfu hvað sementsnotk
un snertir. Sviss er að vísu
talsvert hærra í þessu efni
me<5 632 kg. notkun á hvern
íbúa landsins, en þar næst kem
ur svo ísland með 560 kg. á
hvern íbúa.
Þessar upplýsingar gaf dr.
Jón Vestdal framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðju ríkisins í
gær. Hann sagði að þriðja
hæsta landið í Norðurálfu hvað
sementsnotkun snertir, væri
Þýzkaland með 484 kg. á íbúa,
þá Austurrlki með 442, italfa
437, Svíþjóð 415, Belgía 392,
og Frakkland 355. Sementsnotk
un Dana er 293 kg. á ibúa, eða
rétt rúmlega helmingur þess
sem við íslendingar notum.
Norðmenn nota 332 kg. (L mann
Þá skýrði dr. Vestdal frá því,
að sementsnotkun Islendinga
hefði aldrei verið meiri en
á árinu sem leið. Hún nam 103.
820 lestum, eða um 2000 lestum
meira, en hún hefur mest verið
áður. Það var í fyrra. Hefur
orðið mjög mikil aukning á sem
entsnotkun landsmanna tvö síð
ustu árin, og hvort um sig kom
izt yfir 100 þús. lestir. Aftur
á móti nam sementsnotkunin
1961 ekki nema rúmlega 61 þús.
lest og 72 þús. lestum árið 1962
Á sl. ári var ekkert sement
flutt úr landi, en það hefur
verið gert um nokkur undan-
farin ár. Ekkert sement var þá
heldur notað til Keflavíkurveg
ar eða annarra stórfram-
kvæmda, en árið 1963 voru
nær 7 þús. lestir notaðar í
Keflavíkurveginn.
Sementsverksmiðjan á Akra-
nesi starfaði samtals 350 daga
á árinu sem leið og voru það
fleiri framleiðsludagar en á
nokkru ári áður til þessa. Heild
arframleiðslan á árinu nam um
110 þús. lestum og sements-
birgðir verksmiðjunnar um sl.
áramót 25 þús. lestir.
Verðmæti seldrar framleiðslu
nam 129.7 millj. kr. á árinu
1964.
ÞYTUR SKIPTIR
UM EIGENDUR
Hefur brátt 12 vélar til reiðu
Flugskóiinn Þytur hefur nú
skipt um eigendur og hafa þeir
Björgvin Hermannsson og Otto
Tynes keypt skólann og reka
hann í framtfðinni. „Það verð-
ur mikið að gera í sumar fyrir
flotann okkar,“ sagði Björgvin
í stuttu símtali í morgun „við
höfum þegar fengið margar pant
anir fyrir sumarið frá ferða-
mönnum og ferðaskrifstofum."
Þytur mun í framtíðinni
verða rekinn sem flugskóli og
flugvélaleiga en alls eru nú í
flota Þyts 7 flugvélar, en verið
að semja um kaup á 4-5 nýjum
flugvélum, öllum af Cessna-
gerð. Flugvélarnar sem Þytur á
nú eru 2 Piper Cup og ein flug
vél af gerðinni Piper Apache,
Cessna 150, Cessna 140 og
Cessna 172 og Aero.
Verið er að sernja um kaup
á Cessna 310, sem er nú á
Reykjavíkurflugvelli við aðset-
ur Þyts og félagið hefur hug
á kaupum á tveim Cessnum af
gerðinni 172 og tveim af gerð
inni 150.
Umboðsmaður Cessna-verk-
smiðjanna á Norðurlöndum er
hinn kunni flugkappi Thor Sol
berg og er hann nú staddur
hér til að semja við Þyts-menn
um flugvélakaupin.
FæreyjafíugiS
hefst aftur 6. maí
Flugfélag íslands, sem tvö und-
anfarin sumur hefur haldið uppi
flugi um Færeyjar, hefur ákveðió
að halda þeirri þjónustu áfram á
sumri komanda og verður fyrsta
ferðin farin frá Reykjavík 6. maí
n.k.
Framh. á bls. 6