Vísir - 04.03.1965, Síða 4

Vísir - 04.03.1965, Síða 4
d VÍSIR . Fimmtudagur 4 marz 1965. Dönsk danshljómsveit á Röðli Fyrir nokkrum kvöldum hóf dönsk danshljómsveit, „Preben Granov’s kvintett", að leika að Röðli. Með hljómsveitinni er dönsk söngkona, Úlla Berg. HÍjómsveit þessi hefur leikið í mörgum borgum í Danmörku, með- al annars í Kaupmannahöfn, og í Noregi frá „Norðurhöfða til Líð- andisness“. Áð sjálfsögðu hefur hún einnig skroppið yfir sundið til Svíþjóðar, og eitthvað hefur hún leikið í þýzkum borgum. Enginn þeirra félaga hefur áður komið til íslands, en ýmislegt höfðu þeir frétt héðan — meðal annars að ekki þýddi að tala við landsfólkið nema annað hvort á þess eigin tungu — eða ensku. Þeir kváðust þvf hafa orðið harla undrandi yfir mjög góðri dönskukunnáttu manna hér, sem þeir höfðu þegar átt tal við. Hljómsveitarstjórinn, sem orð hafði fyrir félögum sínum, kvaðst bíða þess með eftirvæntingu að sjá hvernig leik þeirra félaga yrði tek- ið hér, — „það gerir maður alltaf, þegar maður byrjar að leika á nýj- um stað“. Preben Garnov leikur sjálfur á píanó og trompet; Sten Lindgren á saxófón, Poul Andersen á tromm- ur, Ib Finn Jensen á bassa og Ulla Berg syngur á ensku, þýzku, sænsku og dönsku. Tjaldanes — Framhald bls. 9. geymslur og þvottahús. Miðað er að þvx að þetta verði eins og stórt he.imili þar 'sem þeim, tíu börrium, sem rúm er fyrir geti liðið eiris vel og kostur er á. Ætlunin er að halda áfram byggingu heimilisins og Ijúka því að fullu í maí n. k. Er í und irbúmngi að byggja litla sund- laug og lítið gróðurhús og er heildarkostnaður við heimilið á- ætlaður um 3 milljónir króna. Kostnaður við framkvæmdir mið að við s. 1. áramót var 1.7 millj. krónur. Fjársins til framkvæmd anna hefur verið aflað á ýmsan Planótónleikar Ceinustu gestir Tónlistarfélags ins voru bandarísku hjónin Milton og Peggy Salkind, sem léku fjórhent á eitt píanó í Aust urbæjarbíói mánudags og þriðju dagskv. í f. viku. Það var sönn ánægja að hlýða á leik þeirra aftur núna (þau komu hér í mý- fiugumynd og spiluðu í Tónlist- arskólanum í fyrravor) og fá annað tækifæri til að skyggn- ast inn í hinar alltöf lítt þekktu góðbókmenntir fjór- hents píanóleiks. Flutningur þeirra var mett- aður lejkgleði og fágun °g þar bar hæst „Gæsamömmu" Rav- els. Leikur tveggja ólíkra per- sónuleika á eitt og sama hljóð- færið er efalítið eitt hið erfið- asta samspil, sem til er. Píanó- ið er viðkvæmt fyrir boðum tutt ugu fingra á nótnaborði sínu. Þar má lítið út af bregða, svo að það svari ekki I axarskaft. Flygillinn í Austurbæjarbíói brást vel við öllum boðum, kom þeim skilvíslega til áheyr- enda — og meir en það, hann flutti á sinn hátt þá einlægu ósk, að þau hjónin kæmu hing að aftur við fyrsta tækifæri. Cinfóníuhljómsveit íslands hélt aukatónieika' méð \,ein hverju fyrir alla“ miðivkudags kvöld í fyrri viku. Stjórnandi var Igor ' Buke- toff, einleikari var Asgeir Bein teinsson i „Rhapsody in Blue“ eftir Gershwin. Svona tónleikar eiga eflaust eftir að fagna mikl- um vinsældum — og auka við hóp velunnara hljómsveitarinn ar — því að „ný andlit" voru í áberandi meirihluta þetta kvöld. Stjórnandinn var í ess- inu sínu allt kvöldið — hljóð- færaleikarar í skemmtilega góðu skapi, sem smitaði út frá sér. Ásgeir Beinteinsson stóð sig vel — merkilega vel, þegar tek ið er tillit til þess að svona músík er honum líklega lítið hjartans mál, og þar að auki þurfti hann að glíma við alger- lega hljómlaust hljóðfæri. Mér finnst alltaf mikill mis- skilningur, þegar dirigentar reyna að blása upp þessa Rhapsodiu, það er eins og reynt sé að klína glassúr á sápukúl- ur. Hámark skemmtunarinnar var eitt af þremur aukalögun- um, Ritvélarpolkinn („Efst á baugi“). Spenningurinn var eins og á kappleik, glíma bumbu- leikarans við ritvélina mun lengi í minnum höfð. Þorkell Sigurbjömsson hátt og hefir félagið fengið syrk úr „tappasjóði" sem er und ir umsjá félagsmálaráðuneytisins að fjárhæð 750 þúsund krónur. Undirtektir ráðuneytisins hafa verið sérstaklega góðar svo og annarra t- d. hefur Reykjavíkur borg lagt félaginu til styrki svo og Lionsklúbbarnir I Reýkjavík. Ennfremur hafa einstök fyrir- tæki lagt til fé svo og einstakl- ingar. Eins og áður er greint er ætlunin að ljúka heimilinu að fullu í maí og vantar aðeins herzlumuninn á að svo geti orð- ið. Framlög til heimilisins yrðu vel þegin og tekið skal fram að gjafir til heimilisins eru skatt- frjálsar. Félagsmenn í styrktar félaginu eru eins og fyrr segir 30, flestir félagar í Lionsklúbb unum í Reykjavík. Formaður félagsins er Friðfinnur Ölafsson, forstjóri aðrir í stjórn félagsins eru Sigurður Magnússon_ for- stjóri, Hafsteinn Sigurðsson, lög fræðingur, Hilmar Garðars for- stjóri og Kristinn Olsen, flug- stjóri. Ekki dregið fyrr en eftir viku Auglýsing frá Happdrætti Há- skólans birtist viku fyrr i blaðinu en ætlað var. Var þar sagt að dregið yrði á miðvikudaginn, þ. e. í gær Það er því rangt. Það er ekki fyrr en næsta miðvikudag, 10. marz, sem drátturinn fer fram. Öll um miðaeigendum og velunnurum happdrættisins skal á þetta bent, Enn verður að bíða í viku eftir stóra vinningnum! V ★ Bandaríkjastjórn hefir ákveðið að byrja aftur að greiða Samein- uðu þjóðunum framlag sitt til að- stoðar þjóðum viða um heim, en hún frestaði slíkum greiðslum s.l. haust vegna deilunnar um skulda-, skil. Hér er um 60 milljóna dollara framlag að ræða, því að greitt verð ur hið sama og í fyrra. Innistæðulausum ávísunum fækkar Skyndikönnun á innistæðulaus- um tékkum fór fram á fimmtudag- inn í fyrri viku og kom þá í ljós, að innistæða var ekki nógfyrirtékk um að upphæð 557 þúsund krónum. Er það lægsta fiárhæð í slíkri skyndikönnun og má af því ráða, að aðgerð bankanna gegn misnotk- um tékka hafi miðað í rétta átt. Alls hafa farið fram sex skyndi- kannanir á innistæðulausum tékk- dm síðan hinar samræmdu aðgerð- ir bankanna hófust. Fyrsta könnun- in var gerð 9. nóv. 1963 og voru þá 5,8 milljónir króna innistæðulaus- ar á 210 tékkum. í fyrra voru gerð- ar fjórar kannanir hin fyrsta 21. febrúar og voru þá 1,3 milljónir innistæðulaus á 127 tékkum, 4. júlí voru 1.4 milljónir á 158 tékkum, 18. júlf 0,806 milljónir á 105 tékkum, 24. okt. 1.092 milljón á 131 tékka og svo loks 25. febrúar s.l. voru 0,557 milljónir innistæðulausar á 91 tékk. Sést af þessu, að bæði heildarupphæðin og tékkafjöldinn fer lækkandi. Aðgerðum þessum verður haldið áfram af fullum krafti. Nú hefur að auki verið samin skrá um mis- notkunina á þessum tíma og hafa allir bankar og sparisjóðir aðgang að henni. Brauzt inn til að skila þýfi Sá undarlegi atburður gerðist að faranótt sl. sunnudags að brotizt var inn í hús til að skila hlut, sem stolilð hafði verið úr húsinu dag- inn áður. Þetta skeði í KR-heimilinu við Kaplaskjólsveg. Þaðan hafði ein- hvern tíma eftir hádegi á iaugar- daginn verið stolið karlmanns- ‘ veski, sem í voru um 300 kr. í pen- ingum. Nóttina eftir var brotizt inn í KR-heimilið og veskinu þá skil- að — að vísu peningalausu. Og til þess að eiga eitthvert erindi annað en skila veskinu hirti þjófurinn um leið á að gizka 1 þús. kr. i pen ingum, sem gleymzt höfðu þar inni frá kvöldinu áður. Edda Aðalsteinsdóttir og Árni Johnsen. Eyjomenii sýna Féraarlambið Síðastliðinn fimmtudag frum- sýndi Leikfélag Vestmannaeyja gamanleikinn „Fórnarlambið" eftir finnska leikritahöfundinn Irjo soini, í þýðingu Júlíusar J. Daní- elssonar. Leikstjóri er Höskuldur Skagfjörð en Sigurgeir Jónasson gerði leiktjöldin. Var leiknum for- kunnar vel tekið, en leikendur eru allir úr Eyjum: Árni Johnsen, Einar Þorsteinsson, Ásta Steingrímsdótt- ir, Edda Aðalsteinsdóttir, Sigur- geir Siguriónsson, Unnur Guðjóns- dóttir og Gunnar Sigmundsson. Laugardaginn var lagði leikfélag ic svo „land undir fót“ Og flaug til Hornafjarðar með leiktjöld og ann- að hafurtask og hafði tvær sýning- ar að Sindrabæ í Höfn við frábær- ar viðtökur og húsfylli, en hélt sjóleiðina til Eyja á sunnudag. Róma þátttakendur mjög báðar ferðirnar, einkum var aðflugið í Ijfornafirði hið fegursta í glamp- andi sól. Og viðtökurnar þar voru eins og bezt varð á kosið og förin öll hin ánægjulegasta. Leikfélag Vestmannaeyja er nú að athuga möguleika á að skreppa til Reykjavíkur og efna þar til sýn- inga, en aðalvandkvæðin verða að fá hentugt húsnæði.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.