Vísir - 04.03.1965, Blaðsíða 5
5
þingsjá Vísis
V'tSIR . Fimmtudagur 4. marz 1965.
bings já Vísis þingsjá Vísis
UMRÆDUR UM SKÓLAMÁL
Fundur var í sameinuðu þingi
f gær.
Mörg mál voru á dagskrá, fyrir
spumir og þáltill, og má þar með-
al annars nefna fyrirspum um
skólamál, sem Magnús Jónsson
beindi til menntamálráðherra, þá
þáltill. um ökuskóla, kvikmynda-
sýningar í sveitum, afréttarmál-
efni, sildarflutningar og síldarlönd
un o. fl.
í gær tók Kristján Thorlacius
F.inars Ágústssonar á Al-
þin^i.
' mn
Skólamál
Magnús Jónsson beindi fyrirspurn
til menntamála-
ráðherra um
skólamál. Er
hún á þá leið að
spurt er hvaða
ráðstafanir hef-
ur ríkisstjómin
gert til þess að
tryggja það, að
í öllum skólahéruðum landsins
geti börn lokið skyldunámi sam-
kvæmt fræðslulögum og hvaða
ráðstafanir hyggst ríkisstjómin
gera til þess að bæta aðstððu
unglinga £ strjálbýlinu til þess að
ljúka miðskólanámi í heimahér-
aði?
Sagði fyrirspyrjandi, að þegar
rætt væri um ráðstafanir til að
tryggja jafnvægi í byggð lands-
ins, þá væri oftast talað um efna
hagslegt jafnvægi. En það væri
engu síður nauðsynlegt, að sem
mest jafnvægi væri í hinni fé-
lagslegu aðstöðu og þá fyrst og
fremst jöfn aðstaða til menntun-
ar.
Þá ræddi hann nokkuð á v£ð
og dreif um menntunarmálin £
dreifbýlinu, en sagði að lokum,
að hann vildi, að menntamálaráð-
herra gæfi yfirlýsingu um stefnu
rikisstjórnarinnar í þessum mál-
um.
Menntamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gfslason, hóf
mál sitt á því,
að segja að með
lögum frá 1946
hefði verið gert
ráð fyrir, að
skólaskylda yrði
frá 7—15 ára.
En veitt hefði
verið leyfi til þess, að hún næði
ekki nema til 14 ára, þar sem
aðstæður voru erfiðar og það
hefði verið mjög vfða f dreif-
býlinu eða í 138 skólahverfum.
Alls staðar, sem svo væri málum
háttað, væri það eftir ákvörðun
viðkomandi sveitastjórna, en það
hefði aldrei staðið á menntamála
ráðuneytinu að taka á sig aukin
útgjöld, ef farið hefur verið fram
á lengingu skólaskyldunnar um
eitt ár.
Helzta skilyrði fyrir lengingu
skólaskyldunnar úti um landið er,
að sameinast í stærri skólahverfi
°g byggingu heimavistarskóla,
eins og mjög vfða hefur verið
gert á undanförnum árum, eða
nánar til tekið hafa 72 hreppar
í 14 sýslum sameinazt um skóla
á 16 stöðum. Og það hlyti að
koma að þvf, að á þessum stöð-
um yrði skólaskyldan lengd til
15 ára aldurs, þótt ekki væri bú-
ið að því ennþá.
Þá skýrði ráðherrann frá því,
að samkv. nýlegum rannsóknum,
sem gerðar hefðu verið á Norður
landi, þá hefði aðeins þurft að
neita 13 nemendum um skólavist
f framhaldsskólum, og náði þó sú
rannsókn yfir mestallt Norður-
land. í Rangárvallasýslu hefði
ekki þurft að neita neinum. Þess
vegna væri ekki annað séð en
ummæli um erfiðleika unglinga
úti um landsbyggðina til mennt-
unar væru nokkuð orðum aukin.
Þá- væri að segja frá því að
ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir
þvf að skipa nefnd, sem semdi
áætlun, sem miðaði að þvf að
gera samræmt átak til að lengja
skólaskyldu til 15 ára aldurs um
allt land. Og mun ríkisvaldið gera
sitt til að það geti orðið sem
skjótast.
Um seinni lið fyrirspurnarinn-
ar væri það að segja, að nauðsyn
legt væri að bæta aðstöðu ungl-
inga til að ljúka miðskólanámi
í heimahéraði. Á því væru þó ýms
ir örðugleikar og mætti benda á,
að meðaltal unglinga á miðskóla-
aldri £138 skólahverfum væri að-
eins 5.
I lok ræðu sinnar lét ráðherr-
ann þess getið, að um skeið hefði
Efnahagsstofnunin unnið að fram
tíðaráætlun um skólabyggingar
og væri henni nú að ljúka og
von til þess að hægt væri að
vinna eftir henni samkv. fjárlög-
um þessa árs. Og þá þyrfti að
leggja áherzlu á að stytta bygg-
ingu skólahúsa. Ennfremur þyrfti
að gera reikningsskil milli sveit-
arfélaga og rfkis auðveldari hvað
snerti útgjöld til skólamála og
mundi nefnd verða skipuð í það
mál.
Fyrirspyrjandi, Magnús Jóns-
son, þakkaði ráðherra góð svör.
Ingvar Gíslason tók næstur til
máls og hélt því fram, að gelg-
vænlegt ástand væri í skólamál-
um dreifbýlisins.
Ökuskóli
Eggert Þorsteinsson mælti fyr-
ir þáltill., sem Pétur Pétursson
flutti á sfnum tfma, en hann á
ekki sæti á Alþingi nú. Er
hún á þá leið, að skora á rfk-
isstjórnina, að undirbúa löggjöf
um ökuskóla.
Skal stórauka bóklegt og verk-
legt nám þeirra, sem undir pnóf
ganga og fá ökuskfrteini.
Sagði frsm., að hin tiðu um-
ferðaróhöpp, samfara stóraukinni
umferð, hlyti að krefjast aukinn-
ar kunnáttu ökumanna. Þess
vegna væri þessi tillaga fram
komin.
í stuttu máli
Þórarinn Þórarinsson mælti
fyrir tillögu um hlutverk Seðla-
bankans að tryggja atvinnuveg-
unum fjármagn.
Karl Kristjánsson mælti fyrir
tillögu, sem hann flytur ásamt
fleirum um afréttarmálefni.
Sigurvin Einarsson mælti fyrir
tillögu um kvikmyndasýningar í
sveitum.
Bjöm Jónsson mælti fyrir til-
lögu um sfldarflutninga og sfld-
arlöndun.
Aukíi byggðajafnvægi og
jöfn aðstaða til uáms
— Búnaðarþing gerir dlyktanir í mdlefnum dreifbýlisins
Búnaðarþing hefur nú setið á
rökstólum í um það bil viku og
hefur það afgreitt nokkrar álykt
anir um byggðajafnvægi, um
endurskoðun skólalöggjafar, um
bændafarir, um leiðbeiningar-
þjónustu og um verksvið bygg-
ingaráðunautar félagsins. Þessar
ályktanir vom afgreiddar á þing-
inu i gær. Allmiklar umræður
urðu einnig um önnur mál eink-
um þó um innflutning holda-
nauta, og sýndist sitt hverjum í
því máli.
Ályktunin um byggðajafnvægi
hljóðar svo: Búnaðarþing skor-
ar á Alþingi að gera ákveðnar
og raunhæfar ráðstafanir til
þess að efla byggð og treysta
búsetu fólks um land allt. Þing-
ið vill vekja athygli á fordæmi
Norðmanna f þessu efni, og tel-
ur æskilegt að sérstakri stofn-
un verði hér falið það verkefni
að beina fjármagn; til fram-
kvæmda í þá landshluta, þar
sem byggð vex ekki eðlilega, og
að ákveða staðsetningu þjónustu
stofnana ríkisins, skóla og ann-
arra rfkisstofnana og atvinnu-
fyrirtækja, svo að þau stuðli að
eðlilegri og jafnr; fólksfjölgun
um land allt. Stofnuninni verði
séð fyrir föstum tekjum, sem
haldi gildi sínu, þó verðfall verði
á peningagildj í landinu. í stjóm
stofnunarinnar verði fulltrúar
kosnir af landsfjórðungunum,
einn af hverjum, ásamt fulltrú-
um ríkisvaldsins.
Ályktunin um skólalöggjöf
hljóðar svo: Búnaðarþing skorar
á Alþingi það, sem nú situr, að
kjósa nefnd til að endurskoða
alla skólamálalöggjöf landsins.
Telur þingið nauðsynlegt, að Al-
þingi, strax að lokinni endur-
skoðun, setji ný lög um þessi
efni, byggð á þeirri reynslu, sem
fengizt hefur hérlendis og einn-
ig reynslu annarra þjóða eftir
þvf sem við á. Sérstaka áherzlu
leggur búnaðarþing á, að lög-
gjöfin tryggi öllum, hvar sem
KuMigóður fyrir gróðurinn
— þegar hann er svona snemma á ferðinni, segir garðyrkjustjóri
Þessa dagana er norðanátt um
allt land, en undanfarið hafði
verið milt og gott veður og
gróður farinn að sjást í görð-
um svo okkur lék forvitni á
að vita hvort kuldi þessi myndi
ekki hafa skaðleg áhrif á gróð-
urinn. í þvf tilefnl hringdi Vfsir
í Hafliða Jónsson, garðyrkju-
stjóra Reykjavíkurborgar.
— Þess'i kuldi slær á gróður
inn, það hefði verið verra að
fá hann þegar lengra lfður á
vorið, út af fyrir sig er gott
að fá svona kuldakast. Það
voru ekki nema e'instaka runn-
ar og laukar sem voru farnir
að láta bæra á sér, að vfsu voru
krókusar byrjaðir að blómstra
en það er ekki fátftt sérstak-
lega þegar þeir eru í góðu skjóli
undir húsvegg á mót’i suðri.
GLERBROTIN MEINLAUS
Varðandi fregn um glerbrot
í Hljómskálagarðinum, sem birt
ist f blaðinu fyrir' skömmu kvað
garðyrkjustjóri énga’ ástæðu til
ótta, í fyrstu höfðu þeir haft
beyg af þessum glerbrotum, en
reynslan væri sú, að glerbrotin
ganga undir eins niður f gras-
svörðinn og auk þess væri gler
ið svo núið að það skæri ekki
einu hættuna kvað hann geta
stafað af ljósaperuglerbrotum.
þeir búa á landinu, sem allra
jafnasta aðstöðu til náms, ekki
einungis að þvf er varðar
kennslu, heldur einnig fjárhags-
lega aðstöðu.
★ Tanzania hefír afþakkað alla
vestur-þýzka aðstoð, vegna þess
að Bonnstjómin svipti hana hem
aðarlegri aðstoð, vegna þess að
austur-þýzk ræðismannsskrif-
stofa hefir verið opnuð í Dar-es-
Salaam.
Klukkan í Kefiavík
Á mánudag birtist hér f blaðinu
fregn um Keflavfkurkirkju. Þess
skal getið að það voru þeir sem
stóðu að útgáfu Keflavikurtfðinda
Ingvar Guðmundsson, Kristján Guð
laugsson og Höskuldur Goði Karls
son sem vöktu aftur upp söfnunin?
fyrir fé til kaupa á stunda-
klukku og fengu tvo áhugamenn f
lið með sér, þá Gustaf Andersen
og Hjálmar Pétursson.
Vélbátur —
íbúð úti á landi
Góð 3ja herbergja íbúð með baði og tilheyr-
andi, og tæplega 20 lesta vélbátur í prýðilegu
ástandi með dragnót og línuveiðafærum,
staðsett í einni beztu verstöð á Vestfjörðum
fæst í skiptum fyrir góða 3—4 herb. íbúð í
Reykjavík. Tilvalið fyrir góðan sjómann.
Miklir tekjumöguleikar. Skiptin þyrftu að
fara fram í vor um 14. maí. Uppl. í síma 24850
næstu daga.
Matráðskona
Matráðskona óskast að Vistheimilinu Arnar-
holti strax. Uppl. ' síma 22400, kl. 9—17.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.