Vísir - 07.04.1965, Síða 1
Myndln sýnir furðujeppann
og var tekin í morgun fyrir ut-
an hús Landssímans að Sölv-
hólsgötu 11. Eiríkur Ámason,
símvirki, framkvæmir mæling-
ar. Hér stendur hann við hlið-
ina á jeppanum og er sjón-
varpsioftnetið hálfdregið út, eða
um 5 metrar á lengd, en alveg
dregið út er það tæplega 11
metra langt.
Bíll í sjón varpsmælingum
Móftökuskilyrði athuguð í R-vik og nágrenni
Undanfama daga hefur sézt
undarlegur jeppi á götum
Reykjavíkur með merki Lands-
símans. Hann er með alls kon-
ar loftnet á hliðunum og þak-
inu. Blaðið hafði samband við
Sæmund Óskarsson, verkfræð-
ing hjá Landssímanum og
spurðist fyrir um bílinn.
— Þetta er jeppi, sem fram-
kveemir mælingar á sjónvarpsút
breiðslu og er með mastri, sem
hækka má upp f 10 metra hæð
Það er gert á þann hátt, að
mastrið er pumpað upp með
loftdælu. Jeppinn er útbúinn
með sviðstyrkleikamæli og auk
þess er til f hann mælir, sem
getur mælt sjónvarpsstyrkinn,
mælisjónvarp.
Mælingar þessar standa f sam
bandi við áætlað sjónvarp f
Reykjavfk og er mæld Iang-
dregni í bænum og nágrenni
hans frá sendi sem er staðsett-
ur á Vatnsendahæð, eða þar
sem fyrirhugað er að fyrsta
sjónvarpssendistöðin verði.
— Liggja fyrir niðurstöður af
þessum mælingum?
— Nei, ekki endanlegar, en
það er hægt að fullyrða, að
styrkurinn verður ágætur f
Reykjavík og nágrenni f það
minnsta. Það hafa reyndar verið
gerðar mælingar áður, en þá
voru þær miklu erfiðari og dýr-
ari í framkvæmd. Þá þurfti
marga menn við það, sem nú
þarf aðeins 1 mann til að fram-
kvæma með þessum jeppa. Þessi
bíll verður notaður áfram út
um Iand eftir því sem með þarf
I sumar verða væntanlega gerð-
ar mælingar frá sendi á Skála-
felli, en sjónvaipssendirinn
verður þar í framtfðinni.
— Af hverju eru mælingar
gerðar í 10 metra hæð frá
jörðu?
— Það hefur verið ákveðið í
alþjóðasamtökum útvarps- og
fjarskiptistöðva, CCIR, að
miða mælingar við þessa hæð
og gert vegna þess að sjón-
varpsloftnet eru yfirleitt höfð
nálægt þeirri hæð, en eins og
margir vita þá næst því betur
í sjónvarpsstöðvar þar sem
langt er í þær eftir því sem Ioft
netin Standa hærra.
220-230 milljónir króna á ári til
íbúðalána Húsnæðismálastjómar
<
Lónoð 280 þús. króno út
þAÐ kom fram í ræðt^ Þorvalds G. Kristjánssonar á Al-
þingl f gær, að á þessu ári mun ráðstöfunarfé Húsnæð-
ismálastofnunarinnar til útlána vera milli 220-230 milij.
Lánin munu hækka úr 150 þús. í 280 þús. og mun þessi
fjárhæð nægja til að lána út á 750 fbúðir. Auk þess skal
15 — 20 millj. varið til lána efnalítilla meðllma verka-
lýðsfélaga, sérstaklega. Með þessum síðustu ráðstöfunum
hafa lán Húsnæðismálastofnunarinnar hækkað um 280 -
300% á meðan vísitala byggingakostnaðar hefur hækkað
um 77% ef miðað er við árið 1958.
þvf að rekja nokkrar þær breyt
ingar, sem eru í sjálfu frv. Meg
inbreytingin er sú, að nú er
lánshámarkið hækkað úr 150
þús. kr. í 280 þús. kr. Árið 1955
var þetta hámark 70 þús. kr.,
en var hækkað ’61 í 150 þús. kr.
og er nú hækkað enn. Þá skal
árlega veita 15-20 millj. kr. til
hærri lána en almennt gerist
trl efnalítilla meðlima verka-
lýðsfélaga. Lánin eru til 25
ára með 4% vöxtum og af-
í gær var stjómarfrumvarp
um Húsnæðisrpálastofnun ríkis-
ins tíl 2. umræðu f efri deild.
Mælti Þorvaldur Garðar fyrir
áliti meirihluta heilbrigðis- og
félagsmálanefndar. Leggur meiri
hhrtinn til að frv. verði sam-
þykkt með nokkrum breytingar-
tiHögum, sem hún flytur, en
nefndin Mofnaði í þrennt við af
greiðslu málsins.
Þorvaldur hóf ræðu sfna með
ú 750 íbúðir
borganalaus fyrsta árið en vísi-
tölubundin. Þá skal heimilt að
veita sveitarfélögum lán til
byggingu leigufbúða. Um nýjar
tekjur byggingasjóðs væri það
að segja, að þær væru m.a.
launaskattur, árlegt framlag rík
issjóðs, sem nema ætti 40
millj. kr. og framlagi rikissjóðs
til atvinnuleysistrygginga verð-
ur varið til kaupa á vaxtabréf-
Framh. á bls. 6
BLAOIÐ 1 DAG
2 Sonur Chaplins
þiggur sveita-
styrk.
3 Húnabyggð, þinn
hróður gjalli.
7 ísfirzka bóka-
safnið.
8 Svíar smíða eigin
herþotur.
9 Áfengi og umferð.
10 Talað við Jón
Sigurpálsson.
Keyptu togaru á 25 þús. krónur
Vestmannaeyingar kaupa Donwood
Sex Vestmannaeyingar hafa
keypt brezka togarann Don-
wood, sem strandaði við Heima-
klett fyrir nokkru. Keyptu þeir
togarann fyrir 25 þús. krónur,
en norska björgunarfélagið hef-
ur gefizt upp við að ná togaran-
um út og héldu björgunarmenn
irnir til Noregs s.l. laugardag.
Mjög vorít veður var við Vest-
mannaeyjar í gærkvöldi og fram
á nótt. Þrátt fyrir það hefur
Donwood ekki haggazt af þeim
stað, sem hann liggur á. Að
sögn norsku björgunarmann-
anna er togarinn mjög vel skorð
aður við stóran klett á bak-
borðshlið og Heimaklett að
framan á stjórnborðshlið.
Þeir, sem keyptu togarann
voru hafnarverðirnir í Eyjum,
hafsögumaðurinn og 3 smiðju-
menn. Tóku björgunarmenn að-
eins siglingartækin úr togaran-
um. M. a. þess sem talið er
vera í góðu standi og skilið
var eftir er trollspil, vélar allar,
vírar og keðjur. Þá eru í togar-
anum 40 tonn af olíu, sem hinir
nýju eigendur Donwood hyggj-
ast byrja á að ná úr togaranum.