Vísir - 07.04.1965, Blaðsíða 8
8
anríl 196».
VISIR
Ctgefandi: Blaðaútgáfan VISIÍ?
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsor,
Fréttastiórar Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ö. Thorarenser
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti 3
Áskriftargjald er 80 kt á mánuði
I lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis - Edda h.f
Víti sem ber að varast
„Viggen“ — Saab 37, mywá af módeii þeðsarar gerðar. Hun er talin tæknilegt furðuvcrk, eins og
segir i meðfylgjandi grein, og „aHra-veðra-þota“, geín er auðveld í meðförum, svo að hægt er að
gera með henni ýmsar „Uúnstir“, jafnvel i lftilli hæð.
I£ins og bent hefur verið á í öðrum blöðum, ber
stjómmálaályktun Framsóknarflokksins það greini-
lega með sér, að flokkurinn er í stjórnarandstöðu.
Sama ábyrgðarleysið og yfirboðin, sem einkennt hafa
afstöðu Framsóknar síðustu árin, er þar að finna.
Furðulegast af öllu er ábyrgðarleysið i fjármálum.
Þar er gengið svo í berhögg við heilbrigða skynsemi,
að þótt það standi svart á hvítu í Tímanum, er varla
hægt að trúa því, að nokkur stjórnmálaflokkur sé
svo óskammfeilinn, að bjóða almenningi upp á að
kyngja slíkum kenningum. Þeir, sem settu þetta sam-
an, eru ekki svo skyni skroppnir, að þeir trúi þvi
sjálfir. Þeir vita ofur vel.'að það rekst á við heilbrigða
skynsemi og einföldustu staðrevndir í efnahagsmál-
um. En þeir ætlast eigi að síður til að landsmenn taki
það fyrir góða og gilda vöru og trúi þar hverju orði.
Ef þetta er ekki virðingarleysi fyrir dómgreind kjós-
enda, er vandséð hvað því nafni mætti hefttást.
Samkvæmt stjórnmálaályktuninni telja leiðtogar
Framsóknarflokksins að hægt sé að lækka skatta og
tolla um hundruð milljóna, án þess að draga nokkuð
úr framkvæmdum á móti. Og þeir láta ekki þar við
sitja ,heldur gera þeir í þokkabót tillögur um stór-
aukin ríkisútgjöld og hundruð milljóna í auknu láns-
fé. Er það ekki bein móðgun við almenning, að bjóða
honum upp á að trúa svona „hagspeki“. Framsókn-
armenn vita það eins vel og aðrir, að hvorttveggja
er ógerlegt í senn, að skerða tekjur ríkisins og stór-
auka útgjöldin. Ef einhverjum dytti í hug að bera
fram slíkar kröfur, þegar Framsókn væri í ríkisstjóm,
mundu foringjar hennar vafalaust svara því til, að
slíkt ráðslag hefði óhjákvæmilega í för með sér stór-
felldan rekstrarhalla hjá ríkissjóði. Og sennilega
mundi þeim ekki lítast á blikinu, ef ofan á þetta væri
krafizt aukningar útlána, sem næmi mörgum hundr-
uðum milljóna króna. Ætli þeir segðu ekki að þeir,
sem slíkar kröfur gerðu, ynnu að upplausn og óða-
verðbólgu?
En hvar telja Framsóknarmenn að hægt sé að
spara? Þeir snúast alltaf æfir gegn hverri hugmynd
í þá átt, þegar þeir eru í stjórnarandstöðu. Og þegar
þeir eru í ríkisstjórn, eru þeir síður en svo nokkur
fyrirmynd í hagsýni eða sparnaði. Núverandi fjár-
málaráðherra hefur sýnt ólíkt meiri viðleitni til þess
að draga úr óþörfum útgjöldum ríkissjóðs og koma á
hagkvæmara skipulagi í ýmsum greinum en Eysteinn
Jónsson gerði öll þau ár, sem hann var fjármálaráð- |
herra. Framsóknarmenn geta því áreiðanlega ekkert
kennt núverandi ríkisstjórn í því efni. Hið eina, sem
Framsókn getur kennt öðrum er það, að allt ráðslag
hennar er víti, sem ber að varast.
Svíar smíða sínar
eigin herþotur
Verja 8-10 milljörðum sænskra króna til
smíði á nýrri gerð af orustuþotum
Það var alloft að því vikið á
dögiun borgarastyrjaldarinnar á
Spáni, að stðrveldin Sovétríkin
og Bandaríkin og ef til vill fleiri
herveldi kæmu til með að hafa
anlega fengist reynsla af notkun
vopna og tækja í þeim átökum,
sem þar áttu sér stað. í öllum
smástyrjöidum eru sjálfboðalið-
ar, „tæknilegir ráðunautar“,
sem ýmsir telja vera hermenn
í raun og veru, en hvað sem um
þetta er, þar sem barizt er þar
hafa stórveldin — eða einhver
stórveldi að minnsta kosti —
sinn fingur með I sprlinu, og
m. a. af ofangreindri ástæðu. Sú
reynsla, sem þannig fæst, getur
orðið mikilvæg. Tökum til dæm-
is: Bandaríkjamenn eiga herþot-
uf, sem taldar eru hinar full-
komnustu í heimi. Þeim var
beitt í áfásunum á Norður-Viet-
nam fyrir fáum dögum — en
það kom i ljós, að þær standast
ekki snúning flugvélum af eldri
gerð, MIG-orrustuþotunum sov-
ézku, við þær hernaðaraðgerðir
sem þar áttu sér stað að
minnsta kosti, og skutu MIG-
þotumar niður 3 hinna banda-
rísku, og fyrir bragðið fer fram
endurskoðun hertæknilegs efnis,
að því er hermt er i fréttum
frá Bandaríkjunum. Þarna fékkst
fljótt reynsla dýrkeypt og dýr-
mæt í senn, því að það kann að
reynast miklls virði að hafa
uppgötvað fyrr en seinna, að við
vissar hemaðaraðgefðir henta
hinar fullkomnu orrustuþotur
ekki.
Herþotur eru annars Orðnar
tæknileg furðuverk og óskaplega
dýrar, en stórveldín telja slík
útgjöld ekki eftir — telja sér
lífsnauðsyn, að hafa hið bezta
sér til varnar og smærri lönd-
um, eða bandamönnum sínum,
sem eiga allt undir í rauninni,
fjárgetu og tæknilegrí getu
verjendanna hvort sem það nú
eru kommúnistar eða V'træðis-
sinnar.
MITT Á MILLI —
En svo eru þjóðir mitt á
milli, ef svo mætti segja, þjóð
ir, sem eru í flokki lýðræðis-
og Indland, hlutleysisstemulönd
in. Um eitt landanna i þessari
fylkingu er það að segia.að það
stendur að mörgu leyti betur að
vígi til að standa á eigin fótum
en önnur hlutlaus lönd, sem eru
margfalt mannfleiri.
Þetta land er Svíþjóð, auð-
ugt land að náttúmgæðum, mik
ið stálframleiðsluland á fjárhags
lega traustum gmndvelli, sem
tókst í tveim heimsstyrjöldum
að vera hlutlaust, sem vafalaust
má að nokkm þakka traustum
vömum, — hvomgur aðila í
styrjöldinni hefðu getað brotið
Svía á bak aftur, nema með því
að fóma of miklu.
Á tima Evrópustyrjaldar eða
heimstyrjaldar — og raunar á-
vallt verður land eins og Svíþjóð
að hafa sllk skilyrði til varnar,
að það fái að vera í fríði. Til
þess þarf hið bezta af vopnum
sðm völ er á. Og Svlar em svo
heppnir, að þeir þurfa ekki neitt
til annars að sækja, þeir hafa
efnið, verksmlðjurnar, pening-
ana og tæknilega menntaða og
þjálfaða menn — þeir hafa með
öðmm orðum komið sér . upp
fullkomnum nútíma flugvéla-
iðnaði.
„VIGGEN“
Og nú hefur sænska stjórnin
ákveðið ,að smíða hvorki fleiri
né færri en 800 orrustu- og elt-
ingaþotur af gerðinni Viggen,
sem mun vera fuglaheiti (grá-
titlingurinn). Hér er um að ræða
mest slík áform í sögu
sænskra landvamaáforma og
flugvélaiðnaðar og áætlaður
kostnaður við flugvélasmíðina
8—10 milljarðar sænskra króna.
„Viggen" er lýst sem elektron-
isku furðuverki". þessar flugvél
ar eiga að verða meginstyrkur
flugflotans, og gert ráð fyrír,
að þær verði tilbúnar til notk-
unar um 1970.
Með einföldum breytingum og
fljótlegum er hægt að nota flug-
vél af þessari gerð I þrennum
tilgangi, til þess að elta uppi
óvinaflugvélar, sem árásarflug-
vél í' hvers konar veðri og til
könnunarflugferða. Hraðinn er
2000—3000 km. á klukkustund
og hún á að geta haft sig til
flugs eða lent á 500 metra flug
braut. Hún á jafnvel að geta
notað þjóðvegi i sama skyni, ef
um nauðlendingu er að ræða.
Að þessari flugvél standa mörg
sænsk iðnfyrirtæki og fremst
SAAB (Svensk Aeroplan AB).
Þegar flugvélin verður tekin i
hotkun fer hún inn í algerlega
nýtt landvamakerfi, kallað
„System 37“.
Mikilvægt er talið, að flug-
vélin má fljúga með 1100 km.
hraða á klukkustund í aðeins
50—100 metra hæð og er því
vernduð gegn skothríð úr loft-
vamabyssum og því að sjást
i ratsjám. Vald er haft á hraðan
um með aðstoð rafheila (elek-
tronisk hjerne), sem sér fyrir því
mikilvægasta í hvaða flugferð
sem er: Réttum hraða í lend-
ingu. Rafheilinn gegnir og víð
tæku hlutverki við að stýra flug
vélinni. Þetta er eins manns
flugvél. Lagið á vængjunum er
miðað við að gerlegt sé að ná
hámarkshraða sem er tvöfaldur
hraði hljóðsins samtímis sem
hún getur notað stutta flugbraut
Flugvélin er talin enn betur bú-
inn en F & Phantom til vemdar
gegn elektroniskum truflunum.
Til þessa hafa áformin um
smlði þessarar flugvélar kostað
sænska ríkið 500 millj. króna
(sænskar). Enn þarf mörg hundr
uð milljónir til undirbúnings
fjöldaframleiðslu og fullgerð
mun hver flugvél, þegar allt er
komið í gang, verða 8 milljónir
sænskra króna.
Svo nýstárleg er þessi flugvél
að norskur ofursti H. G. Hall,
yfimiaður norskra loftvarna, hef
ir kallað hana „orrustuþotu
næstu kynslóðar“.
Það er búizt við, að sænska
þingið samþykki áætlunina á
þessu vori.
mikii ; not.
reynslu, sem þar fengist, eink-
þjóða, en vilja ekki vera í varn-
Ja Ijemaö&rþandalagi, og
ar einkum nefna Svíþjóð